Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 48

Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 48
FJARMAL Þrátt fyrir áhuga á að koma marrni að í stjórn bankaráðs íslandsbanka hefur Lífeyrissjóður verslunarmanna sýnt öðrum hlutafélögum, sem sjóðurinn á /' afskiptaleysi hvað stjórnarsetu varðar. Hann á raunar í flestöllum hlutafélögum sem skráð eru á almenna hlutabréfamarkaðnum. AÐFÁÓHÁÐAN SÉRFRÆÐING í STJÓRN - Að því gefnu að það þyki eðlilegt að lífeyrissjóðir hafi menn í stjórn fyrirtækis, hvernig á þá að velja þá? Á að fá óháðan sérfræðing eða til dæmis stjómarmann í lífeyris- sjóðnum? „Hvort tveggja kemur til greina. Hafi sjóðimir innan sinna vébanda mann til að sinna stjórnarstörfum í ein- hverju tilteknu félagi tel ég það mjög af hinu góða. En það er ekkert einhlítt í þeim efn- um. Það kemur alveg eins til álita að leita út fyrir raðir sjóðanna." - Hvað segir þú um það sjónarmið að til duldra hags- muna geti komið ef fulltrúi í stjórn komi innan raða líf- eyrissjóðs í stað þess að vera óháður sérfræðingur? Að persónulegir hagsmunir, eins og stjórnarseta og völd, geti orðið til þess að innan- búðarmaður nýtti völd sín innan sjóðsins til að koma í veg fyrir að hlutafé í viðkom- andi félagi yrði selt þótt það væri talið arðbært? DULDIR HAGSMUNIR? „NEI“ „Ég hafna algerlega þessu sjónarmiði sem raunar oftar en ekki er nefnt í þessu sambandi. Ég held að fulltrúi lífeyrissjóðs í stjóm hlutafé- lags geti aldrei komið í veg fyrir sölu á hlutafé í félaginu þótt hann sé innabúðarmaður. Einfaldlega vegna þess að ákvörðun um hlutafjáreign lífeyrissjóða í fyrirtækjum er tekin af mörgum og völd eru ekki höfð að leiðarljósi heldur arðsemi fjárfestingarinnar. En raunar má snúa spurningunni við og spyrja hvort innanbúðarmaður, sem situr í stjóm fyrirtækis og þekkir aðstæður vel, sé ekki jafnvel betur í stakk búinn til að meta stöðu mála hjá viðkomandi fyrirtæki og segja til um það hvort það eigi að selja hlutinn eða eiga hann áfram. Horfum ekki fram hjá því að hlutabréfaeign er í eðli sínu langtímafjárfesting. Og ætli sjóður sér að eiga umtalsverð- an hlut til langs tíma í einhverju félagi finnst mér ekkert óeðlilegt við að hann líti eftir fé sínu og hafi fulltrúa í stjórn. En aðalatriðið er samt það að ákvörðun um hlutafjáreign í einstökum félögum er tekin af mörgum en ekki einhverj- um einum og arðsemissjónarmiðin eru fyrst og fremst látin ráða.“ „EKKI ÞÖRF Á NÁKVÆMARI REGLUM UM HLUTABRÉFAEIGN" - Nú sagðir þú í blaðaviðtali fyrr á árinu að Lífeyrissjóður verslunarmanna stefndi að því að verja 5% af ráðstöfunar- fé sínu til kaupa á hlutabréfum á þessu ári. Það er mikið fé. Sú spurning vaknar þess vegna hvort sjóðurinn þurfi ekki að setja sér nákvæmari reglur og sértækari um afskipti af félögum sem hann á í, til dæmis með stjómarsetu í huga? „Ég vil taka það fram að sjóðurinn hefur haft þetta 5% markmið nokkur undanfarin ár. En aðstæður á hluta- bréfamarkaðnum hafa verið með þeim hætti að við höfum ekki komist í námunda við að ná þessu markmiði. I annan stað er það mjög takmarkað hvað við viljum verða stórir í einstaka hlutafélögum og það setur okkur ákveðnar skorð- ur. Ég tel hins vegar að ekki þurfi að setja nákvæmari reglur en sjóðurinn hefur nú þegar varðandi hlutabréfa- eignífélögum. Rauðiþráður- inn er að hafa menn ekki í stjórn hlutafélaga nema að- stæður og eignarhlutur kalli á slíkt. Ég held að ekki sé hægt að setja stefnu um að sjóður- inn beiti aldrei áhrifum sínum í einstaka hlutafélögum og sé algerlega hlutlaus hversu stór sem eignarhluturinn er.“ - Nú verða lífeyrissjóðirnir meira gildandi á hlutabréfa- markaðnum á næstu árum ef að líkum lætur. Þeir verða helstu fjárfestar hlutabréfa. Telur þú að menn muni sjá fulltrúa lífeyrissjóða og annarra stofnanafjárfesta í auknum mæli í stjómum hlutafélaga? „Nei. Enda sýnir almennt afskiptaleysi lífeyrissjóða af stjórnum félaga að þeir hafa tekið það afskaplega rólega, ef svo má að orði komast, og í langflestum tilvika ekki sóst eftir stjórnarsetu í félögum.“ - Lífeyrissjóður verslunarmanna á í um tuttugu félögum á hlutabréfamarkaðnum? Sjóðurinn tengist beint eða óbeint stjórnarsetu í þremur þeirra, íslandsbanka, Flug- leiðum og Þróunarfélaginu. Hefur sjóðurinn tekið þátt í stjórnarkjöri í hinum félögunum? „Það hefur ekki reynt á það. Það hefur ekki verið kosið á milli manna í stjórnum þessara félaga til margra ára. Ef það kemur upp munu menn einfaldlega fjalla um það og ákveða hvort ástæða sé til að skipta sér af því. “ Flugleiðir. Lífeyrissjóður verslunarmanna er annar stærsti hluthafinn í fyrirtækinu með hlut upp á 6,3%. Sjóðurinn á ekki fulltrúa í aðalstjórn. En sameigin- lega eiga nokkrir lífeyrissjóðir fulltrúa í varastjórn. 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.