Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 40
LANDSBRÉF
Þau fjárfestu fyrir hönd Landsbréfa. Frá vinstri: Kristján Guðmundsson,
markaðsstjóri og deildarstjóri einstaklingssviðs, Ástríður Þórðardóttir
ráðgjafi og Tómas Hallgrímsson ráðgjafi.
FJARFESTING LANDSBRÉFA
LAUST FÉ 20,0 mkr.
Reiðubréf ................................ 10,0 mkr.
Landsbankavíxlar .......................... 5,0 mkr.
Víxlar sveit.fél og fyrirt................. 5,0 mkr.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR 20,0 mkr.
Erlendar fjárfestingar.................... 10,0 mkr.
Dreifist á ýmsa alþjóðlega sjóði á vegum
Allieance og Barclays sem fjárf. ( hlutabréfum.
Innlend hlutabréf......................... 10,0 mkr.
Dreifist á félög á hlutabréfam.
LANGTÍMAFJÁRFESTINGAR 160,0 mkr.
Grunnval ................................ 100,0 mkr.
Fjölval .................................. 30,0 mkr.
Framval .................................. 30,0 mkr.
Skipting:
Erl. hlutabréf.(CMI)............... 37,0 mkr.
Innl. sk.bréf......................104,0 mkr.
(Öndvegisb. og Reiðubréf)
Erl. skuldabréf.................... 19,0 mkr.
SAMTALS 200,0 mkr.
Hvernig get ég valið réttu markað-
ina til að fjárfesta á?
Hvemig nálgast ég þá markaði?
Hvernig tek ég ákvörðun um t.d.
hvenær skuli flytja fjárfestingu frá
Evrópu og til Japans?
Hvemig fer ég að því að ákveða
skiptingu milli hlutabréfa, skuldabréfa
og lauss fjár?
Hvemig fæ ég sem gleggst yfirlit
yfir heildarverðbréfaeign mína?
Landsbréf mæla með því að vinn-
ingshafinn fjárfesti í öllum þremur
verðbréfasöfnunum í AFL í eftirfar-
andi hlutföllum: GRUNNVAL 100
M.KR. Að meðaltali um 80% verð-
bréfasafnsins er ráðstafað til kaupa á
innlendum verðbréfasjóðum Lands-
bréfa, Öndvegisbréfum sem eru
eignarskattsfrjáls og Reiðubréfum
sem er skammtímasjóður og fært er
milli þessara sjóða eftir því sem þurfa
þykir. Því sem eftir stendur er ráð-
stafað í erlenda verðbréfasjóði í hlut-
falli við stærð hinna erlendu markaða.
Með því að setja hluta fjárfestingar-
innar í GRUNNVAL nýtur vinnings-
hafinn hinna fjölmörgu kosta AFL
sem taldir em upp hér á undan og auk
þess er innlendi hluti fjárfestingarinn-
ar eignarskattsfrjáls.
FJÖLVAL 30 M.KR. 60% safnsins
fjárfestingarinnar í Fjölval inniheldur
innlenda verðbréfasjóði og hlutfall er-
lendra verðbréfasjóða er því 40%.
Með FJÖLVAL eykur vinningshafinn
bæði ávöxtunarmöguleika sína og
áhættudreifingu í innlendum og er-
lendum verðbréfum. FRAMVAL 30
M.KR. 20% fjárfestingarinnar er að
jafnaði ráðstafað innanlands og skipt-
ing erlenda hlutans er í samræmi við
hlutfallslega stærð erlendu verð-
bréfamarkaðanna. FRAMVAL er
ætlað þeim sem vilja hámarka fjöl-
breytni í fjárfestingum sínum og taka
virkan þátt í alþjóðlegum verðbréfa-
viðskiptum. Með íjárfestingu í
FRAMVALI þarf vinningshafinn að
vera reiðubúinn að fjárfesta til langs
tíma og við því búinn að taka sveiflum
í verðmæti verðbréfasafnsins með
það í huga að ná aukinni arðsemi til
lengri tíma litið.
ÁHÆTTUFÉ 20 M.KR.
ÍSLENSK HLUTABRÉF 10
M.KR. Hlutabréf í viðurkenndum al-
menningshlutafélögum og jafnvel
nokkurn hluta í nýju þekkingarfyrir-
tæki. Áhersla er lögð á að dreifa
hlutafjáreigninni á nokkrar atvinnu-
greinar, t.d. sjávarútveg, flutninga-
starfsemi og þjónustu og ná þannig
virkri áhættudreifingu. Reynslan
sýnir að hlutabréf geta gefið töluvert
hærri ávöxtun en skuldabréf til lengri
tíma litið.
ERLENDIR VERÐBRÉFASJÓÐ-
IR 10 M.KR. Landsbréf eru umboð-
saðili bandaríska fyrirtækisins Alli-
ance, en sjóðir þess hafa verið efst á
lista yfir verðbréfasjóði sem náð hafa
hvað bestum árangri á alþjóðlegum
mörkuðum. Landsbréf mæla með að
vinningshafinn láti 4,5 m.kr. í eftir-
talda starfsgreinasjóði Alliance: Sam-
tals 1,5 m.kr. í Alliance International
Health Care Fund - fjárfesting í hluta-
bréfum í heilbrigðisþjónustu um allan
heim. Samtals 1,5 m.kr. í Alliance Int-
ernational Technology Fund - fjár-
festing í nýsköpun um allan heim.
Samtals 1,5 m.kr. í Alliance Global
Growth Trends Portfolio - fjárfesting
í vaxtarmöguleikum framtíðarinnar.
40