Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 31
Hreysti hf. fékk Russell Athletic-
umboðið árið ’90, en hefur auk þess
umboð m.a. fyrir Gilda Marx og Wei-
der. Russell Athletic er stærst
merkja umboðsins sem og Gilda
Marx. Weider-vörur voru aðallega
markaðssettar inn á heimilismarkað-
inn í gegnum fjölmiðla, í byrjun í
Morgunblaðinu og síðar í Sjónvarps-
vísi Stöðvar 2, auk þess sem fyrir-
tækið auglýsti í sjónvarpi. Russell At-
hletic var einnig markaðssett í gegn-
um fjölmiðla sem og í samvinnu við
Magnús Scheving þolfimimeistara.
Fyrirtækið auglýsti mikið, en 3-10%
af ársveltu fara í markaðssetningu og
auglýsingar. Samkvæmt Þórhalli
Jónssyni framkvæmdastjóra hefur
markaðssetning gengið vel með góð-
um stíganda auk þess sem sala hefur
verið góð frá upphafi. Þeir telja sig
framsækið fyrirtæki, sem sé óhrætt
við að auglýsa og sé opið fyrir nýjung-
um. Lykilatriði markaðssetningar
hafa m.a. verið að leggja áherslu á
notagildi, gæði og gott verð. Fram-
leiðandinn styður umboðið að vissu
marki, en auglýsingar og markaðs-
setning eru unnar innan fyrirtækis-
ins. Sala í dag hjá fyrirtækinu er mjög
góð, að mati Þórhalls, en fremsta
söluvaran er Russell Athletic og er
áhersla lögð á hana í sölu.
ÚTILÍF______________________________
Það má rekja aftur til 74, þegar
verslunin Útilíf tók að selja skíðavör-
ur á því tímabili þegar uppbygging í
Bláfjöllum átti sér stað í byrjun og má
segja að fyrirtækið spretti upp úr því.
í kjölfarið komu hesta-og veiðivörur,
en 80% vara í búð eru þó fatnaður og
skór. „Adidas voru helstu vörumar í
byrjun en síðar komu Nike, Reebok
og LA Gear. Adidas og Puma eru að
koma aftur í sölu,“ segir Bjarni
Sveinbjamarson í Útilífi. Önnur merki
í sölu hjá versluninni eru Lotto og
Diadora, sem þó em ekki afgerandi.
Nike kemur sterkt út í sölu, en sveifl-
ur eru í sölu á Reebok. Markaðssetn-
ing og auglýsingar verslunarinnar í
byrjun voru í gegnum útvarp, og gekk
það vel samkvæmt Bjarna, en áhrif
sjónvarpsauglýsinga voru ekki sterk
á þessum tíma. Samsetning útvarps-
B'örn klæðast
jogging-göllum.
Yngsta kynslóðin, í
gegnum foreldrana,
er sterkur
kaupendahóþur.
FaUegir og vandadir
Finnskir RUNWAY æfingagallar úr vatns- og vindheldu
microfiber öndunarefni. Tilvaldir trimm-, göngu- og
lilaupagallar. Bania- og fullorðinsstærðir í úrvali.
Útsölustaðir: Útilíf Glæsibæ • Sportbúð Kópavogs
Sportbúð Óskars Keflavík • Akrasport Akranesi
Sporthúsið Akureyri • Sport-Kringlan Kringlunni
31