Frjáls verslun - 01.05.1995, Qupperneq 20
NÆRMYND
Sigurður Gísli Pálmason, höfuð Hagkaupsfjölskyldunnar, í nærmynd:
r
HANN ER OHEFÐBUNDINN
EN VERÐUGUR ARFTAKI
Hann hefur veriö lítt áberandi ífjölmiðlum undanfarin ár. Engu að síður
gnæfir hann yfir miklu veldi. Hver er hann eiginlega?
igðurður Gísli Pálmason, höf-
uð Hagkaupsfjölskyldunnar,
hefur verið afskaplega lítt
áberandi í fjölmiðlum undanfarin ár.
Þótt umsvif fyrirtækisins hafi fætt af
sér hveija forsíðufréttina á fætur ann-
arri, t.d. eftir stofnun olíufélags og
kaup á helmingshlut í Bónus, er hann
h'tið gefmn fyrir athygli. Engu að síður
spyr fólk: Hver er eiginlega þessi Sig-
urður Gísli?
VERÐUGUR ARFTAKIPABBA SÍNS
Þegar Pálmi Jónsson, stofnandi
Hagkaups, veiktist og sonurinn Sig-
urður Gísli tók við fyrirtækinu gerð-
ust hlutirnir mjög fljótt, kannski full-
fljótt að mati sumra kunningja Sigurð-
ar. Skyndilega var hann orðinn höfuð
risafyrirtækis. En hann bjó að langri
Hann hefur unnið mikið að því að setja
sjálfum sér og fyrirtækinu langtíma-
markmið og það hefur verið mjög
gaman að fylgjast með honum takast á
við þessi verkefni. Þar skiptir miklu
að hann er afar vandvirkur og for-
dómalaus, alltaf til í að skoða málin frá
sem flestum sjónarhornum. Hann
spáir mikið í framtíðina og lætur hlut-
ina aldrei gerast af sjálfu sér, er alltaf
virkur þátttakandi. Hann er alls ekki
sú manngerð sem tekur bara úr kass-
anum eftir daginn og segir allt í góðu.
Hann axlaði geysilega ábyrgð mjög
ungur og hefur alveg staðið undir því.
Siggi er mjög meðvitaður um að önn-
ur eða þriðja kynslóð í viðskiptum
hefur stundum rifið allt niður sem
fyrsta kynslóðin hefur byggt upp og
einnig mjög meðvitaður um þá ábyrgð
IHann er alls ekki sú manngerð sem tekur bara
úr kassanum eftir daginn og segir allt í góðu.
Hann axlaði geysilega ábyrgð mjög ungur og
hefur alveg staðið undir því.
reynslu af störfum í Hagkaup. Hann
hafði lært af föður sínum að taka engu
sem gefnu og huga ætíð að framtíð-
inni; hvað tæki við.
„Það er mjög erfitt að taka við
svona stóru fyrirtæki og það þarf
sterk bein til að þola velgengni. En
Siggi hefur aldrei látið velgengnina
stíga sér til höfuðs. Hann talar aldrei
eins og einhver stórforstjóri, og er
með báða fætur á jörðinni," segir
gamall kunningi Sigurðar. Og fleiri
taka í sama streng.
„Það er ekkert sjálfgefið í lífi Sigga
þótt fyrirtækið sé stórt og mikið.
MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
sem á honum hvílir. Hann er verðug-
ur arftaki pabba síns,“ segir Páll
Dungal í Pennanum, einn af elstu vin-
um Sigurðar Gísla.
EKKIALINN UPP SEM PABBADRENGUR
Sigurður Gísli er fæddur í Reykja-
vík 13. ágúst 1954, sonur Pálma heit-
ins Jónssonar, stofnanda Hagkaups
og konu hans, Jónínu Sigríðar Gísla-
dóttur húsmóður. Hann er elstur
fjögurra systkina. Næstur er Jón,
sem stjórnar Hofi með Sigurði, Ingi-
björg Stefanía innanhúsarkitekt, og
Lilja Sigurlína nemi. Sigurður er
kvæntur Guðmundu Helenu Þóris-
dóttur klæðskera. Hún er dóttir Þóris
Jónssonar verslunarmanns og Hönnu
Bjargar Felixdóttur húsmóður.
Hér skal ekki farið út í ættfræði en
gaman er að geta þess að Tómas
Tómasson veitingamaður býr með
Ingibjörgu Stefamu. Þá eru Sigurður
og Siguijón Sighvatsson, kvikmynda-
framleiðandi í Hollywood, svilar en
Sigurjón er kvæntur Sigríði Jónu,
systur Guðmundu.
Þegar Sigurður Gísli var strákur
bjó fjölskyldan í blokk í Álfheimum og
hann gekk í Langholtsskóla. Hann var
annars í sveit á sumrin og vann sem
sendill í fyrirtækinu. Þótt Pálmi faðir
hans, ávallt kenndur við Hagkaup,
yrði síðar einn auðugasti maður
landsins, var barningur á heimilinu
fyrstu árin. Eftir að rést hafði úr kútn-
um og fyrirtækið var farið að skila
vænum arði lifðu foreldrar hans aldrei
hátt né bárust á. Það sama var uppi á
teningnum í uppeldinu. Sigurður var
aldrei alinn upp sem pabbadrengur.
Hann fór í MR en skólavistin þar
gekk ekki átakalaust fyrir sig. Hann
hefur lýst sjálfum sér sem gæruúlpu-
komma á þeim tíma. Komst í and-
stöðu við kerfið, sagði sig úr skóla og
tók stúdentspróf utanskóla á „rétt-
um“ tíma, árið 1974. Á menntaskóla-
árunum fór hann fyrst til útlanda.
Safnaði sér sjálfur fyrir ferð til Þýska-
lands með vinnu í járnsmiðju. Þar
vann hann í bjórverksmiðju ásamt
Árna Sigurjónssyni, seinna hjá Svörtu
og hvítu og Máli og menningu.
Eftir stúdentspróf lá leiðin til Lon-
don, í verlsunarfræði við Polytechnic
20