Frjáls verslun - 01.05.1995, Qupperneq 22
NÆRMYND
því sem honum hefur verið treyst
fyrir.“
Menn skyldu ætla að það þurfi
harðan og töff stjómanda til að stýra
jafn miklu veldi og fyrirtæki Hag-
kaupsfjölskyldunnar eru. EnSigurður
Gísli er langt frá því að vera harðnagli
í viðskiptum, þótt hann sé ákveðinn
og fastur fyrir. Honum er lýst sem
mjög opnum og fordómalausum við-
semjanda. Hann er ákveðinn og fast-
ur fyrir, ef því er að skipta, en hengir
sig ekki á prinsipp prinsippanna
vegna. Með skiptingunni í undirfýrir-
tæki hefur Sigurður Gísli íjarlægst
alla daglega stjómun og er ekki að
atast í samningum um aflslætti eða
slíkt. Hann annast stefnu- og skipu-
lagsmál fyrirtækisins til lengri tíma.
Hann skoðar hlutina í víðu samhengi,
ekki einungis samhengi augnabliks-
ins. En daglegt amstur kemur engu
að síður inn á hans borð og bera við-
siptavinir og viðsemjendur hans hon-
um vel söguna.
Páll Kr. Pálsson, forstjóri Sólar,
hefur kynnst Sigurði ágætlega sem
stór viðskiptavinur Hagkaups, fyrst
hjá Vífilfelli og síðan hjá Sól.
„Sigurður er mjög opinn og reiðu-
búinn að hlusta á önnur sjónarmið.
Þótt hann hafi tekið stefnumarkandi
ákvörðun í einhveiju máli er hann
engu að síður reiðubúinn að hlusta á
helstu rökin gegn þeirri ákvörðun,
hann leyfir manni að tappa af. Hann er
sanngjarn og tilbúinn að endurskoða
ákvarðanir sínar í Ijósi breyttra að-
stæðna. En gefi hann sig ekki er auð-
veldara að sætta sig við það en ella
þar sem hann hefur gefið sér tíma til
að hlusta á mótrökin og ræða þau. Þú
færð aldrei á tilfinninguna að þú sért
að pranga viðhorfum þínum inn á Sig-
urð Gísla. Það er ótvíræður kostur.
En ókosturinn er hins vegar að hann
vill helst ekki láta „bögga“ sig með
smávandamálum, maður kemst ekki
alltaf að honum.“
Þótt vitnisburður samferðamanna
sé undantekningarlítið á afar jákvæð-
um nótum er þess reyndar getið að
Sigurður Gísli geti orðið mjög kaldur
og harður, sérstaklega ef hann reið-
ist. Mikið þurfi þó að hafa gengið á
áður en hann sýnir á sér þá hlið.
HUGLEIÐSLA OG MANNLEG GILDI
Sigurður Gísli er áhugamaður um
jóga og líkamsrækt. „Áhuginn á jóga
hófst þegar við vorum að æfa líkams-
rækt í líkamsræktarstöðinni World
Class, eldsnemmaámorgnana, Siggi,
Guðni (Guðmundsson), Tommi í
Hard Rock og fleiri. Við fórum að
kynna okkur hugleiðslu meðfram líka-
msræktinni og fórum saman á nám-
skeið. Þá kynntumst við Kripalujóga.
Við heimsóttum meira að segja mið-
stöð þess í Massachusetts í Banda-
ríkjunum og leist mjög vel á. Upp úr
því ákváðum við að hittast einu sinni í
viku, gera jógaæfingar, iðka hug-
leiðslu og ræða málin,“ segir Jón
Ágúst Guðjónsson, kerfisfræðingur
og einn af stjómendum jógastöðvar-
innar Heimsljóss í Skeifunni.
Heimsljós varð til upp úr áhuga
þeirra félaga og var Sigurður Gísli
primus mótor í stofnun þess. Fengnir
voru jóga- og hugleiðslukennarar til
landsins og áhuginn var mikill. En Sig-
urður lét ekki staðar numið við eigin
hag af ástundun jóga heldur fékk hann
kennarana til að halda námskeið með
starfsfólki Hagkaups með það fyrir
augum að kenna ýmislegt sem varð-
aði ræktun hugans, mannleg sam-
skipti og fundarstjóm. Sigurður inn-
leiddi þar með nýja vídd í stjórnun hér
á landi. Nutu fleiri fyrirtæki góðs af
leiðsögnkennaranna, t.d. Eimskipog
Hekla. Þykir þetta framtak gott dæmi
um þá tilfinningu sem hann hefur fyrir
að leita nýrra og óhefðbundinna leiða.
Gurudev, sem kalla má helsta boð-
bera eða kennara Kripalúgjógans,
lýsti yfir áhuga á að koma til landsins
og sjá hvað menn væru að gera hér.
Sigurður sá um að taka á móti honum
og útvega honum húsnæði meðan á
dvöl hans stóð. Gurudev hreifst mjög
af starfmu og hefur hann síðan komið í
þrjár heimsóknir hingað til lands. Þó
Sigurður skipti sér ekki beint af
rekstri Heimsljóss í dag, en um það
sjá hæfir einstaklingar, þá stundar
hann enn hugleiðslu og hkamsrækt.
VELST UM AF HLÁTRI
Nú gætu menn haldið að Sigurður
Gísli Pálmason sé hálfheilagur maður
sem vinir og kunningjar keppast um
að lofsyngja. Lítið fer fyrir neikvæðri
umræðu þegar Sigurð Gísla ber á
góma. En þar með er ekki sagt að
hann sé umvafinn einhverri helgi-
slepju. Öðru nær.
Sigurður Gísli þykir manna
skemmtilegastur og nýtur sín hvergi
betur en í góðra vina hópi. Meðal
góðvina hans eru Páll Dungal, Guðni
Pálsson og Fjalar Kristjánsson lyfja-
fræðingur. Þeir félagar eru saman í
matarklúbbi ásamt mökum.
„Það eru fáir sem segja sögur og
brandara betur en Siggi, enda mikill
húmoristi. Og ekki sakar að hafa
fengið sér ofurlítið „í tána“. Fólk velt-
ist hreinlega um af hlátri þegar hann
er kominn í stuð. Svo er líka stutt í
stráksskapinn," segir Páll Dungal.
Þau hjón Sigurður og Guðmunda,
Páll og Óskar Magnússon, forstjóri
Hagkaups, héldu upp á fertugsafmæli
sín í fyrra og slógu saman í eina, helj-
arstóra veislu sem lengi verður í
minnum höfð.
„Okkur fannst nóg komið af þess-
um endalausu kokkteilboðum og
lögðum töluvert á okkur til að halda
virkilega stórveislu. Hún var haldin í
gamla lagerplássi Ikea við Fellsmúla
og ekkert til sparað. Þar var mikið
húllumhæ sem við lifum enn á. Það
þyrfti að halda svona veislu á hverju
ári,“ segir Óskar.
Sigurður Gísli hefur gaman af því
að hafa líf í tuskunum. í því sambandi
má geta þess að hann var ein aðal-
sprautan á bak við uppfærslu Litlu
Hryllingsbúðarinnar í Gamla bíói 1984
ásamt þeim Sigurjón Sighvatssyni og
Páli Baldvini Baldvinssyni. Og enn
meira rokk. Hann studdi Tómas
Tómasson með ráðum og dáð þegar
sá síðarnefndi vOdi opna veitingastað-
inn Hard Rock í Kringlunni. Sigurður
vildi endilega fá Hard Rock Café til
IÞað voru margir hissa á þessum
forstjóralótusstellingum Sigga. En það eru
ákveðin mannleg gildi sem hann hefur tekið
méð sér úr þessari ástundun inn í fyrirtækið og
mjög áhugavert að stúdera þau.
22