Frjáls verslun - 01.05.1995, Page 23
Pálmi heitinn Jónsson, faðir Sigurðar Gísla. Sig-
urður lærði af föður sínum að taka engu sem
gefnu og huga ætíð að framtíðinni.
Islands og var í sambandi við
eiganda þess út af þeim málum.
Þeir kynntust þá ágætlega og
eru kunningjar enn í dag.
UÓÐELSKUR FAGURKERIOG
FÍNN í TAUINU
Sigurður er annars prívat-
manneskja sem nýtur sín afar
vel langt frá erli og skarkala
dagsins. Hann nýtur þess að
vera í fríum og slappar þá mjög
vel af. Hann er ekki þessi ömi-
um kafna týpa sem alltaf þarf að
vera að.
Dæmigert áhugamál kannast
vinir hans ekki við en hann er þó
farinn að eiga við dæmigert
strákasport, að veiða lax. En
fæstir vita að Sigurður hefur
mikinn áhuga á ljóðum, sérstaklega
spænskum ljóðum. Hann er ræðis-
maður Spánverja á Islandi. Tók hann
við af Ingimundi Sigfússyni, sem nú
er sendiherra í Bonn.
Sigurði er annars lýst sem miklum
fagurkera og sérstökum áhugamanni
um föt.
„Sigurður er mjög vel inni í tísku og
hefur skapað sinn sérstaka fatastíl, er
svolítið á undan og ekki laust við
að hann sé djarfur á stundum.
Hann er ekki í þessum hefðbunda
lögfræðingastíl, heldur meira í átt
að listum,“ segir Guðni Pálsson.
Sigurður hefur auðvitað átt
góðan fataráðgjafa í eiginkonu
sinni, Guðmundu, sem er klæð-
skeri.
Sigurður er mjög grannholda
og hefur gefið fólki tilefni til að
halda að hann sé grænmetisæta.
En í þeim efnum sem öðrum lætur
Sigurður ekki stjómast af stífum
prinsippum. Hann er þó mikið
fyrir léttan mat. A meðan sumir
moka í sig ofelduðum mötuneytis-
mat eða hamborgurum í hádeginu
fær hann sér gufusoðinn fisk.
Vinnudagur hans er langur.
Hann er oft erlendis að plægja ak-
urinn fyrir framtíðina. Vatnsútflutning-
ur er eitt af áhugamálum Sigurðar. Þótt
ekki hafi blásið byrlega í þeim efnum til
þessa virðist nú loks vera að rofa til í
þeim efnum.
rra Framfarir með tækni nnfiD I
HEKLA ■ -ti/Áei/Xci' 6exf.' 1 Laugavegi 170-174, sími 569 5500 Reynsluakið nýjum Audi Auði |