Frjáls verslun - 01.05.1995, Page 46
FJARMAL
Grundvallarreglan í kapítalísku þjóðfélagi er að fjármagni fylgi réttur til valda. Út frá
þeirri reglu er réttur lífeyrissjóða og hlutabréfasjóða, svonefndra stofnanafjárfesta,
til að setjast ístjórnir hlutafélaga skýr. Þeir hafa vald eins og hverjir aðrir eigendur
fjármagns. Spurningin er hins vegar hvort þeir eigi að nýta sér valdið; og þá
kannski öllu frekar - hvenær.
LÍFEYRISSJÓUR VERSLUNARMANNA TÓK ÞÁTT í
KOSNINGUM í ÍSLANDSBANKA
En takið eftir! Þótt almenna reglan sé afskiptaleysi af
stjórnarkjöri og setu í stjómum hlutafélaga reyndi hins
vegar nýlega á undantekninguna. Það var þegar Lífeyris-
sjóður verslunarmanna tók þátt í kosningu til bankaráðs á
aðalfundi íslandsbanka í vor. Raunar tók bankinn einnig
þátt í kosningu til bankaráðs á aðalfundi bankans í fyrra.
Sjóðurinn lætur setu í bankaráðinu sig varða en hann á þar
tæplega 10% hlut.
Því má skjóta hér inn í að sjóðurinn setti öll atkvæði sín á
sinn fulltrúa í kosningunum í
íslandsbanka. Það atkvæða-
magn, eitt og sér, dugði til að
hann næði kjöri í bankaráð.
Sjóðurinn kaus því hvorki
aðra sem voru í kjöri né
þurfti á atkvæðum annarra
hluthafa að halda til að koma
sínum manni að.
Það er stjómarmaður í líf-
eyrissjóðnum, Guðmundur
H. Garðarsson, sem situr í
bankaráði Islandsbanka og
hefur gert frá því bankinn hóf
starfsemi sína í byrjun ársins
1990. Þar áður sat Guð-
mundur í stjórn Verslunar-
banka fslands sem var einn
þeirra fjögurra banka sem
sameinaðir voru í íslands-
banka. Guðmundur er fyrrum þingmaður og hefur verið
forystumaður innan Verslunarmannafélags Reykjavíkur
og Lífeyrissjóðs verslunarmanna um árabil.
Enþrátt fyrir áhuga á að koma manni að í stjórn banka-
ráðs Islandsbanka hefur Lífeyrissjóður verslunarmanna
sýnt öðrum hlutafélögum, sem sjóðurinn á í, afskiptaleysi
hvað stjórnarsetu varðar. Hann á raunar í flestöllum hluta-
félögum sem skráð eru á almenna hlutabréfamarkaðnum.
Þannig á sjóðurinn ekki fulltrúa í aðalstjóm Flugleiða, þar
sem hann á 6,6%, og Eimskip, 4,2%.
LÍFEYRISSJÓÐIR MEÐ MANN
í VARASTJÓRN FLUGLEIÐA
Að vísu situr forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna,
Þorgeir Eyjólfsson, í varastjórn Flugleiða og sem formað-
ur stjórnar Þróunarfélags íslands. En þar situr hann ekki
fyrir hönd Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Eftir að lífeyris-
sjóðir innan Sambands almennra lífeyrissjóða keyptu
stærstan hluta eignar Sigurðar Helgasonar, fyrrum for-
stjóra og stjómarformanns Flugleiða, í Flugleiðum fyrir
nokkrum árum var sú staða komin upp að lífeyrissjóðir
áttu samtals um 13 til 14% hlut í félaginu. Þar af átti
Lífeyrissjóður verslunarmanna tæpan helming.
ÞORGEIR EYJÓLFSSON,
LÍFEYRISSJÓÐIVERSLUNARMANNA
„í ljósi svo stórs eignahlutar lífeyrissjóðanna í félaginu
töldu menn það eðlilegt að sjóðirnir sem heOd ættu fulltrúa
í varastjórn félagsins. Ég sé ekkert athugavert við það að
sjóðir með svo stóran hlut vilji líta eftir fjármunum sínum
með beinum hætti,“ segir
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri
Lífeyrissjóðs verslunar-
manna.
- En hvers vegna ekki að
eiga fulltrúa í Eimskip þar
sem Lífeyrissjóður verslun-
armanna er þriðji stærsti
hluthafinn, með 4,2% hluta-
þár?
„Við teljum að stærð
eignahluta okkar kalli í sjálfu
sér ekki á aðkomu að stjórn
þess félags.“
Fram hefur komið að Þor-
geir er formaður stjórnar
Þróunarfélags íslands en tólf
lífeyrissjóðir keyptu þar hlut
ríkisins fyrir nokkrum árum.
Samanlagt eiga sjóðirnir um
38% hlutafjárins í Þróunarfélaginu, þar af á Lífeyrissjóður
verslunarmanna stærstan hluta, um 9%. Þorgeir, sem er
formaður Landsambands lífeyrissjóða, segist sitja þar sem
fulltrúi lífeyrissjóðanna allra fremur en sem fulltrúi Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna.
HLUTABRÉFASTEFNA LÍFEYRISSJÓÐS
VERSLUNARMANNA
Að sögn Þorgeirs hefur Lífeyrissjóður verslunarmanna
almenna hlutabréfastefnu en ekki sértæka gagnvart ein-
staka félögum. „Við höfum ákveðna hlutabréfastefnu sem
við höfum sett niður á blað. En við höfum ekki sett hana
niður á blað gagnvart einhverjum tilteknum, ákveðnum
hlutafélögum. Það stendur hins vegar skýrum stöfum að
ef aðstæður og eignarhlutur sjóðsins kalla á afskipti þá
munum við beita áhrifum okkar hvort heldur með því að
tilnefna menn í stjórnir úr eigin röðum sjóðsins eða leita út
á við, allt eftir mati og aðstæðum á hverjum tíma.“
Hann segir ennfremur um hlutabréfastefnu Lífeyris-
Hlutabréfaeign lífeyrissjóða
Lífeyrissjóðir landsins eiga um 4,2 milljarða króna í
hlutabréfum. Lífeyrissjóður verslunarmanna er með
langstærsta hlutann eða um 1,2 milljarða.
46