Frjáls verslun - 01.05.1995, Side 52
KYNNING
r F ffn^rn
r '' ÍJ lpj "1
‘ !
— íli
-r; u ■ L 1 1
Kirkjubæjarklaustur. Opið allt árið. Hótelið er hentugt fyrir ráðstefnur.
ATJAN EDDUHOTEL
Nýja hótelið á Kirkjubæjarklaustri, er opiö allt áriö. Þar
Hótelrekstur Ferðaskrif-
stofu Islands er umtalsverð-
ur. Fyrirtækið rekur alls 18
Edduhótel um allt land í sum-
ar en 16 þeirra eru eingöngu
opin á sumrin. Hótelið á
Hvolsvelli og nýja hótelið á
Kirkjubæjarklaustri, flagg-
skip Edduhótelanna, eru op-
in árið um kring. Flaggskipið
á Klaustri nýtur mikilla vin-
sælda, ekki síst undir fundi
og ráðstefnur á vetuma.
Þangað eru 260 kílómetrar
frá Reykjavík. Vegurinn er
bundinn slitlagi.
Nýja Edduhótelið á Kirkju-
bæjarklaustri var tekið í
notkun í tveimur áföngum,
sá fyrri árið 1993 en sá seinni
síðastliðið sumar. Þar eru 57
nýtískuleg og vel búin
tveggja manna herbergi með
baði, síma, sjónvarpi og út-
varpi. 21 herbergi er einnig
búið sjónvarpi.
Karl Rafnsson, hótel-
stjóri á Edduhótelinu á
Kirkjubæjarklaustri, segir
að þar séu veitingasalur,
sem rúmi 150 manns í sæti
og setustofu, og vistlegur
bar sem tengist salnum.
Salnum megi skipta í tvennt
og henti hann því vel til ráð-
stefnuhalds.
„Auk þess erum við með
um 20 manna sal sem hent-
ar vel fyrir smærri fundi.
Við höfum orðið vör við
aukna nýtingu á þessari að-
stöðu frá því hún komst í
gagnið, ekki síst í vetur.
Hingað er nær undantekn-
ingalaust greiðfært allan
veturinn."
Fyrstu Edduhótelin voru
opnuð í Menntaskólanum á
Laugarvatni og í Mennta-
skólanum á Akureyri fyrir
35 árum. Lengi vel var aðst-
aðan á hótelunum mjög ólík
því sem nú er. Þá setti fólk
stundum samasemmerki
milli Edduhótelanna og
kaldranalegra heimavista
þar sem þægindi voru af
skornum skammti og rúmin
kannski of lítil. En með
auknum kröfum ferða-
manna nútímans, bæði inn-
lendra og erlendra, hafa
verið gerðar víðtækar end-
urbætur á húsnæði og bún-
aði hótelanna.
MYNDIR: SNORRISN0RRAS0N, LÁRUS KARL O.FL.
52