Frjáls verslun - 01.05.1995, Síða 61
FOLK
BÁRA MAGNÚSDÓTTIR, JAZZBALLETTSKÓLA BÁRU
„Starfsemi Jazzballett-
skólans er nú öll komin und-
ir eitt þak en við festum ný-
lega kaup á húsnæði í Lág-
múla þar sem eru þrír salir
og góð aðstaða. Það var
kominn tími til að flytja úr
Stigahlíðinni en þar hefur
skólinn verið til húsa í 28 ár,
frá því hann var stofnaður
árið 1967,“ segir Bára
Magnúsdóttir, eigandi
Jazzballettskóla Báru.
Bára er 48 ára. Hún hóf
dansnám í Ballettskóla
Þjóðleikhússins þegar hún
var 7 ára og stundaði námið
af kappi til 16 ára aldurs. Þá
fór hún til London og stund-
aði nám í tvö ár í Art Educat-
ional School þar sem kennd-
ur var nútímaballett og
áhersla lögð á skapandi dans
og sviðsdans.
„Síðasta veturinn í Þjóð-
leikhússkólanum var hér
kennari frá Art Educational,
Elísabet Hudson, og hún
benti mér á að fara þessa
leið. Mér leist ekkert á það
fyrst, því mig langaði að
halda áfram í klassískum
ballett, en fljótlega kom í
ljós að þessi leið var farsæl
fyrir mig. Hún leiddi mig inn
á þá braut sem ég hef verið á
síðan,“ segir Bára um upp-
haf ferils síns. Þegar hún
kom heim kenndi hún í einn
vetur í Ballettskóla Sigríðar
Ármann en stofnaði eigin
skóla 1967.
LÍKAMSRÆKTIN STYÐUR
BALLETTKENNSLUNA
„Starfsemi skólans hefur
vaxið og dafnað jafnt og
þétt. Ég hef útskrifað marga
nemendur með jassballett-
kennarapróf og getað veitt
nokkrum þeirra vinnu. Það
var mikill áfangi þegar ég
gat sýnt foreldrum fram á að
hægt væri að hafa atvinnu af
jassballettkennslu því auð-
vitað veltir fólk framtíðinni
fyrir sér þegar það setur
börn sín í slíkt nám,“ segir
Bára og nefnir að hún hafi
lengi þurft að berjast fyrir
því að fá viðurkenningu á
þessari tegund danslistar.
Það tók hana 17 ár að kom-
ast í félag danskennara en
nú situr hún í stjórn Dans-
ráðs íslands.
„Til þess að skapa rekstr-
argrundvöll undir jassball-
ettkennsluna fórum við
fljótlega af stað með líkams-
rækt fyrir konur. Sú starf-
semi hefur notið mikilla vin-
sælda og gerir okkur kleift
að stunda metnaðarfulla
kennslu í jassballett. Um
tíma starfræktum við dans-
flokk og settum upp sýning-
ar en höfðum ekki bolmagn
til að standa undir starfsem-
inni. Við höfum aldrei fengið
opinberan styrk en nem-
endur frá okkur hafa starfað
sem atvinnudansarar bæði
hér heima og erlendis,“
segir Bára.
ÍSLENSK NÁTTÚRA
GEFUR KRAFT
Eiginmaður Báru er
Ágúst Schram, starfsmaður
hjá Vélum og þjónustu, og
eiga þau 12 ára dóttur. Bára
á einnig 29 ára og 17 ára syni
frá fyrra hjónabandi og
Ágúst á tvær dætur frá
fyrra hjónabandi.
„Áhugamál mitt er fyrst
og fremst dans og ég eyði
mikilli orku og tíma í vinn-
una. Ég sé sjálf um skrif-
stofuhald, auk kennslunnar,
svo vinnutíminn er oft lang-
ur,“ segir Bára en segist þó
alveg sátt við frítímann. Hin
eiginlega jassballettkennsla
fer fram á veturna en á
sumrin er minna um að
vera.
„Ég hef mikla ánægju af
að vera með fjölskyldunni,
t.d. að fara út úr bænum og
heimsækja vini okkar í
sveitinni. íslensk náttúra
veitir svo mikla andagift og
gefur manni kraft til áfram-
haldandi starfa. Hesta-
mennska hefur alltaf verið í
kringum mig og ég hef gam-
an af að skreppa á hestbak.
Ég bý við sjóinn og hef gam-
an af að sigla á lítilli bátsskel
með utanborðsmótor sem
ég á. Sjórinn hefur alltaf
heillað mig,“ segir Bára að
lokum.
61