Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1995, Síða 65

Frjáls verslun - 01.05.1995, Síða 65
bera skyldur og fjárframlög til þeirra eru sýnileg í formi hækkunar á hluta- fé. Einnig er nauðsynlegt að ríkið geri ákveðnar arðsemiskröfur til fyrir- tækja sinna. 4. FREKARIHREINGERNING í SKATTAKERFINU Frumskilyrði skattlagningar er að skattkerfið sé einfalt, skilvirkt og hlutlaust. Skattstofnar verða að vera skýrt afmarkaðir og með sem fæstum undanþágum og skatthlutföll sem lægst. Framangreint tryggir betur skattskil heldur en kröfur um aukið eftirlit og strangari viðurlög. Á und- anfömum árum hafa verið stigin stór skref í að gera skattkerfið vinsam- legra atvinnurekstri. Nokkrar frekari lagfæringar gætu falist í eftirfarandi: a) Afnám eða veruleg lækkun eigna- skatta af fyrirtækjum. Víðast í nágrannalöndum okkar em ekki lagðir eignaskattar á fyrirtæki. b) Til að gæta jafnræðis á milli at- vinnugreina þarf að samræma tryggingargjald í einu skattþrepi. c) Leggja ber áherslu á að lækka virðisaukaskattshlutfall og hafa einungis eitt skattþrep. d) Rýmka þarf reglur um yfirfæran- legt tap á milli ára en ekki þrengja eins og þróunin hefur verið að undanfömu. INoregiert.d. heim- ilt að geyma tap í allt að 10 ár. Með því væri tekið tillit til þess hversu sveiflukennt íslenskt efnahagsk'f er og jafnframt væri fyrirtækjum gert kleift að byggja upp eigið fé eftir langvarandi erfiðleika í rekstri. e) Setja þarf í skattalög hvata til þátt- töku í atvinnustarfsemi, rann- sókna- og þróunar og til útflutn- ingssóknar. f) Breyta þarf skattlagningu ein- staklinga í atvinnurekstri til sam- ræmis við það sem tíðkast um aðra atvinnustarfsemi. 5. VINNUMARKAÐUR Endurskoða þarf vinnulöggjöfma með það fyrir augum að koma í veg fyrir að fámennir hópar geti stöðvað heilar atvinnugreinar. Setja þarf ákvæði um að starfsemi fyrirtækis verði ekki stöðvuð nema tiltekinn lág- marksfjöldi (hlutfall) starfsmanna sé því samþykkur. Kveða þarf skýrt á um það hvernig kjarasamningar skuli samþykktir, einkum hvaða lágmarks- þátttöku þarf til þess að þeir verði felldir. Met í verkfallsdögum ber vott um aga- og stjórnleysi á vinnumarkaði og eykur ekki samkeppnishæfni ís- lensk atvinnulífs eða laðar til landsins erlenda fjárfesta. 6. EIGIÐ FÉ FYRIRTÆKJA OG ERLENDAR FJÁRFESTINGAR Mikilvægt er að styrkja eiginfjár- stöðu íslenskra fyrirtækja og gera þau stæltari vegna sífellt aukinnar al- þjóðlegrar samkeppni. Slíkt gerist bæði með því að fyrirtækjunum verði sköpuð jákvæð rekstrarskilyrði og einnig með því að almenningi verði auðveldað að gerast beinir þátttak- endur í atvinnulífmu með kaupum á hlutabréfum, t.a.m. með því að rýmka ákvæði um skattlagningu sölu- hagnaðar af hlutabréfum. Til að efla eigið fé íslenskra fyrirtækja og opna ný tækifæri þarf að koma til erlent áhættufjármagn. Með erlendri fjár- festingu aukast umsvif efnhagslífsins og fjölbreytni í atvinnulífinu vex. At- vinnutækifærum fjölgar og skatt- stofnar breikka. Hið algera bann við erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi orkar orðið mjög tvímælis. 7. INNLEIÐA SAMKEPPNISHUGSUN í MENNTAKERFINU Menntun verður sífellt mikilvægari fyrir samkeppnishæfni fyrirtækja og þjóða. Til að vera sem best undirbúin undir alþjóðlega samkeppni þarf menntun íslenskra ungmenna að vera síst lakari og helst betri en tíðkast erlendis. í því skyni þarf að verða áherslubreyting í menntamálum- .Auka þarf tengsl við atvinnulífið og innleiða kosti samkeppnishugsunar. Þá þarf að nýta betur tíma og fjár- magn sem varið er til þessara mála s.s. með lengingu skólaárs og skóla- tíma. Hér hefur aðeins verið tæpt á nokkrum atriðum sem ég tel brýnt að stjórnvöld taki til skoðunar þannig að áfram haldi uppbygging og framþróun íslensks atvinnulífs sem er undirstaða velmegunar og betra mannlífs á ís- landi. 65

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.