Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1996, Page 17

Frjáls verslun - 01.05.1996, Page 17
ARTHUR TREACHER’S Arthur Treacher’s er keðja 134 skyndibitastaða, sem selur nær eingöngu fiskrétti, og er þriðja stærsta keðja fiskskyndibitastaða í Bandaríkjunum - á eftir Long John Silver og Captain D’s. Arthur Treacher’s á sér sérstæða sögu en fyrirtækið var stofnað árið 1968 af nokkrum gamanleikurum. Þeirra þekktastir eru Bob Hope og Merv Griffin. Sjálfur höfuðpaurinn var hins vegar Arthur Treacher, breskur gamanleikari sem vildi með skyndibitastöðum kynna Bandaríkjamönnum hina sígildu bresku hefð; að borða djúpsteiktan fisk og franskar kartöflur. nokkrum frægum skemmtikröftum, meðal annars hinum geysivinsæla Bob Hope. Athur Treacher’s er keðja 134 skyndibitastaða, sem selur nær eingöngu fiskrétti, og er þriðja stærsta keðja fiskskyndibitastaða í Bandaríkjunum - á eftir Long John Silver og Captain D’s. JIM CATALAND KEYPTUR ÚT Yfirtaka íslensku og bandarísku fjárfestanna fólst í því að kaupa stærsta hluthafann, Jim Cataland, út úr fyrirtæk- fjm Æ w. K I ■Hi \m • j J Guðmundur Franklín og Skúli Þorvaldsson standa hér við merki Arthur Treacher’s við aðalstöðvar fyrirtækis- ins í Jacksonville í Flórída í Bandaríkjunum. inu. Hann átti 25% hlut sem keyptur var á um 1,2 milljónir dollara, eða um 80 milljónir króna. Hvert bréf var keypt á 60 cent. í sjálfu sér er þetta engin stórkostleg fjárfesting - ekki einu sinni á íslenskan mælikvarða - en mjög athyglis- verð engu að síður. Samhliða yfirtökunni var hlutafé fyrirtækisins aukið um 2 milljónir hlutabréfa, eða úr 8 milljónum hlutabréfa í 10 milljónir bréfa. Hóparnir tveir keyptu þessa viðbót á 1,2 milljónir dollara, eða á sama verði og þeir gáfu fyrir hlut Catalands. Samtals keyptu hóparnir því hlutabréf í fyrir- tækinu fyrir um 2,4 milljónir dollara, eða um 160 milljónir WmmœmmmWOmiimmMmœmmiWammmmmWWMm króna. Síðan þá hefur verð bréfanna hækkað verulega þannig að við fyrstu sýn virðist um afar góð kaup að ræða. Hlutabréf eru hins vegar langtímafjárfesting. 31FJÁRFESTIR í ÍSLENSKA HÓPNUM 31 fjárfestir er í íslenska hópnum sem er undir forystu Guðmundar Franklíns og Skúla Þorvaldssonar. Skúli er núna varaformaður stjómar fyrirtækisins en formennskan er í höndum Bruce GaUoway. í íslenska hópnum eru 4 íslenskir lífeyrissjóðir, 5 íslensk fyrirtæki og 22 lögskráðir einstaklingar. Eignaraðild er dreifð. Enginn einn hluthafi á 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.