Frjáls verslun - 01.05.1996, Blaðsíða 38
SKOÐUN
Nýkjörinn formaöur Félags íslenskra feröaskrifstofa:
FERPflSKRI FSTOFU M
FJÖLGAR ÚR 27 í UM
500 Á SKÖMMUM TÍMA
Þaöþarfaö breyta ákvxöum í lögum og reglugerö um feröaskrifstofur áþann
veg aö hafa aöeins eina tegund leyfis fyrir feröaskrifstofur
ann 16. september 1994 var
breyting á lögum um skipulag
ferðamála undirrituð af forseta
íslands. Lagabreytingin var sam-
þykkt af Alþingi án þess að Félag ís-
lenskra ferðaskrifstofa fengi tækifæri
til umsagnar um lögin. í félaginu eru
Flugleiðir og flestar stærstu ferða-
skrifstofur landsins. Ferðaskrifstof-
ur, sem eru aðilar að FÍF, standa að
um 85% af öllum erlendum ferða-
mannastraumi hingað til lands og enn
hærra hlutfalli af ferðum íslendinga til
útlanda.
Undirbúningur að reglugerð í kjöl-
far laganna var hafinn í samgöngu-
ráðuneytinu sama haust. Eftir mikinn
þrýsting fékk FÍF send drög að þess-
ari reglugerð. Kom þá í ljós að starfs-
umhverfi í ferðaþjónustu myndi
breytast verulega yrði reglugerðin að
veruleika vegna þess að fyrirhugað
SKILABOB
TIL STJÓRNVALDA
Sigurjón Þór Hafsteinsson
var að hafa íjórar tegundir leyfa til
ferðaskrifstofureksturs. FÍF var
þessu mjög mótfallið og var fundað
með ráðuneytismönnum þar sem full-
trúar FÍF mótmæltu og rökstuddu af-
stöðu félagsins. Reglugerðinni var
breytt á þann veg að leyfum til rekst-
urs ferðaskrifstofu var fækkað úr
fjórum flokkum í tvo, þ.e. A og B
leyfi, þvert gegn vilja FÍF sem lagði
áherslu á aðeins eina tegund leyfis til
ferðaskrifstofureksturs. Mismunur á
milli A og B leyfis er sá í aðalatriðum
að fyrir B leyfi þarf aðeins milljón í
tryggingu en fyrir A leyfi þarf 10 millj-
ónir. A leyfi veitir rétt til útgáfu far-
seðla og rétt til að selja íslendingum
ferðir til útlanda.
AFLEIÐINGAR LAGANNA
Lögin um skipulag ferðamála,
ásamt lögum um alferðir frá 1994,
skylda aðila, sem vilja selja fyrirfram
ákveðna þjónustupakka á heildar-
verði sem eru samsettir úr tveimur
eða fleiri þjónustuþáttum og taka
lengri tíma en 24 klukkustundir eða
innifela gistingu, að stofna ferðaskrif-
stofu með B leyfi. Dæmi: Aðila, sem
selur manni gistingu og afþreyingu,
er skylt að verða sér úti um ferða-
skrifstofuleyfi, annars er hann ólög-
legur. Það að skylda alla, sem veita
þjónustu til erlendra ferðamanna til að
stofna ferðaskrifstofu, tel ég ekki
rétt. Útlendingar líta á ferðaskrif-
FERÐASKRIFSTOFULEYFI ER GÆÐASTIMPILL
Það, að skylda alla, sem veita þjónustu til erlendra ferðamanna, til að stofna
ferðaskrifstofu, tel ég ekki rétt. Útlendingar líta á ferðaskrifstofuleyfi sem
ákveðinn gæðastimpil þar sem saman fara kunnátta, ákveðinn lágmarksfjöldi
starfsmanna og góðar tryggingar.
MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR