Frjáls verslun - 01.05.1996, Blaðsíða 48
SIGURSÆLIR KJOHflNAÐARMENN
/! í !
Kjötíðnaðarmennirair í Afurðasölu Borgamess eru sigursælir þegar kjöt er
annars vegar. Þeir unnu tíl margra verðlauna í fagkeppni kjötiðnaðarmanna af
öllu landinu í tengslum við mahælasýninguna Matur ’96 í Smáranum í
Kópavogi í vor. Frá vinstri: Hafsteinn Kjarbinsson, Ómar Ilauksson, Erla Jóna
Guðjónsdóttír, Þuríður Bergsdóttír og Olga Magnúsdóttír.
Góðan daginn - rétturinn er tilbúinn.
Háannatími grillara stendur nú yfir
og þeir eru ófáir, sem velja Borgarnes
grillkjöt á grillið, en þekktustu afurðir
AB - Afurðasölunnar Borgarnesi hf. -
eru án efa þurrkryddað grillkjöt sem
notið hefur mikilla vinsælda undanfar-
in ár. „Segja má að við höfum „fundið
upp” þetta þurrkryddaða grillkjöt og
kryddblandan, sem við notum er að
sjálfsögðu hernaðarleyndarmál,” segir Jóhannes Bekk
Ingason markaðsstjóri. Afurðasalan Borgarnesi hefur nú
fært út kvíarnar því fyrir skömmu keypti fyrirtækið kjöt-
deild íslensk-franska eldhússins og flutti framleiðsluna í
Borgarnes.
Að sögn Jóhannesar hefur verið unnið stanslaust að end-
urbótum og þróun á öllum sviðum hjá AB frá því fyrirtæk-
ið tók til starfa í ársbyrjun 1994. Áður hafði það verið hluti
af Kaupfélagi Borgfirðinga. Húsnæði, slátrun og vinnsla
hafa verið endurbætt og komið á ströngu gæðaeftirliti.
Gæðaeftirlitið er samkvæmt GÁMES staðli og nær innra
eftirlit til allra þátta framleiðslunnar. Síðastliðið haust var
auk þess komið upp mjög fullkomnum kælibúnaði í kjötsal
sauðfjársláturhússins sem kælir nýslátraða skrokka niður
í kjörhitastig á örfáum tímum og tryggir þar með óæski-
lega gerlamyndun í kjötinu.
VÖRUVALIÐ
GEYSIFJÖLBREYTT
„Mikil fiölbreytni er í framleiðslu AB og framleiðsluvör-
urnar hátt á annað hundarð talsins. Þar af eru 15 til 20
vöruflokkar innan grillvaranna einna. Framleiðslan bygg-
ist að stórum hluta til á kindakjöti en auk þess vinnum við
mikið úr nauta-, hrossa- og svínakjöti, en um hundrað grís-
um er slátrað í viku hverri í sláturhúsi AB. Sala lambakjöts-
grillvaranna er svo mikil að kjötbyrgðir fyrirtækisins eru
uppurnar um mitt sumar og verðum við þá að kaupa hrá-
efni frá öðrum þar til slátrun hefst á ný. Neysla fólks hefur
líka breyst í þá veru að nú eru menn farnir að grilla miklu
lengur fram eftir hausti og útigrillin eru tekin í notkun
snemma vors - jafnvel þegar um páska og það þótt þeir séu
Landsþekktar umbúðir. Borgames grillkjötið þekkja allir
sannir grillarar.
snemma á ferðinni. Þurrkryddaða grillkjötið okkar er ekki
það ódýrasta á markaðnum en við segjum að það sé það
besta og verðið einfaldlega í samræmi við gæðin.”
AB státar ekki aðeins af vinsælu þurrkrydduðu lamba-
kjöti heldur líka djúpkrydduðu og léttreyktu svinakjöti sem
hefur vakið mikla athygli fyrir gæði. Hjá fyrirtækinu er
unnið tilraunastarf í tengslum við þróun nýrra framleiðslu-
vara úr nauta-, lamba- og svínakjöti. Reyndar hefur verið
gerð tilraun með sölu á sumum þessara vara í sumar og
kaupendur sýnt þeim mikinn áhuga. AB framleiðir mikið af
unnum kjötvörum, pylsum og áleggi og hafa grillpylsur AB
fengið góðar móttökur en þær eru allfrábrugðnar öðrum
pylsum. Á öllum sviðum framleiðslunnar er megináhersla
48