Frjáls verslun - 01.05.1996, Blaðsíða 30
□ egar forstjóri álversins,
Christian Roth, tilkynnti í
sumar að hann myndi láta af
störfum um áramót vakti valið á eftir-
manni hans nokkra athygli en Rann-
veig Rist, deildarstjóri og talsmaður
ÍSAL, mun taka við starfi hans. Ung-
ar konur hafa til þessa ekki ekki verið
forstjórar stærstu fyrirtækja landsins
og þrátt fyrir alla jafnréttisumræðu
undanfarinna áratuga varð ekki heyrt
að neinum fyndist eitthvað athuga-
vert við það. Þetta hljóta því að teljast
tímamót í jafnréttisbaráttu auk þess
að vera staðfesting þess að íslenskt
viðskiptalíf er ekki eins nútímalegt
eins og margir ef til vill héldu. Kona
hefur ekki áður stýrt svo stóru iðnfyr-
irtæki á íslandi og Rannveig er því
brautryðjandi í þetta skipti eins og
stundum áður á ævinni.
Það er kannski dæmigert fyrir um-
ræðuna um hefðbundin karlastörf og
kvennastörf að mjög er rætt um þá
hæfileika sem Rannveig er sögð hafa
til að gegna starfmu og nefndir þættir
eins og víðsýni, stjómunarhæfileikar,
góðar gáfur og vönduð menntun.
Þetta hljómar eins og mönnum komi
það mjög á óvart að kona skuli yfirleitt
vera í stakk búin til að sinna slíku
starfi.
Rannveig Rist er fædd í Reykjavík
9. maí 1961. Hún er dóttir Sigurjóns
Rist vatnamælingamanns og Maríu
Sigurðardóttur, viðskiptafræðings og
kennara. Hún er eldri af tveimur
systmm en sú yngri heitir Bergljót f.
1966 og er við nám í dýralækningum í
Kaupmannahöfn.
Níundi maí er kóngsbænadagur
samkvæmt tilskipan Kristjáns fimmta
frá 1686. Þennan dag skyldu menn
biðja fyrir kóngi og iðrast synda sinna.
Þennan dag árið 1593 var flattur
þorskur staðfestur sem innsigli ís-
lands og þennan dag 1855 var prent-
frelsi lögleitt á íslandi en þennan dag
árið 1945 urðu óeirðir á íslandi þegar
fólk fagnaði friði í Evrópu. Þennan
dag 1987 fékk lag Valgeirs Guðjóns-
sonar, Hægt og hljótt, 16 stig í Euro-
vision söngvakeppninni. Þennan dag
fæddist einnig Gunnlaugur Oddsson
orðabókarhöfundur 1786, Konráð
Hjálmarsson, kaupmaður á Mjóafirði,
1858, Gagga Lund söngkennari árið
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
30
Rannveig Rist, nýi álfor