Frjáls verslun - 01.05.1996, Blaðsíða 21
fullviss um að það sama geti gerst hjá
Arthur Treacher’s.
Að mati Skúla er samkeppnin ekki
eingöngu írá tveimur stærstu sjávar-
réttarkeðjunum, Long John Silver,
sem rekur 1.500 staði, og Captain D’s
sem rekur 600 staði. í reynd séu
keppinautamir allir þeir sem selji
matvæli. Því þurfi að huga að nýjum
neysluvenjum við frekari uppbygg-
ingu Arthur Treacher’s.
MINNITÍMI í NEYSLU MATAR
„Það er vaxandi tilhneiging í þá átt
að fólk eyði minni tíma í matameyslu.
Það vill geta sótt holla og bragðgóða
rétti á skyndibitastaði. Hinn nýi neyt-
endahópur er menntað fólk sem vill
gæta að heilsunni. Aherslan á holl-
ustu hefur lengi verið í brennidepli en
til þessa hefur hún að mestu verið í
orði en ekki á borði. Nú er þetta að
breytast. Allir vita að fiskur em
heilsusamlegur en það þarf að koma
honum á framfæri við neytendur. Við
ætlum því að bjóða upp á grillaða sjáv-
arrétti með fersku og góðu meðlæti -
ekki síst grænmeti. í stað þess að
bjóða eingöngu upp á djúpsteikta fisk-
rétti verður boðið upp á griUaðan
þorsk, túnfisk, lax, lúðu og rækju.“
Uppbygging Arthur Treacher’s
staðanna byggist á auknu ijármagni
en það verður sótt með því að selja
hlutabréf á verðbréfamarkaði í
Bandaríkjunum. Skúli hefur fulla trú á
að það takist. „Það hefur verið mikil
gróska á sviði hátækni og tölva á
verðbréfamarkaðnum. Þekking al-
mennra fjárfesta á þessum sviðum er
samt lítil. Við bjóðum upp á hugmynd
sem fólk á auðvelt með að skilja. Það
þekkja allir matsölumarkaðinn - þetta
er áþreifanleg grein, ef svo má að orði
kornast."
FRANK BROWN RÁÐINN FORSTJÓRI
Skúli segir að eitt skrefið við að
tryggja tiltrú fjárfesta hafi verið að
ráða Frank Brown sem forstjóra
fyrirtækisins. Hann þekkir þennan
rekstur vel eftir að hafa starfað fyrir
keppinaut Arthur Treacher’s, Cap-
tain D’s, og móðurfyrirtæki þess,
Shoney’s, í sautján ár en erfiðleika
þessara fyrirtækja sé hægt að rekja til
Hafnarfjörður, Kópavogur, Reykjavík, Seitjamar-
nes, Mosfeiisbœr, Skóiafeii, Mosfeiisheiði,
Lambhagi, Akranes, Borgames, Reykhoit,
Óiafsvík, Grundarfjörður, Stykkishóimur,
Patreksfjörður, Bolungarvík, ísafjörður,
Hvammstangj, Biönduós, Varmahiíð,
Sauðórkrókur, Sigiufjörður, Ólafsfjörður,
Daivik, Akureyri, Húsavík, Egiisstaðir, Seyðisfjörður,
Neskaupsstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður,
Höfn, Vík, Vestmannaeyjar, Hvolsvöiiur,
Heiia, Laugarvatn, Grímsnes, Seifoss,
Hveragerði, Stokkseyri, Eyrarbakki,
Þoriókshöfn, Grindavík, Garður, Sandgerði,
Keflavík, Njarðvík, Kefiavíkurflugvöiiur,
Vogar og Blófjöii.
21