Frjáls verslun - 01.05.1996, Blaðsíða 37
Markmiðið svarar þremur lykilspumingum: Hvað á að gera? (Skipstjórinn átti að vera kominn í höfn.) Hve mikið á
að gera af því? (Hann á að vera búinn að skipa upp þremur tonnum af fiski.) Hvenær á því að vera lokið? (Þessu á að
vera lokið fyrir klukkan tólf á hádegi.)
og gefa óljósar vísbendingar um hve
mikið. Einnig kemur ekki fram hve-
nær eigi að ná þessum árangri.
Reynslan hefur sýnt að gera má ráð
fyrir að eitt stefnumið verði brotið
upp í nokkur markmið vegna þess að
markmiðin eru nákvæmari.
TVENNSKONAR HVATNING
Hvers vegna að vera með tvenns
konar yfirlýsingar um árangur? Bæði
þjálfarinn og stjómandinn nota
stefnumiðin til að sameina hugi sam-
starfsmanna sinna um verðugt
„stefnumið" sem, ef rétt er á haldið,
gæti fyllt þá hugsjónareldi.
Eftir því sem umræðan um stefnu-
miðið þróast næst nánara samkomu-
lag eða skilningur um þau markmið
sem einstaklingar eða deildir einsetja
sér að ná. Hæfilega ögrandi markmið
verður starfsmönnum og íþrótta-
mönnum drifkraftur sem birtist í
hmtmiðaðri framgöngu til að ná því,
þar sem menn bera stöðugt saman
árangur við fyrirhugaðan árangur eða
fyrri árangur.
„MARKMIÐIN" ENDURORÐUÐ
í upphafí greinarinnar voru settar
fram nokkrar yfirlýsingar um árangur
sem fýrirtæki vildi ná. Hér verður
þessum setningum snúið yfir í mark-
mið samkvæmt umfjölluninni í grein-
inni.
— Markmið okkar er að framleiða
vörur þannig að framlegð eftir breyti-
legan kostnað verður ákveðin % fyrir
áramót 1996 / ’97.
— Markmið okkar er að vera fam-
ir að starfa samkvæmt umhverfis-
staðli ÍST/ISO fyrir 1. júm 1997.
— Markmið okkar er að unnið
verði eftir fyrirbyggjandi viðhalds-
kerfi fyrir 1. nóvember 1997.
— Markmið okkar er að fækka
rekstrartruflunum, sem rekja má til
framleiðslukerfa, úr 10 á ári í 3 á ári.
Þessu markmiði verði búið að ná
31.12. 1998.
— Markmið okkar er að allir
stjómendur og starfsmenn hafi farið á
námskeið í samstarfstækni og altækri
gæðastjómun. Markmiðinu verði náð
fyrir 1. október 1996.
í ljósi umfjöllunarinnar í greininni
gæti lesandinn kallað fyrri dæmin
stefnumið. Þau em almennara orðuð
og vel til þess fallin að ná breiðri sam-
stöðu meðal starfsmanna. Markmiðin
em þrengri og afmarkaðri en betur
fallin til að virkja keppnisskap starfs-
manna og gerir þeim auðveldara að
fylgjast með hvort árangrinum verði
náð á tilsettum tíma.
37