Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1996, Síða 22

Frjáls verslun - 01.05.1996, Síða 22
Skúli Þorvaldsson, Hótel Holti, skrifar undir kaupsamning- inn í aðalstöðvum Arthur Treacher’s. Skúli var, ásamt föður sínum, Þorvaldi Guðmundssyni í Síld og fisk, útnefndur maður ársins 1991 í íslensku atvinnulífi af Frjálsri verslun og Stöð 2. FORSIÐUGREIN skaðabótamála á hendur móðurfyrirtækinu en ekki mistaka í rekstri Captain D’s. Skúli segir ennfremur að gott orð fari af Brown og fólk hafi tiltrú á að hann geti fylgt eftir áformum nýrra eigenda hjá Arthur Treacher’s. „Að sumu leyti er Frank Brown lykillinn að því að við teljum okkur fá hinn almenna fjárfesti á göt- unni til að leggja fé í þessa hugmynd. Það mun mikið mæða á Frank Brown - og það er hans að standa sig.“ A næstu mánuðum verða hugmyndir hins nýja meiri- hluta kynntar fjárfestum, meðal annars með greinum í tímaritum. Sölumenn hlutabréfa taka svo við. Skúli segir að það liggi fyrir heimild til að auka fjölda hlutabréfa í Arthur Treacher’s úr 10 milljónum í 25 milljónir bréfa. Miðað við fyrstu viðbrögð á verðbréfamarkaðnum ætti að vera grundvöllur fyrir því að ná í aukið hlutafé. Hlutabréf Catalands voru keypt á um 60 cent hvert en frá því fréttir bárust af sölunni hafi bréfín hækkað og verið lengst af í júní um 2,2 doUarar bréfið. Það er tæplega fjórföldun á verði bréfanna. EITT ÞÚSUND STAÐIR Á NÆSTU FIMM ÁRUM? Skúli vill ekki fara of geyst í að spá um vöxt fyrirtækis- ins. En aðrir, sem standa að Arthur Treacher’s, nefna tölur um fjölgun staða í um 350 á næstu þremur árum og í um 1.000 staði á næstu fimm árum. „Það er að mörgu leyti vænlegra að fara hægt í sakimar við að stækka fyrirtæki á borð við Arthur Treacher’s. Það hafa margir farið flatt á ofvexti. Slíkt getur leitt til of mikilla skulda auk þess sem stjórnendur hafa oft á tíðum misst tökin á rekstrinum. Menn hafa einfaldlega ekki ráðið við of hraðan vöxt.“ Bruce Galloway, framkvæmdastjóri hjá Bumham Securites, er í forystu bandaríska hópsins sem stóð að yfirtökunni ásamt íslenska hópnum. Hann er núna stjómarformaður fyrirtækisins. Hann segir að áður en gengið hafi verið frá kaupunum á hlut Jim Catalands hafi verið gerðar umtalsverðar markaðsrannsóknir til að ganga úr skugga um að sú nýja hugmynd, sem farið verði af stað með, falli neytendum í geð. Niður- stöður þessara forkann- ana hafi verið mjög já- kvæðar. Þær séu þess- ar: Fólk vilji finna bragðið af fiskinum - en það tapist að stórum hluta þegar hann sé djúpsteiktur. KAUP Á ANNARRI VEITINGAH ÚSAKEÐ J U? Bmce telur Arthur Treacher’s það jafnframt til tekna að keppi- nautamir standi veikt og hafi lítið fjárhagslegt bolmagn til að bregðast við harðri samkeppni. Raunar er Bruce bjartsýnni en aðrir, sem standa að þessu máli, um að uppbyggingin verði hröð og telur að jafnvel sé hægt að stefna að eitt þúsund Arthur Treacher’s stöðum innan fimm ára. Hann segir að á næstu mánuðum verði ekki farið hratt í sakimar en það megi þó reikna með að 30 til 50 nýir staðir verði opnaðir. Bmce upplýsir einnig að til athugunar sé að kaupa aðrar veitinga- húsakeðjur en vill ekki nefna hvaða keðjur sé um að ræða. íslensku fisksölufyrirtækin í Bandaríkjunum, Coldwat- er og Iceland Seafood, eiga augljósra hagsmuna að gæta ef áform nýrra eigenda Arthur Treacher’s um fjölgun staða ganga eftir. Heildarfiskkaup keðjunnar á ári ættu sam- kvæmt þeim áformum að geta aukist í 10 þúsund tonn á næstu árum. Það er nálægt því sama magn og Coldwater seldi til Arthur Treacher’s þegar best áraði hjá skyndibita- keðjunni. Á undanfömum árum hefur Arthur Treacher’s bæði keypt fisk af Coldwater og Iceland Seafood. Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater, fagnar hinum nýja meirihluta í Arthur Treacher’s sem sé tilbúinn til að setja vemlegt fjármagn í uppbyggingu keðjunnar. „Ef okk- ur tekst að mæta kröfum hins nýja meirihluta fyrirtækisins um verð og afurðir getur yfirtakan haft mikla þýðingu fyrir Coldwater og stóraukið sölu á fiski til keðjunnar. Við emm reiðubúnir til þess að leggja okkar af mörkum til þess að svo geti orðið.“ STÓR VIÐSKIPTAVINUR COLDWATER UM ÁRABIL Magnús segir að Arthur Treacher’s staðimir kaupi tals- GRILLAÐIR FISKRÉTTIR 77/ stendur að fjölga stöðum, breyta ímynd fyrirtækisins og bjóða upp á grillaða fiskrétti en þeir eru hollari en þeir djúpsteiktu fiskbitar sem eru á matseðlinum núna. Með þessu á að ná til þeirra neytenda sem hugsa sífellt meira um hollustu skyndibita. Jafnframt er stefnt að því að breyta útliti staðanna. 22

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.