Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1996, Qupperneq 24

Frjáls verslun - 01.05.1996, Qupperneq 24
SKOÐANAKÖNNUN Skoðanakönnun Frjálsrar verslunar: FARSÍMAR Á FJÓRÐUNGI arsími er á fjórða hveiju heim- ili í landinu, samkvæmt skoð- anakönnun Frjálsrar verslunar sem gerð var 6. júní síðastliðinn. Þetta þýðir að farsímar eru á um 25 þúsund íslenskra heimila en um 97 þúsund heimili eru í landinu sam- kvæmt Hagstofu íslands. Það verður því ekki annað sagt en að íslendingar séu símavædd þjóð. Ekki var gerður greinarmunur á því hvort um GSM farsíma væri að ræða eða farsíma af gömlu gerðinni sem margir hverjir eru í bifreiðum. Könnunin var gerð að kvöldi fimmtu- dagsins 6. júm og svöruðu 580 manns. Þess má geta að þessi könnun var ein nokkurra í spumingavagni Fijálsrarverslunarþettakvöld. Hinar snemst um einkatölvur á heimilum, áhorf á fyrsta sjónvarpseinvígi for- setaframbjóðenda á Stöð 2 og stuðn- ing kjósenda við forsetaframbjóðend- ur. Könnunin var símakönnun og var úrtakið valið af handahófi úr síma- númeraskrá Pósts og síma. FARSÍMAR Á 25 ÞÚSUND HEIMILUM LANDSINS Niðurstaða könnunarinnar er sú að 26% spurðra segja að farsími sé á heimilinu. Spurt var: Er til farsími á heimilinu? Og miðað við fjölda heimila í landinu þýðir þessi niðurstaða að farsímar séu á um 25 þúsund heimil- um landsins. Það verður að teljast fremur hátt hlutfall. Margir starfsmenn fyrirtækja eru með farsíma á vegum fyrirtækja sinna, sérstaklega stjórnendur. í könnun sem þessari er afar Mklegt að farsímar fyrirtækjanna séu taldir til farsíma heimila starfsmannanna þótt fyrirtækin eigi þá og standi straum af kostnaði þeirra. Sama má ætla með farsíma svonefndra einyrkja, ein- staklinga með eigin atvinnurekstur. með farsíina. Næstminnsta farsíma- eign mælist í Norðurlandskjördæmi vestra, eða 21%, og í Reykjavík, 22%. í nágrenni Reykjavíkur, Reykja- neskjördæmi, er farsímaeign út- breiddust. Þar er þriðja hvert heimili með farsíma, eða 33% heimila. Sunn- lendingar eru í öðru sæti, þar eru farsímar á 30% heimila. LANDSBYGGÐIN HEFUR VINNINGINN Farsímaeign er hlutfallslega meiri úti á landi en í Reykjavík. Farsímaeign er yfir meðaltali á Reykjanesi, Vest- urlandi, Norðurlandi eystra, Austur- landi og Suðurlandi. Velta má ýmsum skýringum fyrir sér. Ein er sú að sími er samgöngutæki og samgöngur eru stijálli og erfiðari, sérstaklega á vetr- um, úti á landsbyggðinni. Miðað við að sími sé samgöngu- tæki er á margan hátt athyglisvert að sjá að farsímaeign sé mismunandi eft- ir kjósendum stjórnmálaflokka. A heimilum kjósenda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru hlutfalls- lega fleiri farsímar en á heimilum kjós- enda annarra flokka. Farsímar eru til á þriðja hveiju heimili sjálfstæðis- manna og á rúmlega fjórða hverju heimili framsóknarmanna. Að vísu má segja að kjósendur þessara flokka séu fjölmennastir og það skýri útkomuna að hluta. Ennfremur er það líkleg skýring að kjósendur þessara tveggja flokka, stjómarflokkanna, séu hlutfallslega fleiri í eigin atvinnurekstri - og rekst- ur farsímanna sé því á reikning at- vinnureksturs þeirra fremur en heim- ilisins. Sömuleiðis má velta því fyrir sér hvort kjósendur stjómarflokk- anna séu tekjuhærri en kjósendur hinna flokkanna og hafi frekar ráð á að eiga og reka farsíma. Undanfarin misseri hefur selst mest af svonefndum GSM farsímum. Þeir eru léttir, handhægir, meðfærilegir, með mikil talgæði og aukið öryggi gagnvart hlerun. FARSÍMAEIGN ER ÁBERANDI MINNST Á VESTFJÖRÐUM Farsímaeign er svipuð í kjördæm- um landsins. Eitt kjördæmi sker sig þó algerlega úr hvað lágt hlutfall far- síma snertir. Það eru Vestfirðir. Þar söguðust aðeins 11% spurðra vera FRÉTTA SKÝRING Jón G. Hauksson 24

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.