Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1996, Side 26

Frjáls verslun - 01.05.1996, Side 26
SKOÐANAKONNUN Víða á veitingahúsum hefur verið illa séð að gestir séu með GSM farsíma. Hringingar í þá eru taldar trufla aðra matargesti. Engu að síður sýnir mynd eins og þessi hvað farsímar eru orðnir meðfærilegir. Farsímaeign eftir kjördæmum Reykjanes Suöurland Vesturland Austurland Noröurl. eystra Reykjavík Noröurl. vestra Vestfirðir Vestfirðingar eiga hlutfallslega minnst af far- símum. þeirra, sem eru yfir sextugt, með farsíma. í sjálfu sér kemur það ekki á óvart að farsímaeign sé meiri hjá yngra en eldra fólki. Umsvif fólks í vinnu og atvinnurekstri eru mest á aldrinum frá 30 til 45 ára. Á því æviskeiði eru tekjur fólks mestar. Fólk á þeim aldri er líka meira á ferðinni, bæði vegna vinnu og ekkert síður vegna bama og heimilsins. Ætla má að böm nái auð- veldar til foreldra sinna í gegnum far- síma en hefðbundinn síma. Ennfrem- ur kann farsími að einhverju leyti að vera stöðutákn. En nokkrar líkur era á að yngra fólk hugsi meira um slíkt en það eldra - þótt allur gangur sé auðvit- að á því. FARSÍMAHEIMILI EIGA EINNIG TÖLVUR Farsímaeign tengist öragglega að einhverju leyti hinum margrómaða áhuga landans á tækjum, svonefndri tækjadellu. Enda leiðir könnunin í ljós að fylgni er á milli þess að á heimilum séu farsímar og tölvur Á 58% heimila, sem eru með farsíma, er einnig heim- ilstölva. Þetta sýnir að þeir, sem era áhugasamir um tækninýjungar, nýta sér frekar þjónustu farsíma og tölva. Engu að síður era tæki eins og farsími og tölva komin í hóp „þarfasta þjónsins" á mörgum heimilum sem síður en svo eru þjökuð af tækjadellu. Þetta era hversdagsleg vinnutæki. Hér má bæta því við að á þeim heimilum, sem era með Stöð 2, er farsímaeign yfir meðallagi.Um 34% heimila, sem sjá Stöð 2, hafa farsíma en aðeins 16% þeirra heimila sem ein- göngu eru með Ríkissjónvarpið. Ástæða þess að Stöð 2 blandast inn í könnun um farsímaeign á heimilum er sú að í spumingavagni Fijálsrar verslunar þetta kvöld voru kannanir um það hvort fólk hefði Stöð 2 og hefði séð fyrsta sameiginlega sjón- varpseinvígi frambjóðendanna á þeirri stöð kvöldið áður, miðviku- dagskvöldið 5. júní. MIKIL SALA Á GSM FARSÍMUM Mikil sala hefur verið í GSM far- símum frá því sala þeirra hófst hér á landi fyrir nokkram árum. GSM sím- arnir eru litlir og nettir og auðveldir í notkun. Þeir rúmast auðveldlega í vasa. Vinsældir þeirra byggjast ekki síst á því hversu handhægir þeir eru. Það er auðvelt að ná sambandi við þá sem eru með GSM-farsíma, nánast hvar sem þeir eru staddir í heiminum. Sömuleiðis eru auðvelt fyrir þá, sem era með GSM farsíma, að hafa sam- band við aðra. Gerist áskrifendur ab FRJÁLSRI VERSLUN í sumar Sími: 561 7575 • Fax: 561 8646 26

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.