Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1996, Síða 46

Frjáls verslun - 01.05.1996, Síða 46
Alfreð Gíslason. árangri. Metnaður slíkra ein- staklinga minnkar ekkert þegar þeir hætta að sparka eða henda bolta. Þeir, sem hafa náð hvað lengst í hópíþróttum á íslandi, eru flestir sterkir persónuleik- ar. Svo má ekki gleyma því að þegar menn hafa verið í sviðs- ljósinu í ákveðinn tíma er það oft þeirra metnaðarmál að sanna sig á öðrum sviðum. Sjóndeild- arhringurinn á íslandi er frekar þröngur og þess vegna búa þeir, sem hafa leikið erlendis sem at- vinnumenn, að reynslu sem skilar sér með margvíslegum hætti þegar tO lengri tíma er lit- ið. Sumir íþróttamenn hafa lagt grunninn að framtíðinni samhliða því að vera toppíþróttamenn og það er virðingarvert. Tíminn, sem fer í að leika í l.deild, með landsliðinu ogjafn- vel sinna fjölskyldunni, er það mikill að aðeins með góðri skipulagningu og sjálfsaga er hægt að stunda erfitt nám samhliða þessu. Kannanir hafa ótví- rætt sýnt að þeir, sem eru virkir í íþróttum og félagsstarfi, standa sig betur í skóla, ná betri námsárangri, en þeir sem stunda ekki íþróttir. Það er erfitt að reyna að sannfæra þá, sem hafa aldrei stundað íþróttir, um mikilvægi þeirra en staðreyndin er sú að íþróttaiðkun er svo mikill lærdóm- ur fýrir krakka í sjálfsaga og í að læra að skipuleggja tímann. Þátttaka í íþróttum leggur grunn að ákveðnu lífsmynstri hjá einstaklingum. Þegar leikmenn fara ungir í at- vinnumennsku, eins og tíðkast með suma af knattspyrnumönnum okkar, er hætta á að þeir gleymi sér í huggu- legheitunum. Þeir stefna hátt, ætla að verða ríkir og frægir en nýta frítím- ann illa. Það er hægt að læra ýmislegt þegar æfingar eru aðeins einu sinni á dag. Sá lærdómur gæti komið sér vel þegar ferlinum lýkur — ekki síst ef ríkidæmið lætur á sér standa.“ Alfreð hefur leikið með fjölda leik- manna, bæði heima og erlendis. Ætli hann hafi getað séð fyrir hverj- ir væru líklegir til að spjara sig á öðrum vettvangi í framtíðinni? „Þeir íþróttamenn sem eru sterk- astir og traustastir á vellinum, verða það líka á öðrum sviðum — án tillits til þess hvað þeir leggja fyrir sig. And- legi þátturinn skiptir svo miklu máli. Þeir, sem ég lék með í landsliðinu á sínum tíma, voru þar ekki síst vegna þess hvaða mann þeir höfðu að geyma. Góður árangur þeirra á öðr- um sviðum hefur ekki komið mér á óvart.“ — Sumir vilja meina að það sé erfitt að vera með íþróttamenn í vinnu — ekki síst vegna fjarvistanna? „Þeir, sem komast í fremstu röð, hljóta að þurfa oftar frí en aðrir. Flest- um ber þó saman um að þeir, sem ganga í gegnum harðan skóla íþrótt- anna, séu góðir starfskraftar, miklir baráttumenn og harðir af sér. Reynd- ar má kannski segja sem svo að helm- ingur íslendinga hafi stundað íþróttir af töluverðri eljusemi og þess vegna séum við svo vinnusöm þjóð. Þegar á heildina er litið tel ég kosti íþrótta- manna sem starfsmenn meiri en ókostina." — Hefurðu fylgst með því hvort sterkustu leikmennimir, sem þú lékst með í Þýskalandi og á Spáni, hafi náð að hasla sér völl á öðrum vettvangi? „í Þýskalandi hugsa leikmenn ekki eingöngu um peningana þegar félögin falast eftir þeim því atvinnan skiptir þá miklu máli. Þegar ég lék með Ess- en voru menn ávallt með hugann við það hvort félagið gæti útvegað þeim framtíðarstarf. Þetta var beggja hag- ur því félögin tryggðu sér leikmenn- ina til langs tíma og þeir voru með örugga atvinnu að ferlinum loknum. í toppstöðum í Essen.“ — Hefði menntun á viðskipta- sviðinu, á þínum yngri ámm, getað komið þér til góða í dag? „Tvímælalaust. Þegar ég var tvítugur vissi ég vitanlega ekki hvað ég tæki mér fyrir hendur í framtíðinni en ég lauk námi í sagnfræði. Ég sé alls ekki eftir því en núna myndi ég hafa miklu meira gaman af því að fara í við- skiptafræði.“ — Hefurðu fundið til vanmátt- ar þegar reynt hefur á við- skiptafræðilega þekkingu í rekstri fyrirtækja þinna? „Nei, ég hef ekki fundið til þess en ég hef oft bölvað í hljóði yfir því að hafa ekki verið búinn að læra þetta eða hitt fyrir 15 árum. Ef maður er opinn fyrir nýjungum og lærdómi getur maður endalaust viðað að sér þekkingu og aukið menntun- ina. Ég hef alltaf verið fús að viður- kenna vankunnáttu á ákveðnum svið- um en að sama skapi verið tilbúinn að læra.“ — Gilda sömu leikreglur í viðskipt- um og íþróttum? ,Já, í stórum dráttum. Samkeppnin er alltaf fyrir hendi og segja má að löggjafinn sé dómarinn í viðskiptalíf- inu. Það er ríkt í okkur íslendingum að reyna að fara út fyrir reglurnar. Veitingahúsabransinn á íslandi er mjög skrautlegur og ég lít á þátttöku mína honum sem athyglisverðan skóla. Það, sem hefur komið mér mest á óvart í honum, er tortryggnin í garð þeirra sem reka veitingahús. Fólk á bágt með að trúa því að þau séu rekin eftir settum reglum, heldur að þeir, sem það gera, hljóti að vera að svindla með einhverjum hætti eða smygla inn vörum. Sumir halda því fram að þeim sé selt eitthvað annað en þeir pöntuðu. Kannski er þetta eðlileg tortryggni því það er töluvert um að aðilar í þessum rekstri fari á hausinn en haldi samt áfram rekstri með nýjum kennitölum. Það er stór galli í íslensku réttarkerfi og við- skiptalífinu hvað menn komast enda- laust upp með það að vera óheiðarleg- ir. Sumir hella sér út í viðskipti með rangindi að leiðarljósi og komast upp með það trekk í trekk. Ef menn eru staðnir að þessu í Þýskalandi fá þeir 46

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.