Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1996, Qupperneq 49

Frjáls verslun - 01.05.1996, Qupperneq 49
Pvinfalt og gott - beint af grillinu. ívar Ragnarsson, frainkvæmdastjóri Afurðasölunnar í Borgamesi. Á bak við hann blasa við afurðir úr kjötdeild íslensk-franslia eldhússins en Afurðasalan í Borgamesi kej pti það fyrirúeki fyrir skönunu. GRILLXJOT Aðalmarkaður AB er frá Hvalfjarðar- botni í Stykkishólm og síðan á Stór- Reykjavíkursvæðið. Á sumrin, þegar mest er grillað, er sölusvæðið þó mun stærra - nær yfir Suðurlandið og vestur á Vestfirði. „Heimamarkaðurinn er þó hvað þýðingarmestur fyrir AB,” segir Jóhannes, „og leggja menn mikið upp úr að þjóna honum sem best. Vörum er dreift daglega um allt markaðssvæðið frá Borgarnesi. Um þessar mundir er svo verið að opna sérstaka söluskrifstofu að Smiðjuvegi 4a í Kópavogi þar sem sölumenn munu hafa aðsetur og tekið verður á móti pöntunum. Þar verður einnig hægt að þjónusta smærri viðskiptavini og þá sem eru að undirbúa veislur.” I júníbyrjun keypti AB kjötdeild fyrirtækisins Islenskt-franskt og hefur starfsemin verið flutt í Borgarnes. Þar verða vörur fyrirtækisins framleidd- ar framvegis en íslensk-franskt flutti fiskdeild sína til Akra- ness. Mun AB sjá um dreifingu á fiskvörunum hér innan- lands i framtíðinni. Þar við bætist svo að um síðustu mán- aðamót hóf AB að dreifa Borgarnespizzum frá fyrirtækinu Engjaási í Borgarnesi. I framhaldi af þessum breytingum og aukningu hjá AB má reikna með að störfum muni fjölga um hátt í tíu en hjá AB eru að jafnaði starfandi um 80 manns. Þó eykst sá fjöldi nokkuð í sláturtíðinni og yfir sumarmánuðina. lögð á gæði vörunnar, fallegt útlit og góðar og þægilegar umbúðir, að sögn Jóhannesar. Gimilegt á grillið - lambalæri ættað úr Borgamesi. FENGU 17 VERÐLAUN Til marks um góðan árangur í gæðaþróuninni hjá AB má nefna að á sýningunni Matur '96 sem haldin var í Kópavogi í vor fengu vörur frá AB 17 verðlaun, þar af þrenn gullverð- laun. Sendar voru á sýninguna 20 vörutegundir og verð- launahafarnir frá Borgarnesi voru 7 talsins. Sími: 437 1418 • Bréfasími: 437 1093 49

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.