Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1996, Síða 56

Frjáls verslun - 01.05.1996, Síða 56
FOLK BERGSTEINNISLEIFSSON, ÖRYGGISMIÐSTÖÐ ÍSLANDS ryggismiðstöð ís- lands hf. tók til starfa í september á síð- asta ári. Hjá fyrirtækinu starfa reyndir menn á sviði öryggismála sem hafa starf- að við þetta fag í mörg ár. Við rekum öryggismiðstöð þar sem við vöktum viðvör- unarbúnað ýmiss konar, svo sem brunavarnakerfi, þjófa- vamakerfi og vatnsviðvör- unarkeríi eða viðvaranir frá vélbúnaði, — segir Berg- steinn ísleifsson, fram- kvæmdastjóri Öryggismið- stöðvar íslands hf. Sem dæmi um fyrirtæki sem Ör- yggismiðstöðin vaktar er Borgarleikhúsið, húseignir Ríkiskaupa, Skífan hf., Reykjagarður og Kaupfélag Ámesinga. í dag starfa hjá Öryggis- miðstöð íslands hf. tíu manns í föstu starfi en auk þess eru nokkrir verktakar í vinnu hjá fyrirtækinu. Ör- yggismiðstöðin vaktar yfir hundrað fyrirtæki og heimili í dag og segir Bergsteinn fyrirtækið hafa náð góðum árangri á þessum markaði á skömmum tíma. HUGARFARSBREYTING í ÖRYGGISMÁLUM „í síðastliðnum fimm ár- um hefur orðið alger huga- farsbreyting hjá stjómend- um fyrirtækja og stofnana hvað varðar öryggiskerfi. Hér áður var öryggiskerfi eitthvað sem menn keyptu þegar vel áraði eða þegar þeir höfðu orðið fyrir tjóni. Núna era öryggismál einn Bergsteinn ísleifsson, framkvæmdastjóri Öryggismið- stöðvar íslands hf. Fyrirtækið tók til starfa sl. haust. Það vaktar núna yfir eitt hundrað fyrirtæki og heimili. þáttur í fyrirtækjarekstri eins og síma- og tölvukerfi. Fyrirtæki, sem er vel merkt af vakthafandi öryggisþjón- ustu, er líklegra til að sleppa við innbrot en önnur,“ segir Bergsteinn. „Það, sem er stolið, er ekki endilega mesti skaðinn heldur skemmdimar á innviðum fyrirtækisins. Sama á við um heimili sem brotist er inn á. Það er tiltölulega auð- velt að bæta sjónvarp eða heimilistölvu en það bætir enginn þá ónotatilfinningu sem fylgir því að einhver ók- TEXTI: JÓHANNA Á.H. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR unnugur hafi farið höndum um eigur manns.“ Bergsteinn segir að sífellt fleiri heimili séu tengd við Öryggismiðstöðina, enda hafi kostnaður við slíkt lækkað. Heimili búi ekki eingöngu við hættu á inn- brotum heldur líka bruna, eins og landsmenn hafi illi- lega orðið varir við upp á síðkastið, svo og tjóni af völdum vatns. ANDLEG MÁL Bergsteinn er lærður vélfræðingur og var til sjós hér áður. Hann fór að vinna við örryggismál fyrir níu ár- um og segist strax hafa fallið vel við starfið. Hann var deildarstjóri hjá Vara þegar hann stofnaði Öryggismið- stöð íslands hf. ásamt nokkrum félögum og fjár- festum. „Fyrirtækið er stofnað og rekið sem hlutafélag. Við emm komnir yfir erfiðasta hjallann og horfum fram á bjarta tíma. Markaðurinn stækkar ört og við teljum okkur geta boðið betri þjón- ustu en aðrir á markaðn- um.“ Bergsteinn er 32 ára gamall. Hann er giftur Lauf- eyju Jónsdóttur, sem sér um reiknishald hjá ísmar, og eiga þau tvö börn. Eldri er Jón Ingi, níu ára, en stúlkan heitir Elsa Mjöll og er fimm ára. Þegar Bergsteinn er spurður um tómstundir hlær hann létt og segir að þær hafi verið fáar hin síð- ustu misseri. „Sá tími, sem ekki fer í uppbyggingu fyrirtækisins, fer í að sinna fjölskyldunni,“ segir hann en bætir við að hann sjái fram á aukinn frí- tíma og honum vilji hann gjarnan eyða í útiveru. „Ég hef lengi haft áhuga á huglægum málum, svo sem dulsálarfræði. Ég var með- limur í Rósakrossreglunni sem er alþjóðlegur dul- spekiskóli. Það er góð byrj- un að breyta heiminum með því að bæta sjálfan sig,“ segir Bergsteinn ísleifsson. 56

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.