Frjáls verslun - 01.05.1997, Page 22
Forystumenn ungra sjálfstæbismanna og framsóknarmanna taka ráðherra
- hverjirséu kostir þeirra oggallar. I raun
Qijáls verslun hefur fengið þá Guðlaug Þór Þórðar-
son, formann Sambands ungra sjálfstæðismanna,
SUS, og Árna Gunnarsson, formann Sambands
ungra framsóknarmanna, SUF, til að gefa ráðherrunum í
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar, einkunn í tilefni 2 ára afinælis
ríkisstjórnarinnar um þessar mundir. Til að fá skarpari lín-
ur og skemmtilegri dóma er sá háttur hafður á að þeir fé-
lagar dæma eingöngu ráðherra samstarfs-
flokksins en ekki eigin flokks. Þannig dæm-
ir Guðlaugur Þór eingöngu ráðherra Fram-
sóknarflokksins og Arni ráðherra Sjálfstæð-
isflokks.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar var mynd-
uð í apríl 1995 og tók aðeins nokkra daga að slípa hana
saman. Eftir að hafa stigið í vænginn við Alþýðuflokkinn í
upphafi kúventi Sjálfstæðisflokkurinn skyndilega og hóf
viðræður við Framsóknarflokkinn.
MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR
Bæði Guðlaugur Þór og Árni telja þessa ríkisstjórn
vera góða og gefa henni ijórar stjörnur af fimm möguleg-
um. Það vekur athygli að þeir gefa stjórninni hærri ein-
kunn en flestum ráðherrunum. Þetta þýðir að þeir líta svo
á að ráðherrarnir vinni vel saman og vegi á vissan hátt
hver annan upp. Báðir telja að helsta afrek þessarar
stjórnar sé að hafa haldið uppi stöðugleika í atvinnulífinu
sem sé forsenda bættra lífskjara. Jafnframt telja þeir það
afar ánægjulegt að markmiðið um hallalaus
íjárlög sé að nást - í fýrsta skipti í tólf ár. Báð-
ir eru tiltölulega sáttir við kvótakerfið í sjáv-
arútvegi þótt Árni telji skorta á umræður um
einhverjar breytingar á kerfinu.
Þeir eru sammála um að þessi ríkisstjórn
hafi þann stíl að vinna hægt og hljótt - sem ekki verði sagt
um síðustu ríkisstjórn. Af einstökum verkum ríkisstjórnar-
innar er Guðlaugur Þór meðal annars óánægður með hinn
nýja búvörusamning. Þar átti að ganga lengra í að auka
TEXTI
Jón G. Hauksson
22