Frjáls verslun - 01.05.1997, Qupperneq 23
Rökrætt - og ráðherrar dæmdir. Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður SUS, til vinstri, og Árni Gunnarsson, formaður
SUF, dæma ráðherra samstarfsflokksins en ekki eigin flokks. Þeir tala opinskátt um það hvernig ráðherrarnir hafi
staðið sig - og hverjir séu kostír þeirra og gallar.
samstarfeflokks síns á beiniö og ræöa opinskátt um paö hvernigpeir hafi staöiö sig
fellur enginn en Davíö fær hœstu einkunn!
frelsi bænda og lækka útgjöld. Það er
vitað mál að í næstu Gatt-lotu verður
samið um aukinn innflutning landbún-
aðarvara og minni stuðning við bænd-
ur. Það verður að búa þá undir þessa
óhjákvæmilegu breytingu.
Þá er hann óhress með hvað hægt
gengur að einkavæða og leggja niður
ríkisfyrirtæki, sérstaklega ríkisbank-
ana. „Amiðju kjörtímabili stöndum við
frammi fyrir því að hafa 70 til 80% af
fjármálamarkaðnum enn í höndum rík-
isins. Það er lélegt!” segir Guðlaugur.
Hann bætir við að sú lækkun á tekju-
skatti, sem samþykkt hefur veríð, sé
gott mál - en að það þurfi að ganga
miklu lengra í að lækka skatta. Margt
fleira má tína til, eins og jafnréttismál-
STJÖRNUGJÖFIN
Davíö Oddsson ★★★★
Halldór Ásgrímsson^^
Friðrik Sophusson ★★★
Finnur Ingólfsson ★★★
Páll Pétursson ★★★
Björn Bjarnason irirt
Halldór Blöndal ★★*
Þorsteinn Pálsson ★★V
Guðmundur Bjarnason^
Ingibjörg Pálmadóttir ★★
v________________________/
in, en í þeim efnum er mjög biýnt að
réttur karla til fæðingarorlofs verði
aukinn.
Arni Gunnarsson segir ríkisstjórn-
ina ekki hafa hugsað nægilega vel um
stuðning við ungt fólk sem sé að stofna
fjölskyldu og koma sér upp þaki yfir
höfuðið. Hann telur þennan hóp búa við
allt of miklar skattaálögur. „Þrátt fyrir
miklar umræður í kosningabaráttunni
um háa jaðarskatta þessa fólks - og þá
þyrfti að lækka - hefur lítið gerst. Það
hefur vantað vinnu í að bijóta þetta
kerfi upp,” segir Arni.
En lítum þá á hvernig þeir dæma
ráðherrana í ríkisstjórninni. Þeir gefa
á skalanum ffá einni upp í fimm stjörn-
ur.
23