Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Síða 72

Frjáls verslun - 01.11.1997, Síða 72
Viðburðir leikhúsársins - o? týnt verðlaunaleikrit Hramótin eru hefðbundinn tími endurlits og uppgjörs og rit- stjórinn stingur upp á því, að gagnrýnandinn tilnefni leikrit ársins, leiksýningu ársins, leikara ársins. Þá verður strax að játa, að það daufa og heldur drungalega leikhúsár, sem er senn á enda, býður í því efni ekki upp á rnarga kosti. Þó er í sjálfu sér engin ástæða til að víkjast undan, enda hafa vikurnar fyrir jól að venju verið fremur dauður tími í leikhúsunum og það- an ekki margt frásagnarvert um sinn. Hvorki Þjóðleikhúsið né Borgarleikhúsið hafa risið hátt á ár- inu. Hið „íslenska leikár" Þórhildar Þorleifsdóttur varð því miður að mestu leyti „liaskó“ nema hvað Dómínó Jökuls tókst ágætlega í sviðsetningu Kristínar Jóhannesdóttur. Báðir söng- leikirnir - Fagra veröld Karls Ágústs Ulfssonar og Hið ljúfa líf Benónýs Ægissonar - voru svo fátæklegir frá hendi höfunda, að þeir voru vart á vetur setjandi og urðu hvorugur sá áhorfendasegull sem L.R. þurfti sárlega á að halda. Völundarhús Sigurðar Pálssonar og Astarsaga 3 Kristínar Ómarsdótt- ur voru tilraunir, sem leikhúsið heíði getað ráð- ist í til hliðar við vinsælla efni, en vonandi hafa sýn- ingarnar skilað gáfuðum höfundum reynslu sem þeir eiga eftir að nýta sér til stærri afreka. Ef litið er út fyrir stóru leikhúsin tvö, þá hefur starfsemi sjálfstæðra at- vinnuleikhópa oft verið kröftugri og efnisval þeirra áhugaverðara en á árinu 1997. Leikfélag Ak- ureyrar hefur undir stjórn nýs leikhússtjóra, Trausta Ólafssonar, ekki náð sama flugi og á tíma Viðars Eggertsson- ar. Þó sýndi það talsverð- an metnað í verkefnavali á fyrra leikári, en hafði ekki alltaf erindi sem erfiði. Djarfasta fyrirtækið var leikfærsla Halldórs E. Laxness á Vefaranum mikla frá Kasmír, sem var að ýmsu leyti ágætlega unnin sýning, þó að leikgerðin sjálf gerði skáldverkinu ekki fullnægjandi skil. A þessu leikári hættir L.A. hins vegar á fátt og veðjar einkum á gömul kassastykki eða verk líkleg til vinsælda og væri betur ef því tækist þannig að rétta sig af eftir síðasta ár. Hvað varð af ungu leikstjórunum? Þegar ég leit yfir árið 1996 í sjónvarpsþætti um síðustu ára- mót, var mér ofarlega í huga sú endurnýjun sem hafði þá átt sér stað í hópi leikstjóra. Að vísu höfðu ýmsir yngri leikstjórar verið að sanna sig um alllangt skeið, án þess að hinar rótgrónari stofn- anir hefðu þar fyrir sýnt kröftum þeirra mikinn áhuga. Þá um haustið gerðist það svo, að tveir ungir leikstjórar, þeir Baltasar Kormákur og Hilmar Jónsson, vöktu verulega eftirtekt með ágætum sýn- ingum (Baltasar með Leitt hún skyldi vera skækja og Latabæ og Hilmar með Birtingi i Hafnarfjarðar- leikhúsinu). Sigrar þeirra voru til marks um athyglis- verð kynslóðaskipti innan leikhússins. Eg benti á það í um- ræddum þætti, þar sem leikhússtjórarnir Stefán Baldursson og Þórhildur Þorleifsdóttir voru til and- svara, að hvorki Þjóðleik- húsið né Borgarleikhúsið heíðu brugðist með eðli- legum hætti við breyting- unni. Svaraði þjóðleikhús- stjóri því þá til, að hann hefði að jafnaði reynt að taka inn einn nýjan leik- stjóra á hveiju ári. Það má svo sem vel vera, að hann hafi einhverja slíka þumal- fingursreglu á bak við eyrað, en hitt er annað mál, að hún er fráleit, þegar þeir leikstjórar, sem eru nú á miðjum aldri, skila ekki betri verkum en þeir hafa lengi gert og utan múr- anna er álitlegur hópur efnilegs fólks, sem ekki að- eins það sjálft, heldur um- Leikari ársins: Eggert Þorleifsson sem Jón Logi í Beinni útsendingu. 72
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.