Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1999, Síða 18

Frjáls verslun - 01.05.1999, Síða 18
FORSÍÐUGREIN Sækja fram með / A Vallá er rekinn fiölþœttur búskaþur meö hœnur, svín og endur. Vallárbændur hafa keyþt Mela í Melasveit og þar veröur sett uþþ stærsta svínabú á Islandi. TEXTI: Páll flsgeir Ásgeírsson MYNDIR: Gelr Úlafsson að sem er að gerast er að við höfum hugsað okkur að breyta rekstrarfyrirkomulaginu á svínabúinu og skipta því niður. I framtíðinni verða aðeins gyltur og got hér á Vallá en allt uppeldi grísa mun fara ffam uppi á Melum í Melasveit þar sem þeir verða aldir í sláturstærð. Með þessu vinnst tvennt. Annars vegar getum við farið eftir ströngustu reglum um losun úrgangs frá svínunum og svo verður eldið heilbrigðara þar sem skorið er á smitleiðir. Samhliða þessum breytingum er ætlun okkar að stækka svínabúið verulega. Við munum verða í samstarfi og samvinnu við annan svínabónda, Gunnar Gunnarsson á Hýrumel í Borgar- firði, og hann mun einnig framleiða smágrísi fyrir eldið á Melum.“ Þannig lýsa Vallárfeðgar framtf ðaráformum sínum um að færa út kvíarnar í svínaræktinni. A Vallá er er rekið eitt af stærstu svína- búum landsins í samvinnu feðganna Geirs Gunnars Geirssonar og Geirs Gunnars Geirssonar. Flestir sem leið eiga um Vesturlandsveg kannast við Vallá en undanfarin ár hefur gríðarstórt íbúðarhús sem þar hefur risið vak- ið verðskuldaða athygli. Hér er um afar sérstæða bogamyndaða byggingu að ræða sem teiknuð er af Vífli Magnússyni arkitekt og er þakin torfi að utan að mestu leyti. Þetta er í rauninni viðbygg- ing við eldra íbúðarhús. A Vallá búa tvær kynslóðir. Annars vegar Geir Gunnar eldri og kona hans, Hjördís Gissurardóttir, en hins vegar börn þeirra. Geir Gunnar yngri býr þar með eiginkonu sinni, Guðrúnu Olafíu Sig- urðardóttur, og tvær dætur Gunnars og Hjördísar, Friðrika og Hallfríður, eru einnig búsettar efra og taka, eins og bróðir þeirra, virkan þátt í ýmsu bústangi. Fjölskyldan hefur mörg járn í eldinum þar sem Vallárbændur fást við svínarækt, eggjaframleiðslu og andarækt auk þess sem þeir eiga helminginn í sérstöku búi sem ungar út hænuungum fýrir kjúklingabú. Feðgarnir og nafnarnir skipta með sér verkum þannig að Geir eldri sér um hænsnabúið og andaræktina sem nýlega var flutt úr Lundi í Kópavogi í Saltvík á Kjalarnesi en Vallárbændur keyptu Saltvík fýrir rúmu ári síðan. Geir yngri sér hins vegar um svínaeld- ið, enda sérmenntaður á því sviði úr dönskum búnaðarháskóla. 25 þÚSIind grisir eftir 3 ar Eins og stendur er svínabúið á Vallá rekið í nýjum og glæsilegum 2.400 fermetra húsakynnum sem eru þriggja ára gömul. Þar eru framleidd 360 tonn af svínakjöti á ári eða um tonn á dag. A Vallá eru um 220 gyltur en þegar grísaeldisbúið á Melum tekur til starfa verður pláss til þess að fjölga gyltum verulega á Vallá og feðgarnir segja að þær verði um 560 þegar allt verður komið í fullan gang. Gunnar bóndi á Hýrumel mun einnig stækka sitt bú í 560 gyltur svo alls verða aldir upp grísir undan 1120 gylt- um á Melum. Þegar starfsemi á Melum verður komin í fullan gang eftir um 3 ár héðan í frá verða aldir þar upp 25 þúsund grísir á ári. Með þessu er verið að tvöfalda framleiðslu beggja búanna og rúmlega það. Þegar hefur verið gengið frá kaupunum á Melum og vinna haf- in við byggingu húsa. 500 hektarar lands lýlgja með í kaupunum og kemur það sér vel til þess að losna við svínaskítinn sem ekki má setja í sjóinn en reiknað er með að 12 þúsund tonn af svínaskít falli til þegar búið verður komið í fullan gang. Verðum með 50% af markaðnum „Alls staðar í Evrópu er bannað að láta seyru eða úrgang frá svona búskap fara í sjóinn og 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.