Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1999, Síða 27

Frjáls verslun - 01.05.1999, Síða 27
NÆRMYND Stíllinn Hjörleifur á gott með að umgangast fólk. Hann er opinn og frjálslegur í viðmóti í daglegri umgengni og slær gjarnan á látta strengi við samstarfsmenn sína. Það þýðir samt ekki að hann hleypi fólki of nálægt sér því mörkin eru alveg skýr. Hjörleifur á vanda til að vera óþolinmóöur og hann vill taka hratt og ákveðið á málum þegar honum finnst hlutir ekki ganga nógu rösklega. systirin er Jóhanna, f. 1952, innkaupastjóri hjá Binney og Smith í Ameríku, næst kem- ur Björg, f. 1954, fulltrúi hjá Umboðsmanni barna, þá Hjöríeifur og yngst er Herdís, hjúkrunarfræðingur, f. 1961. Æskuslóðirnar: Hjörleifur fæddist á AustQörðum en foreldrar hans fluttust í vesturbæ Kópavogs og þar hefur hann búið að mestu síðan. Námið: Hjörleifur varð stúdent 1977 frá Menntaskólanum í Kópavogi, nam síðan vélaverkfræði við Háskóla íslands og lauk prófi þaðan 1981. Hann hélt þá utan og lauk M. Sc. prófi frá Oklahoma State Uni- versity í Bandaríkjunum árið 1982. Starfsferillinn: Eftir heimkomuna frá Ameríku vann Hjörleifur hjá Orkustofnun í eitt ár en 1984 réðst hann til starfa hjá Eim- skip og starfaði fyrst sem fulltrúi í Amer- íkudeild, var forstöðumaður Ameríku- deildar 1985 til 1988, forstöðumaður Eim- skips í Rotterdam 1988 til 1989, forstöðu- maður áætlunarflutninga 1989 til 1994, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips frá 1994 og framkvæmdastjóri innanlands- sviðs frá 1997. Hann tók við starfi forstjóra Hampiðjunnar 10. júní sl. Félagsmálin: Hjörleifur er einn af stofn- félögum Handknattleiksfélag Kópavogs, tækja Eimskips og verið stjórnarformaður TVG Zimsen hf. og Vöruflutningamið- stöðvarinnar. Fjölskyldan: Hjörleifur kvæntist 1981 Asthildi Elvu Bernharðsdóttur, viðskipta- fræðingi frá Isafirði, f. 1960. Hjörleifur og Asthildur skildu. Þau eiga saman eitt barn, Elvar Þór, f. 1986. Unnusta Hjörleifs er Hjördís Ásberg, forstöðumaður starfsþróunardeildar hjá Eimskip. Vinirnir: Hjörleifur er hluti af nánum vinahópi sem hefur fylgst að í leik, námi og starfi síðan í barnæsku í vesturbænum í Kópavogi. Þetta eru, auk Hjörleifs, Lárus Ásgeirsson, framkvæmdastjóri hjá Marel, Guðmundur Ragnar Jónsson, prófessor í vélaverkfræði, Jóhann Már Hektorsson, tæknifræðingur hjá Fjarhitun, Sveinn Geir Einarsson, svæfingalæknir í Hafnarfirði og Kristján Jónasson, stærðfræðingur hjá ís- lenskri erfðagreiningu laginn við að fá fólk til að vinna með sér. Af þessum ástæðum hefur Hjörleifur verið af- skaplega vinsæll meðal starfsmanna Eim- skips. Mörgum þykir stemningin nálægt toppi valdapýramídans þar ekki sérstaklega þægileg. Samkeppni, vinnusemi og kröfu- harka setja svip sinn á starfsandann. Karlarnir á eyrínní Hjörieifur hefur starf- að hjá Eimskip á tímum mikilla breytinga. Glöggt dæmi um þær breytingar sem hann hefur unnið að ásamt samstarfsfólki sínu er þróun þjónustumiðstöðvarinnar í Sunda- höfh. Þar setur nútímatækni mark sitt á þjónustuna sem miðast betur við þarfir við- skiptavinanna en áður. Jafnframt hefur tek- ist að virkja hinn harða kjarna starfsmanna á eyrinni til að vinna með jákvæðum hætti að þeim breytingum. Á leiðinni upp Með ráðningu Hjörleifs í starf forstjóra Hampiðjunnar er staðfest sú trú sem menn hafa á honum sem stjórn- veröur forstjóri Hampiöjunnar HK í Kópavogi, og lék handknattleik með félaginu á fyrstu árum þess. Hann hefur setið í stjórn knattspyrnudeildar Breiða- bliks í Kópavogi og stjórn Blikaklúbbsins. Hann var í stjórn Sambands íslenskra kaupskipaeigenda 1996 til 1998, formaður seinna árið, og hefur setið í stjórn Verslun- arráðs íslands frá 1996 og í framkvæmda- stjórn þess frá 1998. Hann hefur setið í stjórn Slippstöðvarinnar á Akureyri frá 1996 og er nýkjörinn formaður þar. Einnig hefur hann setið í stjórnum dótturfyrir- Stíllinn: Hjörleifur á gott með að um- gangast fólk. Hann er opinn og frjálslegur í viðmóti í daglegri umgengni og slær gjarnan á létta strengi við samstarfsmenn sína. Það þýðir samt ekki að hann hleypi fólki of nálægt sér því mörkin eru alveg skýr. Hjörleifur á vanda til að vera óþolin- móður og hann vill taka hratt og ákveðið á málum þegar honum finnst hlutir ekki ganga nógu rösklega. Hjörleifi er þó tamt að beita fremur mjúkum stjórnunaraðferðum og er sagður anda. Á 14 ára ferli innan þessa stóra fyrir- tækis hafa honum verið falin ýmis verkefni sem hann hefur ítrekað sýnt að hann réð vel við. Segja má að innan Eimskips hafi hann náð eins langt og hægt var. Hjörleifur er prýðilega metnaðargjarn og hefur sóst eftir aukinni ábyrgð og forráðum innan Eimskips. Forstjórastarfið hjá Hampiðj- unni er því rökrétt framhald á farsælum ferli. SD 27
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.