Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1999, Side 38

Frjáls verslun - 01.05.1999, Side 38
Edith Randý hjá Landlist annast dagblaðaauglýsingar Bónuss. Lögð er áhersla á lágt vöruverð og tilboð sem og slagorðið: Bónus - býður betur. „ Við sýnum vörurnar í auglýsingunum eins og þœr eru í búðunum; kjötið er til dæmis í umbúðunum enda sjá viðskiptavinirnir það þannig í kælun- um en ekki tilreitt á fati. “ in. Hann vakti enga sérstaka athygli til að byija með en þegar önnur búðin opnaði varð hann meira áberandi og hefur verið þekktur sem vörumerki verslananna síð- an.“ Um það bil tvisvar í mánuði gefúr Bón- us út sérstök blöð með tilboðum og eins birtast dagblaðaauglýsingar nokkuð reglu- lega. „Það eru gerðar áætlanir um auglýs- ingabirtingar fyrir árið en ekki er alltaf far- ið eftir þeim. Bæði breytist eitt og annað hjá verslununum sjálfum og eins er tekið mið af því sem er að gerast á markaðnum.“ segir Randy. Bónus leggur áherslu á að sýna vörurnar í auglýsingunum eins og þær eru í búðunum; kjötið er til dæmis í umbúðunum enda sjá viðskiptavinirnir það þannig í kælunum en ekki tilreitt á fati. Og í síbreytilegu umhverfi matvöruverslunar er nauðsynlegt að vinna auglýsingarnar hratt og örugglega og sumar Bónussaug- lýsingarnar verða til á örfáum klukku- stundum. Þetta eru þó ekki ákjósanleg vinnubrögð að mati Randyjar en „oft gefst lengri tími til að liggja yfir gerð þeirra." Hún hefur unnið að auglýsinga- og kynn- ingarmálum fýrir Bónus frá stofnun fyrir- tækisins en segir að allir góðir hlutir gerist með hópvinnu og vísar þar sérstaklega til samstarfs við þá feðga Jóhannes og Jón As- geir. Nýkaup Blaðaauglýsingar Nýkaups hafa verið nokkuð frábrugðnar auglýsingum annarra stórmarkaða. Fyrirsagnir á borð við Risaeðlur í steik og Svínslega freistandi verð hafa vakið athygli og hlýtur þá ákveðnu markmiði að vera náð þar sem auglýsingum er jú ætlað að vekja athygli. Auglýsingastoían Hið opinbera sér um dag- blaðaauglýsingar og bæklinga Nýkaups auk þess sem stofan hefur hannað skilti og aðrar merkingar í verslunun- um sjálfum. Halldór Gunnarsson hjá Hinu opinbera segir að Ný- kaupsmenn hafi lagt grunninn að auglýsing- unum og meðal annars komið með slag- orðið „þar sem ferskleikinn býr“. Dag- blaðaauglýsingar Nýkaups verða til á skömmum tíma eins og hjá öðrum stór- mörkuðum og það hefur sína kosti og galla. Kjúklingar lljúga Út! „Það er ákveðin ögrun sem felst í að vinna þessar auglýs- ingar. Tíminn er knappur, það þarf að koma miklum upplýsingum á framfæri á takmörkuðu plássi og allt þarf þetta að vekja eftirtekt," segir Halldór og bætir við að hugmyndir að texta fái hann við ýmis tækifæri, til dæmis í bílnum og í baði. Eins og áður sagði hafa áberandi fyrirsagnir ein- kennt auglýsingar Nýkaups og kennir þar ýmissa grasa. Einhverju sinni voru kjúklingar auglýstir á tilboði og þá var eft- irfarandi fyrirsögn notuð: „Kjúklingarnir fljúga út, ferskir og á finu verði“. I sláturtíð- inni síðustu var auglýst: „SS keppir á fínu verði í Nýkaupi“ og grænmetisskyndiréttir voru auglýstir með orðunum: „Gott í ein- um grænum". Auglýsingar Nýkaups hafa líka tekið mið af því sem hæst ber í fréttum og má í því sambandi nefna að þegar Halldór Gunnarsson hjá Hinu oþinbera sem sér um dagblaða- auglýsingar og bæklinga Nýkauþs. „Við höfum verið með áber- andi fýrirsagnir og þar hefur kennt ýmissa grasa, eins og „Kjúklingarnirfljúga út, ferskir og á fínu verði“ og í síðustu slát- urtíð mátti sjá fyrirsögnina „SS keppir á fínu verði í Nýkauþi". En það er samt ein sem alltaf virkar: „50% ajsláttur" - það fær enginn leið á henni. “ Sverrismálið svokallaða var efst á baugi var lax auglýstur á sérstöku tilboði undir fyrirsögninni: „Nú komast allir í lax“ og þegar ljósmyndir af fáklæddum íslenskum stúlkum birtust í Playboy með tilheyrandi umræðu auglýsti Nýkaup ber á góðu verði með orðunum: .Æðisleg ber“. Halldór Gunnarsson segir hinsvegar að þrátt fyrir að þessar fyrirsagnir hafi vakið athygli sé ein sem alltaf virki: 50% afsláttur; „það fær enginn leið á henni!“ Háar fjárhæðir Kaupmennirnir voru tregir til að upplýsa hversu miklum pen- ingum þeir verðu til auglýsinga á ári hverju. Sé hinsvegar tekið mið af tölum sem þó veiddust upp úr mönnum má gera ráð fyrir að samtals auglýsi stórmarkaðir fyrir vel á annað hundrað milljónir króna á ári. Þó ber að hafa í huga að það eru ekki alltaf verslanirnar sjálfar sem greiða aug- lýsingarnar, framleiðendur og heildsalar taka oft drjúgan þátt í kostnaðinum, enda oft um beinar auglýsingar á vörum þeirra að ræða. Þá skal tekið ffarn að ekki var for- vitnast um auglýsingar allra stórmarkaða heldur nokkrir valdir af handahófi. S9 38

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.