Frjáls verslun - 01.05.1999, Page 49
Með eiginmanninum, Ásgeiri Asgeirssyni, en þau hjón hafa gengið ígegnum súrt og sœtt í út-
gerðinni. Asgeir vinnur hjá Sœunni Axels hf. en Sæunn rekur hótelið sem þau festu kauþ á fyr-
ir tveimur árum. Hjá þeim starfa 120 manns í 1.100 manna byggðarlagi.
FYRIRTÆKI
tgerðarfyrirtækið Sæunn Axels í
Ólafsfirði er fjölskyldufyrir tæki
samheldinnar fjölskyldu. Sæunn
Axels, móðirin sem fyrirtækið er nefnt eft-
ir, hefur ekki látið sitt eftir liggja í hraðri
uppbyggingu fyrirtækisins og hún berst af
alhug fyrir tilveru síns byggðarlags þar
sem hún hefur ákveðið að bera beinin.
Upphafið að þessu mikla útgerðarfyrir-
tæki má rekja til trillukaupa fjölskyldunnar
árið 1980. Þá ákváðu Sæunn og synir henn-
ar að láta verða af því að eignast trillu en
þau hafði lengi langað til þess að geta siglt
um fjörðinn og veitt í soðið. Ahugamál
þeirra vatt hins vegar upp á sig og fyrr en
varði voru þau farin að standa hörðustu
trillukörlunum á sporði. Þegar bókhald
trillunnar komst ekki lengur fyrir í lítilli
skrifblokk hjá eiginmanni Sæunnar og fjár-
fest hafði verið í annarri og stærri trillu, var
áhugamálið orðið alvarlegt og fjölskyldan
ákvað að stofna útgerðarfyrirtækið Sæ-
unni Axels. Til að byija með var einn
starfsmaður í fyrirtækinu. Sæunn Axels
sjálf.
Heimavinnandi að fertugu Sæunn Axels
er 57 ára gömul, fædd 1942. Hún er fædd
og uppalin á Ólafsfirði eins og eiginmaður
hennar, Ásgeir Ásgeirsson, sem er fimm
árum eldri en hún. Þau eiga fjóra syni sem
allir koma nálægt fjölskyldufyrirtækinu.
Elstur er Ásgeir Logi, 36 ára, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Sæunnar Axels í Ólafsfirði
en nú bæjarstjóri þar í bæ, næstur er Axel
Pétur, 34 ára, framkvæmdastjóri Sæunnar
Axels, þá Sigurgeir Frímann, 32 ára, en
hann sér um sölumálin í Reykjavík og inn-
kaup á fiski á mörkuðum, og yngstur er
Kristján Ragnar, 22 ára, en hann er að hefja
nám í Samvinnuháskólanum á Bifröst í
haust
Það var ekki fyrr en synirnir fóru að
stálpast að Sæunn fór að huga að því að
fara á vinnumarkaðinn en fram að þvi hafði
hún verið heimavinnandi. Fyrir utan að sjá
um heimilið tók hún menn í fæði, keypti
sér pijónavél, pijónaði og seldi. Hún segir
að það hafi ekki verið nein fórn hjá sér að
vera heima. Hún hafi viljað hafa þennan
háttinn á; vera til staðar fyrir strákana sína,
og hún hafi líka fengið það margfalt borg-
að til baka. „Við eigum að vera miklu meira
heima, við konur,“ segir Sæunn þegar hún
fær sér sæti með kaffibolla í hönd í setu-
stofu á Hótel Ólafsfirði, en hótelið keypti
hún ásamt eiginmanni sínum fyrir tveimur
árum og hennar hlutverk í dag er að vera
ffamkvæmdastjóri þess. „Eg er jafnréttis-
sinni en ekki kvenremba og það ættu allar
konur að harma það að geta ekki verið
meira heima með börnin sín. Þótt ég væri
heimavinnandi öll þessi ár voru aldrei sett-
ar á mig neinar kvaðir, ég hef gert það sem
mig hefur langað til enda fer víst best á
Nafn: Sæunn Axels. I
Aldur: 57 ára. I
Maki: Ásgeir Ásgeirsson. f
Börn: Eiga fjóra syni; Ásgeir Loga, /
36 ára, bæjarstjóra á Ólafsfirði, Axel i
Pétur, 34 ára, frkvstj. Sæunnar Ax- '
els, Sigurgeir Frímann, 32 ára, hjá f
Valeik og Kristján Ragnar, 22 ára, /
nemanda.
Umsvif: Útgerð og hótelrekstur á
Ólafsfirði. Sæunn Axels hf. á 86% í
útflutningsfyrirtækinu Valeik í
TEXTI: Halla Bára Gestsdóttir
MYNDIR: Gunnar Sverrisson
HUN á Olafsfirði
/ /
útgerdarfyrirtœki oghótel á Olafyfiröi. Sæunn erkölluö HUN afbœjarbúum.
Valeik - sem raunar er helsti styrktaraöili Kristins Björnssonar skíöamanns.
einni lítilli trillu!
49