Frjáls verslun - 01.03.2000, Blaðsíða 54
Hluti lögmanna hjá LOGOS lögmannsþjónustu. I öftustu röð frá vinstri Gunnar Sturluson, Ragnar Tómas
Árnason, Þórólfur Jónsson. í næstöftustu röð: Árni Vilhjálmsson, Erlendur Gíslason, Guðmundur J. Odds-
son og Pétur Guðmundarson. I nœstfremstu röð: Svanhvít Axelsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Hákon Arna-
son, Jakob R. Möller og Einar Baldvin Axelsson. Fremst: Othar Örn Petersen, Guðrún Björg Bjarnadótt-
ir, Hjördís Halldórsdóttir, Kristín Eduiald og Oddný Guðmundsdóttir.
Að hluta til hefur þetta líka
með „branding" að gera, að
starfa undir nafni sem allir
vita fyrir hvað stendur," segir
hann. Að hans mati er stöðug-
leiki að komast á markaðinn
með þremur stórum fyrir-
tækjum og nokkrum litlum
auk fjölda einyrkja. „Ennþá
eru einhver tækifæri til sam-
einingar en sá brunnur er eðli
málsins samkvæmt að tæm-
ast. Við erum komin með
markað sem er mjög öflugur
og heilbrigður þar sem þrjú
stór fyrirtæki hafa öll lagt
metnað í alþjóðleg viðskipti
og standa jafnfætis endur-
skoðunarfyrirtækjum hvar
sem er í heiminum," segir
hann.
Hæfir starfsmenn skipta
miklu máli á endurskoðunar-
stofum eins og annars staðar
á vinnumarkaði og þar eru
endurskoðendur í samkeppni
við aðra. Þetta telur Olafur
Kristinsson að ýti óhjákvæmi-
lega undir þá þróun sem hef-
ur átt sér stað auk þess sem
hann bendir á að endurskoð-
un sé ekki beinlínis tískufag í
háskólanum, þvert á móti eigi
fagið frekar undir högg að
sækja hjá ungu fólki - það sjái
ekki tækifærin. „Ungt fólk
leitar að krefjandi verkefnum
sem bjóða áhugaverða fram-
tíðarsýn. Endurskoðun hefur
haft frekar slaka ímynd sem
spennandi kostur en stærri
endurskoðunarfyrirtæki geta
boðið meiri breidd í verkefna-
vali, stór og krefjandi við-
fangsefni, markvissari þjálfun
til starfs og möguleika á
starfsþjálfun erlendis. Allt
þetta gerir stærri fyrirtækjun-
um auðveldara um vik að ráða
hæft og gott starfsfólk,“ segir
hann.
Hluti af endurskoðendum hjá KPMG. Fremst frá vinstri: Hildur Arnadóttir, Margrét G. Flóvenz, Haukur
Gunnarsson, Erna Bryndís Halldórsdóttir, Sveinn Jónsson, Geir Valur Ágústsson. I annarri röð: Anna
Þórðardóttir, Sœmundur Valdimarsson, Helgi V. Jónsson, Hafdís Böðvarsdóttir, Símon Gunnarsson, Helga
Harðardóttir og Jón Einarsson. Öftust eru: Aðalsteinn Hákonarson, Sveinn Jónsson, Sigríður Helga
Sveinsdóttir, Jón S. Helgason, Alexander Eðvardsson, Heimir Haraldsson, Óskar Sverrisson, Sigurþór C.
H. Guðmundsson, Guðni Steinar Gústajsson, Eyvindur Albertsson og H. Ágúst Jóhannesson.
gangur að þróunarstarfi sem við hefðum aldrei getað staðið
að einir enda hefði aldrei verið hægt að verja þann tilkostnað.
Evrópumál á takteinunum
Erlendis hafa endurskoðunar-
fýrirtæki bætt við sig lög-
fræðiþjónustu til hliðar við
hefðbundna endurskoðunar-
vinnu og rekstrarráðgjöf og
hér á landi hafa lögfræðingar verið ráðnir inn í endurskoðun-
arfýrirtækin en það má kannski segja að samruni Lex lög-
54