Frjáls verslun - 01.04.2000, Qupperneq 45
NETIÐ
viðskiptahugmyndum sem stundum taka einhvern tíma, en í
dag býðst ijárfestum ekki sá munaður að taka sér einhvern
tíma til ákvörðunar. Einhverjir virðast tilbúnir til að veita miklu
fé til fjárfestinga þó að enn eigi eftir að ráða stjórnendur að fé-
laginu sem ijárfesta á í og ljúka við viðskiptaáætlunina. Það er
næsta víst að mikið fé sem fest er á sviði internetijárfestinga
mun brenna upp og verða að engu. En þeir sem veðja á réttu
viðskiptahugmyndirnar munu líka margfalda ijárfestingu sína
ansi hratt. I þessum íjárfestingum er mesta áhættan. Þarna er
verið að ijárfesta í nýju hagkerfi þar sem kringumstæður eru
óráðnar, markaðurinn, tækniþróunin og samkeppnisaðilarnir -
þ.e. allir þættir, eru háðir væntingum."
Áyiskun urn framtíð Þegar rætt er um verðið, sem hefur
lækkað verulega á hlutabréfamarkaðnum Nasdaq í Banda-
ríkjunum, eru ijárfestar sammála um að verðlagning sé allt
of há hér á landi og Páll Kr. Pálsson óttast að fjárfestingafyr-
irtæki og stórir sjóðir fari oft ekki nægilega varlega. „Oft
skortir varkárni eða þá að þekkingarforsendurnar eru ekki
nógu góðar þegar menn taka ákvarðanir. Það er alvarlegt,
einkum þegar verið er að festa fé almennings, til dæmis lif-
eyrissjóða," segir hann. Astæðan? Jú, í hefðbundnum félög-
um er auðvelt að ijárfesta því að markaðurinn er þekkt stærð
og upplýsingar um viðskipti, keppinauta og samkeppnis-
stöðu liggja fyrir. Þegar fyrirtæki sem byggja afkomu sína á
Netviðskiptum eru metin hefur ijárfestandinn ekki þennan
samanburð. Þetta er bara ágiskun um framtíð.
Styrkleiki viðskiptahugmynda og stjórnendur fýrirtækja
geta skipt sköpum þegar ijárfestingar eru annars vegar þvi
að þegar fram í sækir gildir það sama um nýju fyrirtækin,
sem gera út á netviðskipti, og þau gömlu - í hverju felst starf-
semin og hverjir stjórna fyrirtækjunum. í dag er erfitt að
bera nýja hagkerfið saman við það gamla því að nýja hag-
kerfið er enn í mótun og það gerir mönnum vissulega erfið-
ara fyrir. En í framtíðinni verður samanburðurinn raunhæfur
og þá léttist róðurinn. Búist er við að það taki tvö til þrjú ár
þar til stöðugleiki hefur komist á nýja hagkerfið og þá telja
ijárfestar að almenningur verði orðinn virkur þátttakandi í
daglegum viðskiptum á Netinu.
- En hvernig lítur framtíðin út hvað dagleg viðskipti varðar?
Gísli Ragnar Ragnarsson, markaðsstjóri Kögunar, telur að
eftir þrjú til ijögur ár verði tveir til þrir stórir aðilar búnir að
ná lykilstöðu á markaðnum, hver á sínu sviði, til dæmis í
gagnaflutningum, hýsingu og svo framvegis.
Halda fast í eignarhaldið Viðskipti með hugbúnað hafa verið
blómleg á Netinu, eins hafa viðskipti með bækur, geisladiska
og ferðalög farið vaxandi. Fjárfestar spá því að í nánustu fram-