Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2000, Side 90

Frjáls verslun - 01.04.2000, Side 90
AUGLÝSINGAR Slagorð í minnum höfð Gottslagorð ergulli betra. Mörgslagorð segja lítið sem ekkert en gott slagorð snýst um að stilla auglýsandanum í ákveðna fjarlœgð frá keppinautnum. Efdr Vigdísi Stefánsdóttur Iauglýsingum gildir að ná at- hygli og halda henni svo með því að setja það sem auglýst er fram á þann veg að minnisstætt verði. Allt of mörg slagorð segja lítið eða ekkert eins og t.d. „Við erum bestir" - eða „alltaf gæði“. Hins vegar eru mörg slagorð góð og sum standa upp úr og verða lengi i minnum höfð. „Málið snýst um að finna slagorð sem stillir auglýsand- anum í ákveðna fjarlægð frá keppinaut- unum. Það er algert grundvallaratriði," segir Ingólfur Hjörleifsson hjá Góðu fólki. Þar sem fagmennirnir versla er þér óhætt - sögðu BYKO menn á sínum tíma og stóðu við það og gera enn. Síð- an bættist við BYKO byggir á breidd- inni, til að vekja athygli á staðsetning- unni, Breiddinni, sem er á móti Mjódd- inni og þessi slagorð festust í fólki, enda tilgangurinn sá. Fleiri slagorð hafa náð fótfestu og muna sjálfsagt allir eftir ORA auglýsingunni- þú opnar ORA dós og gæðin koma í ljós, eða SS - fremstir fyrir bragðið og svo hinni landsfrægu lambakjötsauglýsingu, lambakjöt á diskinn minn. Mörg slagorðin eru tengd mat á einn eða annan veg, eins og - Vífilfell - alveg einstök tilfmning - sem átti að fýlgja því að drekka kókið. Þegar klukkubúðirnar hófu innreið sína á ís- lenskan matvörumarkað þurfti að leggja áherslu á hagræðið sem þeim fylgdi - ...þegar þér hentar - eins og 10- 11 búðirnar auglýstu. Pizzur eru mikið ÖRUGG MIÐLUN UPPLÝSINGA ''ár - þar sem tryggingar snúast uni fólk auglýstar enda dágóðar upphæðir í húfi og mikils um vert að fólk muni eftir „réttu“ pizzunni. „Takf ana heim“, sagði Jón Bakan, en Pizzabær lagði meiri áherslu á þörfina: „Verð að fá'ana" - hvorki meira né minna. Húsasmiðjan er þekkt fýrir sitt slagorð - grunnur að góðu heimili og Morgunblaðið segist vera kjarni málsins - staf fýrir staf. VISA vísaði mönnum leiðina á meðan Atlaskort var vopn í lífsbaráttunni og um leið og þess- ir aðilar hvöttu til aukinnar notkunar kreditkorta var Lánasýsla ríkisins að hvetja fólk til að eyða í sparnað með því að kaupa áskrift að spariskirteinum rík- issjóðs. Hvað snertir bíla situr sjálfsagt fast í fólki að Toyota sé tákn um gæði og Volvo fasteign á hjólum en Honda fór aðra leið: Fyrst kem ég - svo bíllinn. Og Sævar Karl varð þjóðþekktur fyrir að hafa einfaldan smekk - vilja aðeins það besta. Mjólkursamsalan og Osta- og smjörsalan hafa átt mörg slagorðin. Nú vita allir að ostur er veislukostur og að mjólk er góð. Gosdrykkurinn Fresca er fyrir þig og Freyju Rís spyr: ,Átt þú vini?“ og þar er væntanlega átt við að auðveldara sé að eignast vini ef maður á Freyju Rís. Ekki er síðra að fá sér AEG vörur því þær eru hvorki meira né minna en „Alveg Einstök Gæði“, og til að vera nú alveg viss um að allt sé eins og það á að vera borgar sig ekki að tryggja eftir á - eða að minnsta kosti er það skoðun Sjóvá Almennra.SO Mwópa jefiv Cífinu Cit 90

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.