Morgunblaðið - 26.01.2001, Side 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÓEINING og flokkadrættir hafa sett
mark sitt á hæstarétt Bandaríkj-
anna eftir að rétturinn kvað upp
hinn sögulega úrskurð sem réð úr-
slitum bandarísku forsetakosning-
anna, að því er fram kemur í um-
fjöllun dagblaðsins USA Today.
Deilunum um úrslit forsetakosn-
inganna í Bandaríkjunum lauk í des-
ember sl. þegar hæstiréttur úr-
skurðaði, George W. Bush í vil, að
endurtalning atkvæða í Flórída
stæðist ekki stjórnarskrána. Fimm
dómarar af níu mynduðu meirihlut-
ann sem kvað upp dóminn en fjórir
dómaranna voru mótfallnir þessari
niðurstöðu. Að sögn hæstarétt-
arfréttaritara USA Today, Joan
Biskupic, eimir enn eftir af þessum
klofningi meðal dómaranna sem
taka það auk þess nærri sér að hafa
neyðst til að leika aðalhlutverkin í
hinu pólitíska drama.
William Rehnquist, forseti hæsta-
réttar, breytti í ræðu á nýársdag frá
þeirri venju að minnast ekki á ein-
stök dómsmál og fjallaði um mála-
ferlin vegna kosningaúrslitanna.
„Forsetakosningarnar voru þyngsta
prófraunin sem lýðræðiskerfi okkar
hefur gengið í gegnum,“ sagði hann-
og kvaðst vona að slík afskipti
hæstaréttar „yrðu sjaldan eða aldrei
nauðsynleg í framtíðinni.“
Þúsundir mótmælabréfa
Dómurum hæstaréttar hefur ver-
ið umhugað að halda sér utan sviðs-
ljóssins og það er afar sjaldgæft að
úrskurðir réttarins valdi írafári. Eft-
ir kosningadóminn hafa hins vegar
borist þúsundir bréfa frá reiðum
Bandaríkjamönnum. Sumir bréfrit-
aranna hafa jafnvel látið kjósenda-
skilríki sín fylgja, með þeim ummæl-
um að það hafi verið tímasóun að
mæta á kjörstað í nóvember. Eitt
bréf mun til dæmis hafa borist, þar
sem skilaboðin voru stutt en skýr –
mynd af hauskúpu og krosslögðum
beinum. Hefur þetta haft slæm áhrif
á andrúmsloftið innan réttarins, sem
var þegar lævi blandið sökum klofn-
ings. Samskiptin milli dómaranna
sem tilheyrðu meirihlutanum ann-
ars vegar og minnihlutanum hins
vegar munu enn vera stirð, sex vik-
um eftir að úrskurðurinn var kveð-
inn upp.
Meirihlutinn skiptist reyndar í
tvennt, því Rehnquist, Antonin
Scalia og Clarence Thomas héldu
því fram að dómstólar í Flórída
hefðu ekki haft vald til að heimila
endurtalningar atkvæða og Sandra
Day O’Connor og Anthony Kennedy
töldu endurtalningar einnig brjóta í
bága við stjórnarskrá en á þeirri for-
sendu að ekki hefði verið farið eftir
samræmdum reglum um endurtaln-
ingu í sýslum ríkisins. Þau tvö voru
undir þrýstingi frá minnihlutanum
um að fallast á málamiðlun sem fæli
í sér að leyft yrði að halda endur-
talningunni áfram en samkvæmt
samræmdum reglum. O’Connor og
Kennedy tóku á endanum afstöðu
með Rehnquist, Scalia og Thomas,
en David Souter, Stephen Bryer,
John Paul Stevens og Ruth Bader
Ginsburg tilheyrðu minnihlutanum.
USA Today hefur eftir starfs-
mönnum hæstaréttar að klofning-
urinn virðist hafa komið niður á af-
köstum dómaranna. Eftir jólafrí
hefur hann úrskurðað í um það bil
helmingi færri málum en venja er.
Jafnvægið gæti raskast
Ýmislegt þykir meira að segja
benda til að einn dómaranna,
Sandra Day O’Connor, íhugi að láta
af störfum vegna þessa. O’Connor,
sem er sjötug, hefur setið í hæsta-
rétti í tvo áratugi og var fyrsta kon-
an til að taka við embætti hæstarétt-
ardómara. Hún og Rehnquist eru
sögð hafa tekið kosningamálið sér-
staklega nærri sér. Þau eru bæði
repúblikanar og nærri starfslokum
og vitað er að þau vilja heldur að
forseti úr röðum repúblikana velji
eftirmann þeirra en það gerir stöðu
þeirra afar óþægilega.
O’Connor hefur að sögn tjáð vin-
um að á sínum starfsferli hafi dóms-
mál aldrei valdið slíkri óeiningu inn-
an réttarins. Haft er eftir vinum
hennar að vegna málsins, og þess að
eiginmaður hennar sé ekki heilsu-
hraustur, hafi hún hug á að setjast í
helgan stein næsta sumar.
O’Connor hefur neitað að svara
spurningum fjölmiðlamanna þar að
lútandi en ef hún lætur af störfum
fær Bush strax tækifæri til að setja
sitt mark á réttinn. Forsetinn hefur
sagt að hann muni skipa dómara
sem muni túlka stjórnarskrána á
íhaldssaman hátt og hefur nefnt
hina íhaldssömu dómara Scalia og
Thomas sem fyrirmyndir. O’Connor
þykir vera mitt á milli íhaldsmanna
og frjálslyndra í réttinum og er álit-
in fara með oddaatkvæðið. Því er
ljóst að jafnvægið í hæstarétti rask-
ast ef hún lætur af störfum og Bush
skipar íhaldsmann í hennar stað.
Hæstiréttur Bandaríkjanna enn klofinn eftir sögulegan úrskurð í forsetakosningunum
Rætt um að einn dómar-
anna láti af störfum
HANS-Dietrich Genscher, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Þýskalands,
vísaði því á bug í gær að ríkisstjórn
Helmuts Kohls hefði þegið mútur í
tengslum við sölu bryndreka til Sádi-
Arabíu. Hann sagði tilefni sölunnar
hafa verið að styðja við bakið á
Bandaríkjunum í Persaflóastríðinu.
Genscher hélt þessu fram í yfir-
heyrslu sérskipaðrar nefndar þýska
þingsins sem fer með rannsókn á
ásökunum um að í kanslaratíð Helm-
uts Kohls 1982–1998 hafi greiðendur
í leynisjóði Kristilegra demókrata
(CDU) getað haft áhrif á ákvarðanir
ríkisstjórnarinnar.
Genscher sagði að Þjóðverjar
hefðu viljað styðja Bandaríkjamenn í
stríðinu gegn Írökum, sem hertekið
höfðu Kúveit 1990, en athafnafrelsi
ríkisstjórnarinnar hefði verið tak-
markað vegna þeirrar stefnu, sem
tekin var upp eftir hörmungar
heimsstyrjaldanna og þátt Þjóðverja
í þeim, að senda ekki hersveitir á er-
lenda grundu. Genscher var utanrík-
isráðherra Þýskalands í 18 ár, allt til
1992.
Genscher sagði að þáverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, James
Baker, hefði falast mjög eftir stuðn-
ingi Þjóðverja sem einnig lögðu sem
nemur 475 milljarða króna til stríðs-
reksturins.
Gjaldkeri CDU á tíma Persaflóa-
stríðsins, Walter Leisler Kiep, tók
við andvirði 41 millj. ísl. kr. frá þýsk-
kanadíska vopnasalanum Karlheinz
Schreiber eftir að skrifað hafði verið
undir sölu bryndrekanna. Rann-
sóknaraðilar halda því fram að pen-
ingarnir komi frá þýska vopnafram-
leiðandanum Thyssen og hafi verið
mútur til að vinna hylli ríkisstjórn-
arinnar.
Kohl í yfirheyrslu
í þriðja skipti
Kohl kom fyrir nefndina í þriðja
skipti síðdegis í gær og sagðist engu
vilja bæta við mál bryndrekasölunn-
ar. Hann endurtók fyrri staðhæfing-
ar sínar um að yfirheyrslur nefnd-
arinnar væru samsæri gegn honum
sem gerðu meira úr þeim mistökum,
sem hann hefur þegar játað að hafa
gert, en efni stæðu til.
Kohl viðurkenndi í desember 1999
að hafa látið hjá líða að tilkynna um
framlög í kosningasjóð CDU að and-
virði yfir 80 millj. kr. á árunum 1993-
1998.
Segir stjórn
Kohls
ekki hafa
verið fala
Berlín. AP, Reuter.
Genscher ber vitni
PETER Mandelson, sem sagði af
sér embætti Írlandsmálaráðherra í
bresku stjórninni á miðvikudag
vegna afskipta sinna af umsókn ind-
versks auðkýfings um breskt ríkis-
fang, tilkynnti í gær að hann hyggð-
ist gefa kost á sér í næstu
þingkosningum, sem búist er við að
haldnar verði í vor. Stjórnmálaskýr-
endur virðast þó á einu máli um að
Mandelson eigi ekki endurkomu
auðið í framlínu stjórnmálanna, enda
er þetta í annað sinn á rúmum tveim-
ur árum sem hann neyðist til að
segja af sér ráðherraembætti.
Bresku dagblöðin slógu í gær-
morgun upp fréttum um að stjórn-
málaferli Mandelsons væri lokið, en
hann brást skjótt við og sagði í við-
tali við blað í kjördæmi sínu, Hartle-
pool, að hann myndi verja þingsæti
sitt í næstu kosningum.
Var einn helsti ráðgjafi Blairs
Þrátt fyrir yfirlýsingu Mandel-
sons sagði Alastair Campbell, tals-
maður Tony Blairs, í gær að ráð-
herrann fyrrverandi ætti að gefa öll
áform um frekari frama í stjórnmál-
um upp á bátinn. „Peter hefur gefið
það skýrt til kynna að hann muni
draga sig í hlé frá framlínu stjórn-
málanna.“
Þingmenn Íhaldsflokksins höfðu
áður krafist þess að forsvarsmenn
Verkamannaflokksins tækju af allan
vafa um að Mandelson myndi ekki
framar gegna áhrifastöðum, hvorki
sem ráðgjafi bak við tjöldin né sem
þingmaður.
Mandelson hefur um langt skeið
verið einn helsti ráðgjafi Blairs, og
afsögn hans er talin koma sér afar
illa fyrir forsætisráðherrann, eink-
um í ljósi þess að búist er við að
kosningar verði haldnar innan fárra
mánaða. Þá er afsögnin talin áfall
fyrir þá sem styðja inngöngu Breta í
myntbandalag Evrópu, en Mandel-
son var einn af helstu forvígismönn-
um þess innan stjórnarinnar að inn-
göngu yrði flýtt. Brotthvarf
Mandelsons er jafnframt talið
styrkja stöðu fjármálaráðherrans
Gordons Browns.
William Hague, leiðtogi Íhalds-
manna, fullyrti í spurningatíma for-
sætisráðherra í neðri deild þingsins
á miðvikudag að Blair hefði gerst
sekur um „ótrúlegan dómgreindar-
skort“ með því að skipa Mandelson í
ráðherraembætti á ný í október
1999, aðeins tíu mánuðum eftir að
hann hafði neyðst til að segja af sér
embætti viðskiptaráðherra.
Blair reyndi þó að gera lítið úr
málinu, og fyrir ríkisstjórnarfund í
gær sagði hann fréttamönnum að
þrátt fyrir að hann skildi að málið
vekti mikla athygli fjölmiðla, þyrfti
stjórnin að halda sínu striki. BBC
hafði eftir embættismönnum í for-
sætisráðuneytinu að Blair hefði að-
eins varið mínútu í að ræða afsögn-
ina á ríkisstjórnarfundinum í gær.
Breskir stjórnmálaskýrendur
velta því nú fyrir sér hvað Mandel-
son taki sér fyrir hendur. Það þykir
ljóst að þessi pólitíski refur muni
eiga bágt með að halda sig fjarri eld-
línu stjórnmálanna, og hann þykir
manna ólíklegastur til að sætta sig
við að vera óbreyttur þingmaður.
Fjölmiðlar veltu í gær upp ýmsum
möguleikum, til dæmis að Mandel-
son yrði atkvæðamikill í almanna-
tengslageiranum, en honum er eign-
aður heiðurinn af ímyndar-
sköpuninni í kringum Blair og „hinn
nýja Verkamannaflokk“. Aðrir
stungu upp á því að hann gæti notað
reynslu sína úr viðskiptaráðuneytinu
til að hasla sér völl í fjármálaheim-
inum, en dálkahöfundur The Daily
Telegraph kom þó vísast með
skemmtilegustu hugmyndina. Hann
segir að þar sem Mandelson sé
þekktur fyrir ást sína á hinu ljúfa lífi
og sjáist reglulega í fylgt með hinum
ýmsu stjörnum og fyrirmennum,
liggi beinast við að hann leiti frama í
Hollywood.
Verður ekki saknað
Mandelson hefur alla tíð verið afar
umdeildur, ekki síst fyrir að færa
Verkamannaflokkinn „of mikið til
hægri“. „Verkamannaflokkurinn á
Peter Mandelson margt að þakka,
því hann gerði flokkinn vænlegan í
augum kjósenda. Hann fékk flokk-
inn til að svíkja allt sem hann stóð
fyrir, og þessvegna ... verður hans
ekki saknað af óbreyttum flokks-
mönnum,“ segir Boris Johnson, rit-
stjóri vikuritsins Spectator, í pistli í
The Daily Telegraph í gær.
Víst er að Mandelson á sér ýmsa
óvildarmenn innan Verkamanna-
flokksins. John Prescott aðstoðar-
forsætisráðherra tók hann sem ung-
an mann upp á arma sína fyrir
tveimur áratugum, en sagt er að
Prescott hafi fljótlega fengið slíka
andúð á honum að um langt árabil
hafi hann borið nafn hans vísvitandi
rangt fram, og kallað hann „Mendel-
son“.
Gordon Brown er einnig sagður
hafa horn í síðu Mandelsons, sem
sveik hann við formannskjör í
Verkamannaflokknum árið 1994 og
gerðist einn helsti stuðningsmaður
Blairs. Um langa hríð eftir þetta töl-
uðust þeir ekki við.
Mandelson er auk þess talinn afar
óvinsæll meðal óbreyttra flokks-
manna. Hann er sagður búa yfir
óvenjulegum „hæfileikum“ til að fá
fólk upp á móti sér og valda deilum
og misklíð.
Reyndi að breiða yfir
afskipti sín
Mandelson sagði af sér eftir að
hann viðurkenndi að hafa gefið
„rangar“ upplýsingar um afskipti sín
af umsókn indverska auðkýfingsins
Srichand Hinduja um breskan rík-
isborgararétt. Á sama tíma höfðu
Hinduja og bræður hans staðfest að
þeir hyggðust leggja eina milljón
punda, eða um 125 milljónir ís-
lenskra króna, til Þúsaldarhvelfing-
arinnar í Lundúnum, en málefni
hvelfingarinnar heyrðu þá undir ráð-
herrann. Það sem helst vakti gagn-
rýni voru tilraunir Mandelsons til að
breiða yfir að hann hefði hringt í að-
stoðarráðherra í innanríkisráðu-
neytinu vegna málsins.
Mandelson sagði af sér embætti
viðskiptaráðherra árið 1998, eftir að
upp komst að hann hefði þegið lán
frá Geoffrey Robinson, aðstoðarráð-
herra í fjármálaráðuneytinu. Hafði
hann haldið því leyndu þegar ráðu-
neyti hans hóf að rannsaka fjárreið-
ur Robinson. Dálkahöfundurinn Sîon
Simon segir í The Daily Telegraph í
gær: „Hann lifði hratt og dó ungur.
Tvisvar.“
Ferill Mand-
elsons sagður
á enda
AP
Peter Mandelson greinir fjölmiðlafólki frá afsögn sinni fyrir utan
breska forsætisráðherrabústaðinn í Downingstræti 10.
London. The Daily Telegraph.