Morgunblaðið - 26.01.2001, Side 29

Morgunblaðið - 26.01.2001, Side 29
FJÖLMIÐLUN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 29 KRINGLUNNI Nýjar vörur Dragtir í miklu úrvali Frábær snið af buxum, verð 3.900 Útsölunni fer senn að ljúka Á næstunni mun Stöð 1 hf. setja í loft- ið tvær nýjar sjónvarpsstöðvar, auk þess sem Útvarp 101 Reykjavík mun hefja útsendingar á næstu vikum. Um er að ræða tilraunaútsendingar á hefðbundinni dagskrá Stöðvar 1, auk þess sem ný stöð verður stofnsett á dreifikerfi Línu.nets. Kapalnet er samnefnari fyrir staf- ræna sjónvarpsþjónustu Stöðvar 1 og er frágangur á lokastigi, segir í frétta- tilkynningu. Líklegt er að útsending- ar muni hefjast í lok febrúar eða byrj- un mars. Á Kapalneti mun bjóðast sérvalin dagskrá fyrir aðila tengda sjónvarpsveitu Línu.nets, og verða útsendingar allan sólarhringinn. Hyggjast bjóða tengingu við myndveitu Sent verður út hefðbundið dag- skrárefni, spennuþættir og kvik- myndir. Auk þess mun Kapalnet bjóða notendum að tengjast mynd- veitu, þar sem hægt er að panta kvik- mynd í stafrænu formi beint heim í stofu. Auk þess hafa forsvarsmenn Stöðvar 1 hf. aðstoðað menn Lín- u.nets hf. undanfarið við að útvega nýjar gervihnattastöðvar, og munu fjölmargar nýjar stöðvar sem ekki hafa áður sést koma fyrir sjónir not- enda Línu.nets nú um miðjan febrúar. Stöð 1 er samsett af hefðbundinni dagskrá, s.s. spennumyndaflokkum og kvikmyndum. Auk þess verður sent út dagskráefni og tónlistarmynd- bönd frá 101 Reykjavík allan sólar- hringinn. Stöðin mun ekki reka fréttastofu, og ekki heldur innlenda dagskrár- deild. Sent er út á hefðbundnum staðli, og eiga því öll heimili á útsendingar- svæði stöðvarinnar, sem er fyrst um sinn Faxaflóasvæðið, frá Akranesi til Suðurnesja, að geta nýtt sér ókeypis aðgang með venjulegum VHF/UHF- loftnetum. Auk þess verður sent út um rafveitukapalinn í Hafnarfirði, kapalkerfið í Keflavík og á Suðurnesj- um, nýtt sjónvarpsnet Línu.nets og á breiðvarpi Landsímans. Í athugun er dreifing á örbylgju á sama svæði. Tilraunir með móttöku merkis stöðvarinnar munu hefjast um leið og uppsetningu stafræns búnaðar er lokið, og er áætlað að framkvæmd- ir hefjist í lok febrúar nk. Til stóð að útsendingar Stöðvar 1 hæfust á síðasta ári, en horfið var frá því vegna mikils kostnaðar við upp- byggingu hefðbundinnar dreifingar um landið, segir í tilkynningunni. Ákveðið var að bíða eftir nýrri staf- rænni tækni sem nú er komin. Stöð 1 hf. skilgreinir sig fyrst og fremst sem fjarskiptafélag og er hefð- bundinn rekstur afþreyingarmiðla svo sem sjónvarps og útvarpsstöðva einungis hluti af heildarstarfsemi félagsins. Í frétt frá Stöð 1 kemur fram að félagið eigi í viðræðum við er- lenda aðila um tengingu að mörkuð- um í Evrópu. Jafnvel sé fyrirhugað að félagið hefji Internet- og einhvers- konar símaþjónustu. Stöð 1 fékk úthlutað hefðbundnum senditíðnum á landinu öllu um miðjan desember sl. og verður 1. áfangi dreif- ingar á Faxaflóasvæðinu, Borgarnesi og Suðurlandi, auk þess sem settir verða upp sendar á Hnjúkum og á Hegranesi. Blönduð tónlist Tónlistarstefna Útvarps 101 Reykjavík verður blönduð. Ekkert talað mál verður á stöðinni, heldur einungis leikin fjölbreytt tónlist. Kjörorð stöðvarinnar er besta tónlist- in, einmitt núna. Markhópur stöðvar- innar er sóttur til eldri hlustenda, fólks á þrítugsaldri og upp úr, og er fjölbreytnin höfð að leiðar- ljósi, en ekki afmörkuð tónlistar- stefna, tengd við ákveðna hópa eins og hér hefur tíðkast undanfarin miss- eri. Stöðin sendir út á FM 101.5 á Faxaflóasvæðinu, og hefjast útsend- ingar á næstu vikum. Í fyrsta áfanga verða sendar einnig settir upp í Borgarnesi og á Selfossi. Bæði félögin eru í eigu bræðranna Hólmgeirs og Birgirs Ragnars Bald- urssona, og hafa 4 starfsmenn sinnt málefnum félaganna beggja fram að þessu, en fyrirsjáanlegt er að fjölga starfsmönnum á næstunni, þar sem augljós samlegðaráhrif felast í rekstri stöðvanna þriggja. Þó munu félögin ekki reka sérstaka auglýsingadeild, og hefur verið samið við sérhæft birt- ingarfélag um sölu auglýsinga, en slíkt er liður í sérhæfingu og aðgrein- ingu einstakra deilda innan félag- anna, segir enn fremur. Boða tvær sjónvarps- stöðvar og útvarpsstöð NORÐURLJÓS senda um þessar mundir aðeins út á sex af þeim tíu út- varpsrásum sem fyrirtækið hefur til umráða. Allt að tveir mánuðir eru liðnir frá því útsendingum á fjórum rásanna var hætt en samkvæmt gild- andi reglugerð fellur útvarpsleyfi sjálfkrafa úr gildi liggi útsendingar niðri í fjóra mánuði. Hreggviður Jónsson, forstjóri Norðurljósa, segir að fyrirtækið muni hefja útsending- ar að nýju áður en sá tími er liðinn. Í menntamálaráðuneytinu fékk Morgunblaðið þær upplýsingar að um þessar mundir væri verið að senda Norðurljósum bréf og spyrj- ast fyrir um hvað fyrirtækið hyggist fyrir með þær rásir sem fyrirtækið hefur yfir að ráða en notar nú ekki. Í júní á síðasta ári keyptu Norður- ljós meirihluta hlutafjár í Fínum miðli sem rak m.a. útvarpsstöðvarn- ar Gull, Létt, X-ið og FM 957. Eftir yfirtökuna á Fínum miðli voru Norð- urljós komin með alls 10 útvarps- stöðvar í rekstur. Sömu markhópar Hreggviður Jónsson sagði að það væri rétt að sumar stöðva Norður- ljósa og Fíns miðils hefðu höfðað til sömu markhópa. Í lok nóvember sl. var hætt út- sendingum á Stjörnunni FM 102,2 og einnig stöðinni Rokk FM 97,7. Um áramót var hætt útsendingum á Gull FM 90,9 en áður hafði útsend- ingum á Mono FM 87,7 verið hætt. Þær stöðvar sem nú eru reknar á vegum Norðurljósa eru Bylgjan FM 98,9, FM 95,7, Létt FM 96,7 Radíó X 103,7, Klassík FM 100,7 og Saga FM 94,3. Ef frá eru taldar rásir Ríkisút- varpsins og kristilegu útvarpsstöðv- arinnar Lindarinnar hafa Norðurljós því yfir að ráða öllum FM-útvarps- stöðvum sem reknar eru í landinu og ekki senda út staðbundið eða eru reknar á vegum félagasamtaka. Enn er sú takmarkaða auðlind, sem út- varpstíðnin er, þó ekki á þrotum og menntamálaráðuneytið á enn á lausu útvarpsrrásir á FM-tíðni til úthlut- unar. Hreggviður sagði að ákveðin lög og reglugerðir væru í gildi sem heimiluðu þeim sem ráða yfir út- varpsrásum að taka þær úr loftinu tímabundið í allt að fjóra mánuði. Hann sagði að fyrirtækið hefði haft samráð við Póst- og fjarskiptastofn- un og væri að vinna að því að koma dagskrá í loftið á þeim fjórum stöðv- um, þar sem ekkert er nú sent út á, áður en fjögurra mánaða fresturinn væri liðinn. Um útvarp samkvæmt tíma- bundnum leyfum gildir reglugerð nr. 610 frá 1989 og í 2. mgr. 5. greinar hennar er skýrt ákvæði þess efnis að leyfi til útvarps verði ekki framseld. Eigendaskipti á útvarpsstöðvum geta því einungis farið fram með sölu meirihluta hlutabréfa í fyrirtækinu sem fengið hefur útvarpsleyfið. Í næstu málsgrein reglugerðar- innar segir að sé útvarpsrekstri hætt og eigi hafinn á ný innan fjögurra mánaða teljist leyfi til útvarps- rekstrar sjálfkrafa fallið niður. Norðurljós hafa því enn 2-3 mánuði til að koma í gang útsendingum á þeim rásum, sem ekki eru nýttar að svo stöddu, áður en leyfi fyrirtæk- isins til rekstrarins fellur niður. Til skoðunar „Við gerum okkur grein fyrir því að það er alveg klárt að við missum tíðnirnar ef við erum ekki komnir í loftið innan fjögurra mánaða frá því að útsendingum var hætt,“ sagði Hreggviður Jónsson. Jón Axel Ólafsson, framkvæmda- stjóri útvarpssviðs Norðurljósa, sagði í samtali við Morgunblaðið að þar væru menn nú að endurskoða reksturinn og fara gætilega yfir hvað hægt sé að gera „til að auka okkar vöruúrval og þjónustu við hlustend- ur.“ Hreggviður segir ljóst að útsend- ingar verði hafnar á ný áður en fjórir mánuðir eru liðnir en ekki sé end- anlega ákveðið hvað muni hljóma á nýjum rásum. Hann vildi ekki viðra opinberlega neina þeirra hugmynda sem til skoðunar eru en sagði líklegt að með nýjum stöðvum yrði reynt að höfða til nýrra hópa. Spurður um möguleika á því að lögð yrði meiri áhersla á talað mál og dagskrárgerð en gert hefur verið á einkareknum útvarpsstöðvum til þessa, sagði Hreggviður að vissulega væri spennandi að reka talmálsút- varp. Samkeppnisumhverfið gerði mönnum hins vegar erfitt fyrir í því efni. „Ríkisútvarpið er með 600-650 m.kr. í tekjur af afnotagjöldum og um 300 milljónir í auglýsingatekjur. Ég heyrði í viðtali við útvarpsstjóra á afmælisdegi RÚV fyrir skömmu að þeir væru þeir einu sem geti haldið uppi alvöru dagskrá og vandaðri dagskrárgerð í útvarpi. Það gætum við svo sannarlega gert ef við fengj- um 600-650 m.kr. úr vasa skattborg- aranna,“ sagði Hreggviður. „Þessi mismunun er gríðarleg.“ 600 m.kr. björgunarhringur Hann sagði að fyrirtækið hefði sett Samkeppnisstofnun inn í stöð- una á þessum markaði við samruna Norðurljósa og Fíns miðils. „Ef þeir sjá ástæðu til að taka þetta upp hjá sjálfum sér geta þeir gert það. En ég veit ekki til að marg- ir búi við þessar markaðsaðstæður að einn keppandinn fái að synda um með 600 m.kr. björgunarhring og haga sér eins og hann vill,“ sagði Hreggviður. Norðurljós nýta nú aðeins sex af þeim tíu útvarpsrásum sem fyrirtækið hefur yfir að ráða Nýjar rásir í loftið á næstu vikum Leyfi til útvarpsrekstrar fellur niður hefjist útsendingar ekki að nýju innan fjögurra mánaða frá því þeim er hætt, segir í sam- antekt Péturs Gunnarssonar. Norðurljós hefur leyfi til rekstrar 10 útvarpsrása en útvarpar aðeins á sex þeirra um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.