Morgunblaðið - 02.02.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.02.2001, Qupperneq 1
27. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2001 EHUD Barak, forsætisráðherra Ísraels, neitaði í gær að hætta við framboð í forsætisráðherrakosn- ingunum á þriðjudaginn kemur og víkja fyrir flokksbróður sínum, Shimon Peres, sem er talinn eiga meiri möguleika á að sigra Ariel Sharon, leiðtoga Likud-flokksins. Frestur Verkamannaflokksins til að skipta um frambjóðanda rennur út í dag. Fast hefur verið lagt að Barak að víkja fyrir Peres til að koma í veg fyrir sigur Sharons sem er nú með a.m.k. 19 prósentustiga forskot á forsætisráðherrann samkvæmt tveimur nýjum skoðanakönnunum. Rafi Smith, sem annaðist aðra könnunina, sagði að Sharon væri með 46% fylgi en Barak 27%. Í könnun, sem Jerusalem Post birtir í dag, sögðust 50% aðspurðra ætla að kjósa Sharon en 30% Barak. Smith sagði könnun sína benda til þess að Sharon nyti aðeins 6 prósentustiga meiri stuðnings en Peres ef valið stæði milli þeirra. Barak hafnar fundi með Arafat Tveir Ísraelar og tveir Palest- ínumenn voru skotnir til bana á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu í gær. Að minnsta kosti 380 manns hafa látið lífið í fjögurra mánaða uppreisn Palestínumanna. Barak ákvað í gær að eiga ekki fund með Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, fyrir kosningarn- ar. Erlendir milligöngumenn höfðu beitt sér fyrir því að leiðtogarnir kæmu saman til að undirrita yf- irlýsingu um stöðuna í friðarvið- ræðunum. Uppreisnin hófst skömmu eftir að Ariel Sharon fór á Musterishæð- ina í Jerúsalem, sem Ísraelar og Palestínumenn deila um, og Palest- ínumenn segja að sú ferð hafi kveikt ófriðarbálið. Stjórn Ísraels gaf í gær út skýrslu þar sem þessu er vísað á bug og fullyrt að Sharon beri enga ábyrgð á blóðsúthelling- unum. Talið er að skýrslan styrki stöðu Sharons frekar, einkum með- al óákveðinna miðjumanna. Ariel Sharon spáð stórsigri í kosningunum í Ísrael Barak neitar að víkja fyrir Shimon Peres Jerúsalem. Reuters, AP. LÍBÝUMAÐURINN Lamen Khalefa Fahimah, sem sýknaður var af ákæru um aðild að Lockerbie-til- ræðinu 1988 fyrir skoskum rétti á miðvikudag, sneri heim í gær og var fagnað af ættingjum og vinum. „Réttlætið hefur sigrað! Niður með Bandaríkin!“ hrópaði fólkið. Var Fahimah síðan ekið í bílalest til bú- staðar Moammars Gaddafis, leiðtoga landsins, sem faðmaði hann að sér. Líbýustjórn sagðist á miðvikudag myndu sætta sig við úrskurðinn og sendiherra landsins í Bretlandi gaf í skyn í gær að þeir myndu greiða ætt- ingjum þeirra sem fórust í tilræðinu bætur. Aðrir talsmenn vísuðu hins vegar á bug að slíkar greiðslur kæmu til greina. Gaddafi fullyrti í gær að hann hefði undir höndum öruggar sann- anir fyrir því að Abdel Basset Ali al- Megrahi, sem dæmdur var í lífstíð- arfangelsi fyrir tilræðið, væri einnig saklaus. Myndi hann segja frá þeim í ræðu á mánudag. Einnig sagði hann að Líbýumenn myndu krefjast skaðabóta fyrir tjón sem margra ára refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna hefðu bakað þeim. Bretar og Banda- ríkjamenn vilja ekki að refsingunum verði aflétt fyrr en Líbýustjórn veiti fyllri upplýsingar, lýsi yfir ábyrgð á hryðjuverkinu og greiði bætur. Al-Megrahi var dæmdur sekur um að hafa komið sprengju fyrir í þotu Pan Am-flugfélagsins. Alls fórust 270 manns í tilræðinu sem kennt er við Lockerbie í Skotlandi en þar hrapaði þotan. Yfirlýsing Moammars Gaddafis Segir að al-Megr- ahi sé saklaus Trípolí. AP, Reuters. AP Moammar Gaddafi, leiðtogi Líb- ýu, faðmar Lamen Khalefa Fahimah sem kom til Trípolí í gær eftir að hafa verið sýknaður af ákæru um aðild að Lockerbie- tilræðinu sem kostaði 270 manns lífið. LÆKNAR og embættismenn á Ind- landi sögðu í gær að hætta væri á að farsóttir blossuðu upp á næstu dög- um vegna mengaðs vatns í indverska ríkinu Gujarat eftir jarðskjálftann í vikunni sem leið. Margir íbúar á hamfarasvæðunum hafa þegar veikst en enn sem komið er hefur ekki verið greint frá neinum tauga- veiki- eða kólerutilfellum. Rafmagns- og vatnslaust hefur verið á mörgum stöðum í Gujarat eftir jarðskjálftann sem reið þar yfir á föstudag. Læknir í þorpinu Khavda, um 60 km frá landamær- unum að Pakistan, sagði að til sín leituðu að minnsta kosti 50 manns á dag með bráðan niðurgang vegna mengaðs vatns. „Aðalvatnsgeymarn- ir skemmdust,“ sagði læknirinn. „Fólkið þarf að fá ferskt vatn strax því sýkingar geta breiðst út með menguðu vatni.“ „Við vitum að ef fólkið fær ekki hreint vatn og sefur undir berum himni er óhjákvæmilegt að sjúkdóm- ar eins og bráður niðurgangur og kvillar í öndunarfærum breiðist hratt út,“ sagði Patrick Fuller, starfsmaður Rauða krossins. „Aldr- að fólk og börn verða fyrst til að veikjast.“ Erfiðlega hefur gengið að koma matvælum og vatni til afskekktra þorpa og íbúar margra bæja hafa kvartað yfir því að illa hafi verið staðið að matvæladreifingunni. „Þeir kasta í okkur mat af vörubílum eins og við séum hundar,“ sagði kona sem svaf með fjölskyldu sinni á vegi að bænum Bhuj sem var nálægt skjálftamiðjunni. „Við skjálfum af kulda og vitum ekki hvort börnin lifa þetta af. Við deyjum ef við verðum hér um kyrrt.“ Ragna Sara Jónsdóttir, sem er stödd á Indlandi á vegum Morgun- blaðsins, hefur eftir læknum að hætta sé á farsóttum í borgum þar sem tugir ef ekki hundruð líka séu enn grafin í rústunum. Mikill skortur á hreinu vatni á skjálftasvæðunum á Indlandi AP Þyrst stúlka vætir þurrar varirnar með tungunni á rústum heimilis síns í indverska þorpinu Rapar. Hundruð þúsunda Indverja misstu heimili sín í jarðskjálftanum á föstudag. Hætta á farsóttum Khavda. Reuters, AFP.  Fjármunina/10  Sex til tólf /27 MEIRIHLUTI öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í gær- kvöld að íhaldsmaðurinn John Ashcroft yrði næsti dómsmálaráð- herra landsins og George W. Bush forseti sigraði þar með í fyrstu rimmunni við demókrata á þinginu. 58 þingmenn, þeirra á meðal átta demókratar, greiddu atkvæði með Ashcroft en 42 á móti. Demókratar sýndu hins vegar í atkvæðagreiðsl- unni að þeir geta hindrað tilnefning- ar Bush í framtíðinni, einkum ef hann tilnefnir íhaldssama menn í hæstarétt Bandaríkjanna. 41 þingmaður getur hindrað til- nefningar eða frumvörp forsetans með því að beita málþófi en demó- kratar ákváðu að gera það ekki að þessu sinni þar sem margir þeirra telja að forsetinn eigi að geta valið ráðherra í stjórn sína. Þeir segja að öðru máli gegni um hæstaréttar- dómara og fleiri embættismenn sem eru æviráðnir. Ashcroft fékk nægan stuðning Washington. AP. FÆREYSKA landstjórnin til- kynnti í gærkvöld að gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði eyjanna hinn 26. maí næstkomandi. Lagt er til að eyj- arnar stefni að fullu sjálfstæði árið 2012. Landstjórnin kynnti tillöguna sem lögð verður fyrir kjósend- ur. Kveður hún m.a. á um að all- ir málaflokkar færist yfir til fær- eyskra stjórnvalda í síðasta lagi árið 2012. Ennfremur verði dregið úr árlegri fjárhagsaðstoð Dana og komið á fót sjóði til að tryggja að breytingin frá efna- hagskerfi sem byggist á fjár- hagsaðstoð til sjálfbærs efna- hags gangi snurðulaust fyrir sig. Kosið um sjálfstæði Færeyja í maí Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.