Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 33
LISTIR
Ármúla 21, 533 2020
Handklæðaofnar
Mikið úrval
handklæðaofna á
baðherbergið.
Stærðir frá 60-181 cm.
Áferð: Hvít eða krómlituð.
Verð frá kr. 11.605.
Í BÓKASAFNI Reykjanesbæjar,
Hafnargötu 57, verður opnuð
Keilissýning á laugardag kl. 14.
Þar munu sjö listamenn og einn
áhugaljósmyndari, sem hafa sótt
sér innblástur í fjall Suðurnesja-
manna, Keili, sýna verkin sín.
Listamennirnir eru málararnir
Ásta Árnadóttir, Ásta Pálsdóttir,
Eiríkur Árni, Íris Jónsdóttir og
Sossa. Stefán Geir Karlsson sýnir
líkan af hugmynd sinni „Kollhúfa
á Keili“ þar sem hann gerir ráð
fyrir að sett verði húfa á Keili
sjálfan árið 2002 sem er al-
þjóðlegt ár fjallsins. Úlfur K.
Grönvold sýnir myndbandið
„Keilir 1998“ og áhugaljósmynd-
arinn og þingmaðurinn Hjálmar
Árnason sýnir 30 ljósmyndir sem
sýna fjallið í sinni margbreytilegu
mynd árstíðanna árið 2000.
Ljósmyndirnar verða til sölu til
fjáröflunar fyrir Þroskahjálp á
Suðurnesjum.
Sýningin stendur út febrúar og
er opin frá kl. 10-20 virka daga
og 10-16 á laugardögum.
Ljósmynd/Hjálmar Árnason. Myndvinnsla/Bragi Einarsson
Kollhúfa á Keili. Hugmynd Stefáns Geirs Karlssonar.
Keilir í Bókasafni
Reykjanesbæjar
TÓNLISTARSKÓLI Ísafjarðar
verður með Opið hús á morgun, laug-
ardag, kl. 11-17. Á dagskrá verða
m.a. þrennir stuttir tónleikar, tón-
listarforrit kynnt, tónlistar- og hljóð-
færakynning, opnun heimasíðu og
gamlar tónlistarupptökur sýndar á
myndbandi.
Opið hús í
Tónlistarskóla
Ísafjarðar
Í NÝLISTASAFNINU stendur yfir
sýningin „Nýja málverkið, andar það
enn“. Á sunnudag kl. 15 mun Guð-
mundur Oddur Magnússon sýning-
arstjóri leiða gesti um sýninguna.
Þar má m.a. sjá verk eftir Guð-
rúnu Tryggvadóttur, Árna Ingólfs-
son, Kristján Steingrím Jónsson,
Tolla, Daða Guðbjörnsson, Tuma
Magnússon o.fl.
Sýningin er í árvissri röð sýninga
safnsins sem bera yfirskriftina
„Samræður við safneign“.
Leiðsögn
um sýningu
♦ ♦ ♦
FÉLAG áhuga-
manna um heimspeki
stendur fyrir rabb-
fundi um heimspeki í
skáldsögum á laugar-
dag í Kaffileikhúsinu
kl. 16-18. Umræðu-
efnið er bók Péturs
Gunnarssonar,
Myndin af heiminum,
og mun höfundur
m.a. halda framsögu-
erindi. Auk Péturs
halda erindi Jón Karl
Helgason og Úlfhild-
ur Dagsdóttir en Jón
Ólafsson stjórnar
umræðum.
„Skáldsagan Myndin af heimin-
um eftir Pétur Gunnarsson, sem
kom út nú fyrir jól, sameinar
heimspekilega yfirvegun um sögu
og heimsmynd, fjölskyldu- og
uppvaxtarsögu. Það eru hinar
heimspekilegu
vangaveltur sem
drífa frásögnina
áfram og vekja
spurningar um mynd
mannsins af heimin-
um og sjálfum sér,“
segir í kynningu.
Á fundinum ræðir
Pétur Gunnarsson þá
heimspeki sem birtist
í þessari nýjustu
skáldsögu sinni og
um heimspeki í skáld-
sögum yfirleitt.
Jón Karl og Úlf-
hildur bregðast við
framsögu Péturs og
ræða almennt um hvaða erindi
heimspeki eigi við skáldsögur og
skáldsögur við heimspeki.
Að loknum framsöguerindum
gefst áheyrendum kostur á að
taka þátt í umræðum.
Heimspeki í skáldsög-
um í Kaffileikhúsinu
Pétur Gunnarsson
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 33