Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 29
Gullsmiðir
Nýr
rauðmagi
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
• Stór humar
• Lúða
• Gellur
kr. kg.
meðan birgðir endast
Eigum 1.000 kg.10
STÆRSTI stjórnarandstöðuflokkur
Tanzaníu, Borgarabandalagið
(CUF), heldur því fram að yfir 200
manns hafi týnt lífi í óeirðunum á
milli lögreglu og mótmælenda á
Zanzibar um helgina. „Við teljum að
ríkisstjórnin og lögreglan hafi hagað
sér með óábyrgum hætti, drepið yfir
200 manns sem voru óvopnuð og
höfðu komið saman í rétti tjáningar-
og fundafrelsis,“ sagði varaformaður
flokksins, Wilfred Lwakatare. Lög-
reglan fullyrðir hins vegar að ein-
ungis 25 hafi látist.
Óstaðfestar fregnir herma að 150
íbúar eyjunnar Pemba, minni eyju af
þeim tveimur sem mynda Zanzibar,
hafi verið drepnir af lögreglu og
komið fyrir í fjöldagröf. Aðrir segja
að 100 manns hafi látist í flóttatil-
raun frá Pemba þegar lögregluþyrla
réðst á bát þeirra.
Deilt um meint kosningasvik
Ófremdarástand hefur ríkt á
Zanzibar síðan á laugardag. Þá efndi
CUF til mótmæla vegna kosninga
sem fram fóru sl. október, en flokk-
urinn krefst þess að þær verði end-
urteknar vegna meints kosninga-
svindls. Flestir hinna látnu eru
meðlimir CUF. Ríkisstjórnin sagði
mótmælin ólögleg og handtók for-
mann CUF, Ibrahaim Lipumba, en
honum var sleppt á þriðjudag.
Öryggisveitir náðu stjórn á
ástandinu á mánudag og lögreglan
ver aðgerðir sínar. Yfirvöld segja að
stjórnarandstæðingar hafi gert að-
súg að lögreglunni með steinum og
bensínsprengjum. Líf lögreglu-
manna hafi verið í hættu og þeir því
tilneyddir að grípa til vopna. Forseti
Zanzibar, Amani Karume, sagði að
lögreglan myndi finna þá seku og
draga til ábyrgðar, en Einingarsam-
tök Afríkuríkja hvöttu til þess að
málið yrði leyst með friðsamlegum
hætti.
Zanzibar myndaði ásamt Tang-
anyika á meginlandinu sambands-
lýðveldið Tansaníu árið 1964. Mörg-
um íbúum eyjanna þykir sem ríkis-
stjórn sambandsríkisins hafi lítinn
áhuga á málefnum þeirra og vilja
aukið sjálfstæði.
Eyjarnar voru eitt sinn miðpunkt-
ur þrælaverslunar í Indlandshafi en
nú er Zanzibar vinsæll áfangastaður
ferðamanna.
Mann-
skæðar
óeirðir á
Zanzibar
Pemba, Dar es Salaam. Reuters, AFP.
FYRSTI hluti sjónvarpsþáttarins „Stóra bróður“,
sem frumsýndur var í Danmörku á sunnudags-
kvöld, mæltist illa fyrir hjá dönskum gagnrýn-
endum en um hálf milljón Dana settist við skjáinn
til að fylgjast með. Þátturinn er eftirmynd sam-
nefndra þáttaraða sem hafa farið eins og eldur í
sinu um Evrópu og Bandaríkin og vakið gríðarlega
athygli og umræðu en þeir eru hluti hins svokallaða
raunveruleikasjónvarps, sem mörgum þykir komið
út í algerar öfgar en aðrir segja svar við kröfu
áhorfenda um safaríkara sjónvarpsefni.
„Stóri bróðir“ er sendur út frá húsi sem byggt
hefur verið í sjónvarpsstúdíói í Kaupmannahöfn.
Þar hafast tíu manns við í 100 daga og eru allar
þeirra hreyfingar og samtöl tekin upp af 26 sjón-
varpsmyndavélum og 47 hljóðnemum. Í hverri viku
greiða sjónvarpsáhorfendur atkvæði um hver íbú-
anna eigi að yfirgefa húsið og sá sem stendur uppi
að 100 dögum liðnum hlýtur tæpar 5 milljónir ísl.
króna að launum og ef heppnin er með, frægð og
frama.
Myndavélarnar eru alls staðar, á snyrtingunni, í
eldhúsinu, í svefnherbergjunum. Framleiðendur
þáttanna hafa lýst því yfir að ekkert ósiðlegt muni
bera fyrir augu áhorfenda en sjónvarpsrýnar og
þeir sem fylgst hafa með þáttunum, m.a. í Þýska-
landi, Bretlandi og Hollandi, þar sem þeir eru upp-
runnir, eru á öðru máli. Spennan snúist að miklu
leyti um það hvort íbúarnir sængi saman. Svo virð-
ist sem „Stóri bróðir“ muni hafa vinninginn af
„Barnum“ þar sem hópur fólks dvelur í íbúð og á
bar tengdum henni. Eins og í „Stóra bróður“ greiða
áhorfendur atkvæði um hvern eigi að senda heim
næst. Báðir eru þættirnir sýndir daglega á tveimur
einkastöðvanna og þar að auki er hægt að fylgjast
með íbúum hússins á netinu allan sólarhringinn.
Barmfagur sigurvegari
Í öllum þeim löndum þar sem þátturinn og aðrir
af sama meiði hafa verið sýndir hefur fólk slegist
um að komast í þá. Enda til mikils að vinna, háar
fjárupphæðir og frægð fyrir þá sem hyggja á
frama, t.d. í skemmtanabransanum. Fyrstu þætt-
irnir sem sýndir voru í Danmörku og Svíþjóð,
„Robinson“, hafa gert nokkra af þátttakendunum
fræga og ríka. „Robinson“-þættirnir fjölluðu um
hóp fólks sem þurfti að bjarga sér á eyðieyju í Suð-
urhöfum og vikulega greiddu þátttakendur sjálfir
atkvæði um hvern ætti að senda heim, þar til aðeins
tveir voru eftir.
Þættirnir kalla fram öfgarnar í mannskepnunni,
þátttakendur víla ekki fyrir sér að fara á bak við
náungann þegar þeir telja nauðsyn krefja. Þeir
grípa til örþrifaráða til að vekja á sér athygli. Dæmi
um það er sigurvegarinn í fyrstu þáttaröðinni af
„Stóra bróður“ í Þýskalandi. Alida, 23 ára laga-
nemi, þakkaði sigur sinn því að einn morguninn var
hún óvenju lengi að klæða sig svo áhorfendur gátu
virt fyrir sér brjóstin í fáeinar sekúndur. Atriðið
var sýnt aftur og aftur, í öllum kynningum á þætt-
inum, meira að segja í fréttatímum og árangurinn
lét ekki á sér standa. Þær þrjár milljónir sem fylgd-
ust með þáttunum völdu laganemann barmfagra.
Danskir áhorfendur bíða nú spenntir eftir því að sjá
ofan í tösku eins þátttakandans, sem lýsti því yfir
að hún hefði tekið með sér kynlífsleikfang. Danskir
sjónvarpsrýnar eru hins vegar lítt hrifnir, einn
þeirra leyfði sér að efast um hvort fólkið sem birtist
á skjánum væri raunverulega til.
Sífellt eru kynntir til sögunnar nýir þættir og
samkeppnin um áhorfendur hefur enda harðnað.
Til þess að halda þýskum sjónvarpsáhorfendum við
efnið hafa hurðirnar í þriðju þáttaröðinni um hús
„Stóra bróður“ verið skrúfaðar af sturtuklefunum,
stóru baðkari og sauna komið fyrir, bann hefur ver-
ið lagt við því að þátttakendur baði sig í sundfötum
og í stað einbreiðra rúma hefur tvíbreiðum verið
komið fyrir í svefnherbergjunum.
Forleikurinn endalausi
Í Berlingske Tidende er fjallað um fyrirbærið
„raunveruleikasjónvarp“ undir fyrirsögninni „For-
leikurinn endalausi“ og er þar vísað til þess hlut-
verks sem kynlíf eða öllu heldur kynlífsvænting-
arnar leika í þáttunum. „Stóri bróðir býr yfir því
sem erótískar myndir gera ekki, óvissunni. Þegar
horft er á erótískar myndir leikur enginn vafi á því
hvað muni að endingu gerast en sú er ekki raunin
með Stóra bróður. Maður getur setið tímunum
saman og beðið spenntur; gerist það í dag? ...
Draumurinn er um fyrstu opinberu og raunveru-
legu samfarirnar í beinni útsendingu.“ Sjónvarps-
stjórnendur leggja æ meira á sig til að auka lík-
urnar á þessum stórviðburði. Þeir virðast ekki hafa
neinar áhyggjur af því að þeir geta ekki sýnt slíkt,
ef það gerist. Það er nefnilega bannað að sýna
raunverulegt klám í þýsku sjónvarpi. Sjónvarps-
stöðvarnar ganga æ lengra til að halda í áhorfendur
og halda þeim spenntum. Nýjasta þýska þáttaröð-
in, „Stúlknaslagur“, snýst um tíu ungar konur sem
komið er fyrir í lúxusvillu með sundlaug í átta vik-
ur. Vikulega heimsækir þær ungur maður sem er
uppálagt að draga eina stúlknanna á tálar og gefa
þar með upp á bátinn drauminn um frægð og ríki-
dæmi. Á sama tíma greiða áhorfendur atkvæði um
hver stúlknanna eigi að fara heim. Að sögn fram-
leiðandans snýst þátturinn um „hvernig sönn ást
getur sigrað fé og frægð þótt kvikmyndatökuvél-
arnar rúlli“.
Önnur dæmi um þætti af sama meiði eru „Hús
ástarinnar“ um 27 ára sölumann sem eyðir fimm
dögum í sama rúmi og fimm konur. „Hlekkir ást-
arinnar“ er um konu eða karl sem hlekkjuð eru við
fjóra aðila af hinu kyninu í nokkra daga og að síð-
ustu má nefna þann umdeildasta, „Eyju freisting-
anna“, sem snýst um að nokkrir einhleypingar
reyna að komast upp á milli para sem búið hafa
saman um árabil. Hjón mega ekki vera þátttak-
endur þar sem stjórnendurnir vilja ekki láta saka
sig um að eyðileggja hjónabönd.
Grafið undan siðferðisgildunum?
Mikið hefur verið ritað og rætt um þessa tegund
sjónvarps og andstæðingar þess hafa sakað stjórn-
endur sjónvarpsstöðvanna sem þættina sýna um að
grafa undan siðferðisgildum fólks, svo fátt eitt sé
nefnt. Þeir benda þó ævinlega á að þátttakendur
gangist sjálfviljugir undir þau skilyrði sem sett eru
í þáttunum. Það virðast lítil takmörk fyrir hug-
myndafluginu þegar kemur að því að finna upp á
nýju þáttaefni. Í Bandaríkjunum eru uppi hug-
myndir um að gera þátt þar sem föngum er boðið
að láta framkvæma DNA-próf í beinni útsendingu
til að sanna eða afsanna sekt þeirra.
Þá hefur hollenska sjónvarpsstöðin Endemol,
þar sem hugmyndin að „Stóra bróður“ varð til, í
hyggju að gera þætti þar sem kona velur sæðis-
gjafa úr hópi 30 karla. Stjórnendur stöðvarinnar
segja málið reyndar vandmeðfarið. „Það gengur
ekki að eftir fimmtán ár verði til unglingur sem veit
að hann er niðurstaða skemmtiþáttar í sjónvarpi,“
segir talsmaður stöðvarinnar í samtali við Politik-
en. „Við erum að ræða hvort það sé mögulegt að
gera slíkan þátt.“
„Stóri bróðir“ á skjáinn
Danir hafa fetað í fótspor fjölmargra Evrópuþjóða og hafið sýningar á „Stóra bróður“. Tíu
karlar og konur eru lokuð inni í húsi í 100 daga þar sem friðhelgi einkalífsins heyrir sögunni til.
Urður Gunnarsdóttir hefur fylgst með umræðunni um raunveruleikasjónvarpið svokallaða.
Reuters
Frá fagnaðarlátum er tilkynnt var um sigurvegara ítalska „stóra bróður-leikjarins“, Cristinu Plevani (í miðju), í desember sl.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.