Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓNUSTA
Flísalagnir - múrverk
Múrarameistarar geta bætt við sig
verkefnum.
Uppl. í símum 894 4556 og 891 9458.
TIL SÖLU
Veitingahús í Mývatnssveit
Til sölu er veitingahúsið Hverinn í Mývatns-
sveit, húseign og rekstur.
Einnig kemur til greina að selja húsið, sem er
130 fm timburhús, í einingum til flutnings.
Upplýsingar í símum 464 4186 og 464 4189.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Dynskógar 7, íbúð, Hveragerði, fastanr. 221-0135, þingl. eig. Ingþór
Hallberg Guðnason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumað-
urinn á Selfossi, fimmtudaginn 8. febrúar 2001 kl. 10.30.
Lóð úr landi Kvíarhóls, Ölfusi, þingl. eig. Rúnar Sigtryggsson, gerðar-
beiðandi Almenna málflutningsstofan sf., fimmtudaginn 8. febrúar
2001 kl. 13.30.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
31. janúar 2001.
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
DULSPEKI
Huglækningar/heilun
Sjálfsuppbygging.
Samhæfing líkama og sálar.
Áran. Fræðslumiðlun.
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Uppl. í síma 553 8260 f.h.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag Íslands
Sálarrannsóknar-
félagið Sáló 1918—
2000, Garðastræti 8,
Reykjavík
Enn eru lausir nokkrir tímar
hjá hinum frábæra breska
miðli Tom Dodds.
Vegna mikilla eftirspurna verður
Tom Dodds með námskeið á
morgun laugardaginn 3. feb.
Upplýsingar og bókanir í síma
551 8130.
SRFÍ.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 181228½ FI.
I.O.O.F. 12 181228½ Fl.
Sunnudagsferð 4. febrúar kl.
11. Álfsnes, strandganga.
Listigarður úr grjóti.
Mánudagur 5. febrúar kl. 20.
Myndakvöld í Húnabúð.
Þröstur Þórðarson sýnir glæsileg-
ar landslagsmyndir.
Nánar kynnt um helgina.
Sjá heimasíðu: utivist.is og texta-
varp bls. 616.
Gönguferð 4. febr.: Kolviðar-
hóll — Marardalur — Litla
kaffistofan. Um 5 klst. á
göngu, ca 15 km, sléttlendi. Far-
arstjóri Björn Finnsson. Verð
1.600 kr. Brottför kl. 10.30 frá BSÍ
og Mörkinni 6.
Munið þorrablótsferð 10.—
11. febrúar. Gist í Brattholti.
Gullfoss í klakaböndum. Glens
og gaman á blóti. Fararstjóri
Ólafur Sigurgeirsson. Leiðsögn í
gönguferð Arnór Karlsson.
www.fi.is, textavarp RUV bls.
619. Sími á skrifstofu 568 2533.
Í kvöld kl. 21 heldur Karl Sig-
urðsson erindi: „Brot af fræðum
Blavatsky“ í húsi félagsins, Ing-
ólfsstræti 22.
Á morgun, laugardag kl. 15—
17, er opið hús með fræðslu og
umræðum, kl. 15.30 í umsjón
umsjón Kristjáns Fr. Guðmunds-
sonar: „Spjall um sri vidya yoga
iðkun“.
Á morgun kl. 14—15.30 er bóka-
safn félagsins opið til útláns fyrir
félaga.
Á sunnudögum kl. 17—18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið Guð-
spekifélagsins verður fram-
haldið fimmtudaginn 8. febrúar
kl. 20.30 í umsjá Birgis Bjarna-
sonar „Opið spjall um hug-
rækt“.
Á fimmtudögum kl. 16.30—
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Guðspekifélagið hvetur til sam-
anburðar trúarbragða, heimspeki
og náttúruvísinda. Félagar njóta
algers skoðanafrelsis.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Viktoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. 12-18
lau. kl. 11-17
sun. kl. 13-17
Nýkomin
vörusending
ur P. Steindórsson, Davíð Kjartans-
son, Róbert Harðarson, Guðni Stefán
Pétursson, Helgi E. Jónatansson,
Dagur Arngrímsson 7 v.13.-20. Bene-
dikt Jónasson, Lenka Ptácníková,
Ingvar Jóhannesson, Ólafur I. Hann-
esson, Tómas Björnsson, Jón Árni
Halldórsson, Haraldur Baldursson,
Kjartan Ó. Guðmundsson 6½ v.21.-
27. Páll Agnar Þórarinsson, Sigurður
Ingason, Sveinbjörn Jónsson, Hall-
dór Garðarsson, Stefán Arnalds,
Lilja Grétarsdóttir, Harpa Ingólfs-
dóttir 6 v.28.-34. Vigfús Ó. Vigfússon,
Jónas Jónasson, Helgi Hauksson,
Guðmundur Kjartansson, Arnar Ing-
ólfsson, Ólafur Kjartansson, Stefán
Ingi Arnarson 5½ v.o.s.frv.
Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafs-
son og Ríkharður Sveinsson. Nánar
verður fjallað um Skákþing Reykja-
víkur í næsta skákþætti.
JÓN Viktor Gunnarsson og Sigur-
björn J. Björnsson sigruðu á Skák-
þingi Reykjavíkur sem lauk á mið-
vikudagskvöld eftir afar spennandi
baráttu. Báðir fengu þeir 9 vinninga í
11 umferðum en þar sem Sigurbjörn
er Hafnfirðingur hlýtur Jón Viktor
titilinn skákmeistari Reykjavíkur
2001. Björn Þorfinnsson, sem framan
af móti virtist ætla að tryggja sér sig-
ur á mótinu, varð þriðji með 8 vinn-
inga.
Í elleftu og síðustu umferð sigraði
Jón Viktor Guðna Stefán Pétursson
og Sigurbjörn Björnsson lagði Stefán
Kristjánsson að velli. Úrslit urðu
annars þessi á efstu borðum:1. Stefán
Kristjánss. – Sigurbjörn Björnss. 0-
12. Jón V. Gunnarss. – Guðni S. Pét-
urss. 1-03. Björn Þorfinnss. – Davíð
Kjartanss. 1-04. Sævar Bjarnas.
Benedikt Jónass. 1-05. Arnar E.
Gunnarss. Jón Á. Halldórss.
1-0o.s.frv.
Lokaröð efstu manna varð sem
hér segir:
1.-2. Jón Viktor Gunnarsson 9
v.1.-2. Sigurbjörn Björnsson 9 3.
Björn Þorfinnsson 8 4.-6. Stefán
Kristjánsson, Sævar Bjarnason, Arn-
ar E. Gunnarsson 7½ v.7.-12. Sigurð-
Góðar aðstæður
á Bermúda
Þeir Hannes Hlífar Stefánsson og
Þröstur Þórhallsson dveljast um
þessar mundir í góðu yfirlæti á
Bermúda. Þeir segja allar aðstæður
til fyrirmyndar. Þeir hafa nú lokið
keppni í sitt hvoru mótinu, stórmeist-
armóti A og B. Hannes tefldi í sterk-
ara mótinu. Miklar vonir voru bundn-
ar við góðan árangur Hannesar enda
hafði hann búið sig vel undir mótið.
Því miður stóð hann sig afleitlega í
fyrstu umferðunum og hans beið því
erfið barátta í síðari hluta mótsins.
Þar stóð hann hins vegar undir vænt-
ingum og tókst að vinna sig upp í 3.-4.
sæti á þessu sterka móti og hlaut 5
vinninga.
Lokastaða efstu manna á mótinu
varð þessi:
1. B. Macieja (2578) 7 v.
2. G. Vescovi (2519) 6½
3.-4. Hannes Hlífar (2570), A.
Shabalov (2609) 5 v.
o.s.frv.
Þröstur Þórhallsson gerði jafntefli
við tékkneska alþjóðlega meistarann
Radek Kalod (2490) í 11. og síðustu
umferð B-mótsins og hafnaði í 8.-10.
sæti. B. Vuckovic (2.458) sigraði á
mótinu og hlaut 8 vinninga.
Guðmundur Kjartansson ung-
lingameistari Reykjavíkur
Keppni í unglingaflokki á Skák-
þingi Reykjavíkur lauk 27. janúar.
Tefldar voru níu umferðir eftir Mon-
rad-kerfi. Umhugsunartími var 20
mínútur á skák. Guðmundur Kjart-
ansson sigraði af öryggi á mótinu,
lagði alla níu andstæðinga sína. Þetta
var annað árið í röð sem hann hlýtur
þennan titil og ljóst er að hann er einn
af okkar allra efnilegustu skákmönn-
um. Úrslit urðu annars sem hér segir:
1. Guðmundur Kjartansson 9 v.
2. Víðir Petersen 7 v.
3. Örn Stefánsson 6 v.
4.-6. Hjalti Freyr Halldórsson,
Arnar Sigurðsson, Ásgeir Mogensen
5½ v.
7.-8. Anna Lilja Gísladóttir, Árni
Jakob Ólafsson 5 v.
9-10. Helgi Brynjarsson, Júlíus
Már Sigurðsson 4½ v.
11.-12. Ólafur Evert, Sverrir Þor-
geirsson 4 v.
13.-16. Erlingur Atli Pálmarsson,
Trausti Eiríksson, Hreinn Benónýs-
son, Dofri Snorrason 3 v.
o.s.frv.
Skákstjórar voru Sigurður Daði
Sigfússon og Harpa Ingólfsdóttir.
Vináttukeppni Taflfélags
Stokkseyrar og TR
Taflfélag Stokkseyrar varð 63 ára
þann 22. janúar. Í tilefni afmælisins
var efnt til vináttukeppni og Stokks-
eyringar réðust ekki á garðinn þar
sem hann var lægstur, heldur buðu
sjálfu Taflfélagi Reykjavíkur upp í
dans á hinum 64 reitum. Keppnin fór
fram á 8 borðum og var tefld tvöföld
umferð, allir við alla. Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra gaf sér
tíma frá argaþrasi stjórnmálanna og
lék fyrsta leiknum í skák heima-
mannsins Jóns Gunnars Ottóssonar,
forstjóra Náttúrufræðistofnunar,
gegn Guðmundi G. Þórarinssyni fv.
alþingismanni. Þeirri skák lauk með
sigri Guðmundar. Leikar fóru þannig
að lokum, að heimamenn fengu 42½
vinning en gestirnir 85½ vinning.
Bestum árangri Sunnlendinga náði
Magnús Gunnarsson sem lengi hefur
verið í hópi sterkustu skákmanna í
þeim landsfjórðungi. Hann hlaut 10
vinninga af 16 og næstur honum kom
Páll Leó Jónsson, með 8 af 14. Best-
um árangri gestanna úr Reykjavík
náði Ingvar Þór Jóhannesson með 15
vinn. af 18, en hann hefur verið í mik-
illi framför að undanförnu, og Sigurð-
ur Daði Sigfússon með 14½ vinn. af
18. Teflt var á veitingastaðnum Við
fjöruborðið við góðan viðurgjörning
heimamanna.
Lið Stokkseyringa skipuðu:
Magnús Gunnarsson 10 af 16
Páll Leó Jónsson 8 af 14
Vilhjálmur Pálsson 8½ af 14
Jón Gunnar Ottósson 4½ af 14
Ingimundur Sigurmundsson 4½ af
14
Erlingur Jensson 3 af 12
Úlfhéðinn Sigurmundsson 2 af 14
Hlynur Gylfason 2 af 16
Þorvaldur Ágústsson 1 af 14
Lið T.R. skipuðu:
Ingvar Þór Jóhannesson 15 af 18
Sigurður Daði Sigfússon 14½ af 18
Harvey Georgsson 12½ af 18
Ríkharður Sveinsson 11½ af 18
Guðmundur G. Þórarinsson 11 af
18
Árni Ármann Árnason 11 af 18
Kristján Örn Elíasson 8 af 18
Bjarni Magnússon 3 af 18
Það er ánægjulegt að sjá Harvey
Georgsson aftur við skákborðið á op-
inberu móti. Greinilegt er að hann á
fullt erindi þangað og vonandi tekst
TR-ingum að halda honum áfram við
efnið.
Skákmót á næstunni
4.2. TR. Hraðskákmót Rvk.
5.2. Hellir. Meistaramót Hellis
9.2. SÍ. Atskákm. Íslands, úrsl.
15.2. SÍ. NM einstaklingsk.
25.2. Hellir. Kvennameistaramót
Jón Viktor skákmeistari
Reykjavíkur
SKÁK
T a f l f é l a g
R e y k j a v í k u r
SKÁKÞING
REYKJAVÍKUR
13.–28.1 2001
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar
Stefánsson
Guðmundur
Kjartansson
Guðni Ágústsson leikur fyrsta leikinn í vináttukeppni
Taflfélags Stokkseyrar og TR.
Jón Viktor
Gunnarsson