Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nýlega, eða fyrir um 3 árum, var
stofnað lítið félag hér á landi sem
heitir Félag íslenskra þjóðernis-
sinna. Ég hef fengið þann heiður
að starfa í þessu félagi og gegni nú
stöðu varaformanns. Á þessum
rúmlega þremur árum hefur um-
ræða um innflytjendur og mál
þeirra breyst töluvert og er hún
sem betur fer alltaf að komast
meir og meir upp á yfirborðið þar
sem hún á heima. Umræðan um
Íslendinga hefur einnig breyst og
það til hins verra, æ oftar er talað
um Íslendinga í fjölmiðlum á nei-
kvæðan hátt og þeim líkt við ein-
hverja fordómafulla sveitadurga
og óvita sem kemur ekkert við
hvað gerist í þessu landi.
Mikið hefur verið talað um að
forsvarsmenn FÍÞ séu ómenntað-
ir, iðjulausir aumingjar. Þetta hef-
ur vakið furðu okkar í FÍÞ þar
sem við skiljum ekki hvað stjórn-
málamenn hafa á móti ómenntuðu
fólki. Ómenntað fólk hefur gáfurn-
ar til að kjósa þessa sömu stjórn-
málamenn á þing en það má ekki
hafa skoðun á því hvað gerist þar
inni eða hver gerir það. Varðandi
þetta með iðjulausu aumingjana
má geta þess að flestir stjórnar-
meðlimir og margir félagsmenn
stunda sjómennsku og hafa gert
það í dágóðan tíma. Útskýrir það
að hluta einhliða umfjöllun fjöl-
miðla um þessi mál. Sú staðreynd
að frjálslyndir geti ekki varið mál-
stað sinn og aðgerðir með öðru en
skítkasti á alla þá sem eru ekki
100% sammála þeim er fyrir neðan
allar hellur. Stefna frjálslyndra er
að draga umræðuna niður á svo
lágt plan með skítkasti og slag-
orðum, eins og „nasistar“, „ras-
istar“, að enginn taki eftir henni
lengur eða að þeir þurfi að færa
rök fyrir því af hverju við „neyð-
umst“ til að eyðileggja þjóðina
með hennar eigin þögla samþykki.
Skilaboð vissra mjög sterkra afla á
vinstri vængnum til þjóðarinnar
eru sem sagt: Haltu kjafti! Líttu
undan!
Á hverjum degi er troðið á rétti
Íslendinga til að tjá skoðanir sínar
og vilja og er það gert af sömu
mönnum og eru að boða persónu-
frelsi og skoðanafrelsi. Það er ekki
mikið lýðræði í landi þar sem að
ósýnilegur múll hefur verið settur
á annan hvern mann til að hann
tali nú ekki um neitt „hættulegt“.
Það eru ýmsar leiðir til að þagga
niður í háværum mönnum, t.d.
blaðagreinar, útvarpsefni, barna-
efni og sjónvarp og eru þessar að-
ferðir notaðar í töluverðum mæli.
Víða í þjóðfélaginu má sjá hvar
stjórnvöld beita kröftum sínum til
að verja hag sinn og sinna, má þar
nefna verkfallsrétt sjómanna en
hann hafa þeir ekki fengið að nýta
í meira en áratug útaf bráða-
birgðalögum sem sett eru fyrir
LÍÚ af stjórnvöldum hverju sinni.
Ávallt um þær mundir sem sjó-
menn undirbúa kjarabaráttu sína
hverju sinni verður umræðan um
sjómannaafsláttinn skyndilega
mjög hávær í þjóðfélaginu. Sjó-
mannafslátturinn er sú mesta
bölvun sem hefur dunið yfir sjó-
menn á síðari árum því að hann
tryggir það að sjómenn fá engan
stuðning frá þjóðinni. Raunin er sú
að sjómenn græða ekkert á þess-
um afslætti því útgerðirnar leggja
bara minna til þeirra fyrir vikið og
til að toppa allt saman hirða þær
olíugjald af sjómönnum. Já, það
eru ef til vill ekki margir sem vita
hvað olíugjald er, en það er ein-
faldlega það kerfi að sjómenn
borga olíuna á bátana sjálfir og nú
eru uppi þær hugmyndir að láta
sjómenn borga veiðarfærin líka.
Það styttist óðum í það að áhafnir
báta og skipa fari að borga tann-
læknakostnað fyrir börn útgerð-
armanna.
Sú þjóðfélagsímynd af fjölþjóða-
samfélagi sem vinstri menn, fram-
sókn og aðrar tegundir af fólki eru
að reyna að skapa er eins konar
bilaður draumaheimur afneitunar
sem á sér hvergi stoð í raunveru-
leikanum, nema þá helst í „Spike
Lee“-myndum og teiknimyndum
máski. Við þessari ímynd á fólk að
gleypa og reyna að lifa eftir henni,
þetta skapar ekkert annað en
gremju og óánægju hjá þeim sem
eru það vakandi ennþá að sjá í
gegnum vitleysuna. Þessi gremja
og óánægja mun skapa ef ekki
fleiri vandamál en innflytjenda-
málin koma til með að gera beint.
Þetta höfum við í FÍÞ reynt að
benda á og vara við ýmsum þjóð-
félagsbreytingum sem eru nú þeg-
ar að eiga sér stað í okkar litla
landi og ber þar helst að nefna
skærur milli kynþátta, nýnasista,
skemmdarverk, íkveikjur, hníf-
stungur, austur-evrópsk mafíu-
starfsemi o.fl. Þetta eru hlutir sem
við þurfum ekki á að halda og til
að stöðva þessa þróun er aðeins til
ein leið, hættum að flytja inn fólk
sem á ekki hér heima, íslenska
þjóðin gerir ekkert nema tapa á
því (fyrir utan eignafólk og at-
vinnurekendur)og þá ekki bara
peningum heldur munum við á
endanum tapa þeirri reisn og sam-
heldni sem hefur einkennt þessa
þjóð í gegnum aldirnar. Fólk verð-
ur að fara að átta sig á því að allar
þjóðir heims eru ekki eins gerðar,
ef svo væri þá væru væntanlega
engar þjóðir né landamæri til í
heiminum en sem betur fer erum
við ekki öll eins. Nú ríður á að
þjóðin fari að tala um þessi mál og
opni sig með skoðanir sínar, hverj-
ar sem þær eru, og ég treysti því
að fólk muni láta sínar skoðanir í
ljós í næstu kosningum og sýna
þar með vilja sinn. Að lokum vil ég
beina orðum mínum til þjóðern-
issinna og hvetja þá um að láta vel
í sér heyra í framtíðinni því rétt-
urinn er okkar sem frjálsra Ís-
lendinga og réttinn ber okkur að
nýta. Snúum vörn í sókn.
HLYNUR F. VIGFÚSSON,
varaformaður Félags íslenskra
þjóðernissinna
Málfrelsi
eða ekki?
Frá Hlyni Frey Vigfússyni:
!! " BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.