Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 27
Vantar þig ráðleggingar varðandi förðun eða
almenna notkun snyrtivara? LANCOME kynn-
ing í dag og á morgun á löngum laugardegi.
Opnaðu augun fyrir litum
COLOR FOCUS
ÖRUGGLEGA FLOTTUSTU AUGNSKUGGARNIR
TRÚÐU Á FEGURÐ www.lancome.com
Bankastræti 8, sími 551-3140
Glæsilegir kaupaukar: Falleg snyrtitaska
ásamt 6 lúxusstærðum, m.a. varalitur í
fullri stærð, 15 ml. dagkrem o.fl. Starfs-
fólk Söru tryggir viðskiptavinum sínum
góða, sérhæfða þjónustu og ráðgjöf.
Nýskr. 05. 1996, árg. 1997, 9800cc
diesel, 300 hestöfl
Hvítur/gulur, ekinn 170.000 km,
vörukassi og vörulyfta.
Verð 3.900 þ. án vsk.
Renault Premium 300.19
Grjóthálsi 1
Sími 575 1230/00
bíla
land
notaðir bílar
bilaland.is
B&L
TVEIR læknar sem eru nýkomnir
frá jarðskjálftasvæðunum í Gujarat
á Indlandi segja að það muni taka 6
til 12 mánuði að koma andlegu og
líkamlegu heilsufari eftirlifandi
fórnarlamba jarðskjálftans í sæmi-
legt horf. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi sem haldinn var í
Mumbai í gær.
Dr. A.T. Prahbu kom frá jarð-
skjálftasvæðunum í Gujarat í gær.
Hann segir að eitt stærsta vanda-
málið í björgunaraðgerðunum til að
byrja með hafi verið hvað svæðin
sem urðu verst úti í skjálftanum
voru afskekkt. „Ég veit ekki hvað
mörgum útlimum við hefðum getað
bjargað ef þau svæði hefðu verið að-
gengilegri. Bara ef við hefðum kom-
ist þangað nokkrum klukkustundum
fyrr hefðum við ekki þurft að aflima
jafn marga og við í raun gerðum,“
segir Dr. A.T. Prahbu sem tók einn-
ig þátt í björgunaraðgerðum eftir
stóru skjálftana í Latur 1993 og
Jabalpur 1997.
Prahbu segir að mikilvægt sé að
hugsa ekki um hve margir séu látnir
í rústunum, hugsa verði um hvað
þurfi að gera til að hjálpa þeim sem
eru á lífi. „Við verðum að horfast í
augu við það að þetta er langtíma-
vandamál sem við þurfum að vinna á
næstu sex til tólf mánuðum. Þá á ég
ekki við endurreisn bygginga eða
tengingu símkerfa heldur eingöngu
andlega og líkamlega heilsu fólks.
Þetta er risastórt heilbrigðisvanda-
mál. Ég hitti foreldra sem misstu öll
börnin sín, eiginkonur sem misstu
eiginmenn sína og börn sem misstu
foreldra sína. Flestir glíma við al-
varlegt þunglyndi svo ekki sé
minnst á varanlega fötlun eða bein-
brot og aðra áverka. Núna verðum
við að búa til áætlun um hvernig við
ætlum að hjálpa þessu fólki og fara
eftir henni,“ segir Prahbu.
Dr. A. Bhide tekur undir með
starfsbróður sínum og segir að sam-
hæfing aðgerða sé mjög mikilvæg.
Til að byrja með hafi það hins vegar
verið stórt vandamál. „Fólki í þorp-
unum var sagt að fara á spítala í
Bhuj, þangað sem það fór eingöngu
til að komast að því að spítalinn þar
var rústir einar.
Þetta má ekki gerast. En vanda-
málið var að sjálfsögðu að starfs-
bræður okkar á sjúkrahúsinu í Bhuj
létu flestir lífið í skjálftanum svo það
var enginn til að veita slösuðum
fyrstu hjálp þangað til við komum á
vettvang,“ segir Bhide.
Læknarnir segja að ekki sé mikil
hætta á að farsóttir breiðist út í
þorpunum þar sem þar sé ekki mik-
ið af líkum liggjandi í rústunum.
Öðru máli gegni um borgir eins og
Bhuj og Ahmedabad þar sem tugir
ef ekki hundruð líka séu enn grafin í
rústunum.
APHalina Bai Illyas Kumbar sýnir fréttamönnum rústir húss síns í miðbæ Bhuj í gær.
Andlegt og líkam-
legt tjón gífurlegt
Ragna Sara Jónsdóttir sat í gær fund í Mumbai með læknum sem
nýkomnir voru frá jarðskjálftasvæðunum í Gujarat á Indlandi.
Mumbai. Morgunblaðið.