Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS Það eru aðeins þrír dagar á ári sem ég helga sjónvarpsáhorfi. Ríkisút- varpið Rás 1 sér um mig hina daga ársins með fróðleik og skemmtun frá morgni til kvölds alla daga ársins. Hef ég lengi furðað mig á hversu margt fullorðið fólk hefur menning- arstandard á við unglinga á gelgju- skeiði og enn furðulegra hversu óragt það er við að bera heimsku sína á torg, og lýsa því yfir opinber- lega að einkavæða ætti bæði Ríkisút- varpið og -sjónvarpið. En það er augljóslega ein ástæða fyrir að rík- isreka fjölmiðil og hann er sá að halda úti menningarlegri og vand- aðri dagskrá en einkastöðvarnar. Þessu forskoti sínu er sjónvarpið við það að verða búið að glutra niður og það hefur virkilega staðið undir nafni hvað menningarlegt efni varð- ar þessa þrjá daga á ári, þ.e.a.s. jóla- dagskvöld, gamlárskvöld og nýárs- kvöld. Sjónvarpið fór nú að keppa við Stöð 2 um lágmenninguna á nýárs- kvöld og sýndi ameríska unglinga- mynd á undan Baldri og eyðilagði heimilisfriðinn heima hjá mér, því ég vildi þá frekar láta unglinginn horfa á þáttinn um Stephan G. sem ég átti á spólu frá jólakvöldinu með mér aft- ur en að detta ofaní svona lágmenn- ingu á stórhátíð. Ég þakka ríkisútvarpinu og sjón- varpinu mikið til þann menningar- áhuga sem ég hef og hef ég reynt að einangra mitt heimili fyrir öðrum sjónvarpsútsendingum. Ég var stolt þegar 10 ára gömul dóttir mín fyrir 6 árum sagði aðspurð að nýjasta tækni og vísindi væri uppáhaldssjónvarps- efnið sitt, en það átti nú eftir að breytast. Hún tók þó framyfir margt þættina um ævi Knut Hamsun sem voru sýndir fyrir tveim árum og bíó- myndina sem kom í fyrra um hann, en síðan hefur enginn bitastæður framhaldsþáttur komið í sjónvarp- inu. Eru þættirnir maður er nefndur með taldir þótt mér finnist Hannes Hólmsteinn vera fyndinn... Eins brást Sjónvarpið mér um þessi jól að sýna ekki einhverja góða norræna bíómynd eins og svo oft hefur verið gert og grafa þeir þá upp sjaldséðar gersemar sem ekki eru á allra vitorði. Á meðan Stöð 2 hefur haft margþvældar myndir af topp 10 lista myndbandaleiganna. Aldrei hefur þó jóladagskrá sjón- varpsins verið betri en þegar Hrafn Gunnlaugsson hefur verið dagskrár- stjóri, hann sýndi frekar tvenn jól í röð fjögurra þátta röð um Fannýju og Alexander eftir Ingmar Bergman en að sýna einhverja ameríska lág- menningu. Ég hef grun um að þessi norræni jólamyndasiður hafi komist á með Hrafni. Ég legg til að Hrafn verði fenginn af og til með nokkurra ára millibili til að reisa við standard- inn og hrista upp í þessari eftiröpun af Stöð 2 sem sjónvarpið er orðið. En dagskráin á gamlárskvöld brást mér þó ekki, þar náði ég sem endranær að sjá á tveim tímum allt það merkilegasta og myndrænasta sem komið hefur í fréttunum allt árið sem ég horfi annars nánast aldrei á heldur hlusta á kvöldfréttir útvarps- ins og hugsa um kvöldmatinn á með- an. Skaupið var gott að vanda og ekk- ert síðra við aðra áhorfun. Best þótti mér umfjöllunin um nýjufötinkeisar- ans.com Ég man ekki eftir að hafa verið svo fúllynd á gamlárskvöld að ég hafi ekki haft eitthvert gaman að velflest- um atriðum áramótaskaupanna og var skaupið að þessu sinni engin undantekning. ÁSDÍS ARTHURSDÓTTIR, nemi í heimspekideild. Léleg sjónvarpsdagskrá Frá Ásdísi Arthursdóttur: Þegar ég þarf að telja fram tíu krónupeninga byrja ég svona: Einn, tveir þrír – og svo framvegis. Þegar ég er kominn upp í tíu veit ég að einn tugur hefur verið talinn. Ég gæti svosem byrjað á núlli. Með því móti kæmist ég upp í einn tug á tölunni níu, en ég er ekki vanur að telja þannig. Ég nota meira að segja sömu aðferð þegar ég tel upp í hundrað, þúsund eða hvað sem er; byrja alltaf á einum. Þegar ég tel upp að þúsund byrja ég á einum og enda á þúsund. Ef ég þyrfti að bæta einu þúsundi við myndi ég halda áfram með því að nefna töluna 1001 og enda loksins á 2000. Þriðja þúsundið myndi ég, ef á þarf að halda, byrja á tölunni 2001. En þetta eru svosem ekkert ný sann- indi. Svona telur allt fólk sem ég þekki – nema kannski þegar ártöl eru annars vegar. ÞORSTEINN EGGERTSSON, rithöfundur, Skipholti 18, Reykjavík. Að telja upp að tíu Frá Þorsteini Eggertssyni: MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.