Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 64
DAGBÓK
64 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sólvalla-
götu 48, Reykjavík.
Skrifstofan er opin alla
miðvikudaga frá kl. 14–
17. Sími 551-4349. Fata-
úthlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
hvern miðvikudag í mán-
uði, frá kl. 14–17, sími
552-5277. Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður, s.
897-1016, fax 544-4660.
e-mail dalros@is-
landia.is
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó. Píanóleikur í
kaffitímanum.
Árskógar 4. Kl. 9 perlu-
og kortasaumur, kl.
11.15 tai-chi-leikfimi, kl.
13 opin smíðastofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9 bókband, kl. 9–
16 handavinna og fótaað-
gerð, kl. 13 vefnaður og
spilað í sal.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum, kl. 13–16,30, spil
og föndur. Leikfimi er í
íþróttasal á Hlaðhömr-
um á þriðjudögum kl. 16.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á miðviku-
dögum á vegum Rauða
krossdeildar Mos. Pútt-
tímar eru í Íþróttahús-
inu á Varmá kl. 10–11 á
laugardögum. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum, kór
eldri borgara í Mos. eru
á Hlaðhömrum á
fimmtudögum kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fótanudd,
er í s. 566-8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan opin og handa-
vinnustofan opin, kl. 9.45
leikfimi, kl. 13.30 göngu-
hópur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 „opið hús“, spilað á
spil.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband,
kl. 9.15 vefnaður.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Tréútskurður í Flens-
borg kl. 13. Myndmennt
kl. 13. Brids kl. 13.30.
Gullsmári, Gullsmára
13. Gleðigjafarnir syngja
í Gullsmára í dag. Laug-
ardaginn 3. febrúar kl.
14–17 verður opið hús í
Gullsmára. Stúlkur úr
Tónlistarskóla Garða-
bæjar leika á fiðlu. Kaffi
í boði félagsins. Vox
Feminae syngur undir
stjórn Margrétar
Pálmadóttur. Húsið opn-
að kl. 13.30.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Bók-
menntahópur og les-
hringur í bókasafninu 5.
feb. kl. 10.30. Spilakvöld,
félagsvist á Álftanesi 8.
feb. kl. 19. 30. Akstur
skv. áætlun.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Leikhópurinn Snúður og
Snælda munu frumsýna
sunnudaginn 4. febrúar
kl. 17 í Ásgarði Glæsibæ,
„Gamlar perlur“, þættir
valdir úr fimm gömlum,
þekktum verkum. Sýn-
ingar eru fyrirhugaðar á
miðvikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17.
Laugardagur 10. febr-
úar kl. 13.30. Fyrsti
fræðslufundur „Heilsu
og hamingju“ verður
laugardaginn 10.
febrúar kl. 13.30. í Ás-
garði, Glæsibæ. Ólafur
Ólafsson. formaður FEB
og fyrrverandi land-
læknir, gerir grein fyrir
rannsóknum sínum á
heilsufari aldraðra.
Þorsteinn Blöndal yf-
irlæknir greinir frá
helstu sjúkdómum í
lungum, sem
aldraðrir verða fyrir.
Allir eru velkomnir.
Breyting hefur orðið á
viðtalstíma Silfurlín-
unnar, opið verður á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h.
Upplýsingar á skrifstofu
FEB í s. 588-2111 frá kl.
10 til 16.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta og út-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi og spurt og spjallað,
kl. 14 bingó.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Norðurbrún 1. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 10 boccia, kl.
13.30 stund við píanóið.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 handavinna, kl.
13 sungið við flygilinn,
kl. 14.30 dansað í aðalsal,
Sigvaldi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerð, kl. 13.30
bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra leik-
fimi í Bláa salnum í
Laugardalshöll, kl. 10.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félagsheim-
ilinu Leirvogstungu.
Kaffi og meðlæti.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur aðalfund í
Safnaðarheimilinu
mánudaginn 12.
febrúar kl. 20. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Félag Snæfellinga og
Hnappdæla, heldur
bingó sunnudaginn 4.
febrúar kl. 15 í Breið-
firðingabúð, Faxafeni
14. Kynntar verða nýút-
komnar byggðarbækur
um Kolbeinsstaðahrepp
og Eyja- og Miklaholts-
hrepp í kaffitímanum.
Úrvalsfólk. Vorfagn-
aður Úrvalsfólks verður
haldinn á Hótel Sögu,
Súlnasal, föstudaginn
16. febrúar kl. 19, miða-
og borðapantanir hjá
Rebekku og Valdísi í
síma 585-4000.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530
3600.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi), 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í
síma 861-6880 og 586-
1088. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
MS-félag Íslands. Minn-
ingarkort MS-félagsins
eru afgreidd á Sléttu-
vegi 5, Rvk., og í síma
568-8620 og myndrita s.
568-8688.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 virka
daga kl. 8 og 16. Utan
dagvinnutíma er tekið á
móti minningargjöfum á
deild 11-E í s. 560-1225.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588-9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Í dag er föstudagur 2. febrúar, 33.
dagur ársins 2001. Kyndilmessa.
Orð dagsins: Látið fætur yðar feta
beinar brautir, til þess að hið fatlaða
vindist ekki úr liði, en verði heilt.
(Hebreabréfi 12, 13.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 skinn, 4 beinið, 7 blóm-
ið, 8 glufur, 9 op, 11
mannsnafn, 13 baun,
14 hefur í hyggju, 15
gegnsær, 17 víða, 20 fljót,
22 fugl, 23 kirtill, 24
híma, 25 hinar.
LÓÐRÉTT:
1 syrgja, 2 guðshús, 3
skökk, 4 tæplega, 5 hrós-
ar, 6 gabba, 10 kjánar,
12 stúlka, 13 bókstafur,
15 flennan, 16 húsdýrin,
18 rándýr, 19 peningar,
20 mör, 21 haka.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hrekkvísa, 8 kámug, 9 sætið, 10 góa, 11 tarfa,
13 Nýall, 15 hafís,
18 sauða, 21 kát, 22 slota, 23 andar, 24 skaflanna.
Lórétt: 2 rómar, 3 kagga, 4 vísan, 5 sötra, 6 skot, 7 óðal,
12 frí, 14 ýsa,
15 hosa, 16 flokk, 17 skalf, 18 staka, 19 undin, 20 akra.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI keypti hús á höfuð-borgarsvæðinu fyrir nokkrum
árum. Þar sem Víkverji er ekki
bundinn neinu hverfi átthagafjötr-
um var erfitt að velja staðsetningu
því höfuðborgin býður upp á óend-
anlega möguleika við búsetuval.
Einna síst fannst Víkverja þó koma
til greina að búa í miðbænum, við
Laugaveginn eða þar í grennd, því
hann hafði prófað það á þeim tíma
sem hann var að hlaupa af sér horn-
in. Það var fínt þá, en að fenginni
reynslu fannst Víkverja það ekki
fýsilegt núna. Á endanum keypti
Víkverji hús með stórum garði í
jaðri höfuðborgarsvæðisins. Börnin
geta gengið í skólann, göngustígar
liggja í allar áttir og ósnortin náttúr-
an er við túnfótinn. Þar er gott að
vera.
x x x
VÍKVERJA brá því í brún þegarhann áttaði sig á hve hlutskipti
hans er ömurlegt. En þetta er víst
staðreynd ef marka má þær raddir
sem hvað hæst mæla með þéttingu
byggðar. Enginn hugsandi maður
býr í úthverfi! Búi maður á annað
borð í borg, þá á maður að búa í mið-
borg – og henni sem þéttastri. Það
heitir „lifandi borg“. Maður á að
geta verið í göngufæri við vínhús og
verslanir því þar þrífst menningin.
Þetta er a.m.k. sá skilningur sem
Víkverji leggur í áróðurinn um þétt-
ingu byggðar og „rétt“ fólks til að
búa í miðborg. Andstæðan við lif-
andi borg er svo sofandi úthverfi.
Höfundur Viðhorfs orðaði þetta
reyndar skemmtilega í pistli sínum
hér í blaðinu sl. þriðjudag, en þar
sagði hann að borgin hefði dreift úr
sér eins og illgresi og úthverfin
væru eins og æxli utan á borginni.
Víkverji fletti upp nokkrum grein-
um um svipað efni í gagnasafni
Morgunblaðsins. Af handahófi greip
hann niður í grein sem Örn Sigurðs-
son arkitekt ritaði seint á síðasta ári.
Arkitektinn var að rökstyðja þétt-
ingu byggðar. Í greininni kom fram
að það væri þjóðfélagslega óhag-
kvæmt að búa í úthverfi og að bíla-
floti landsmanna væri baggi á þjóð-
félaginu. Víkverji leggur engan dóm
á það en staðnæmdist hins vegar við
þessa setningu: „Kjörtíma íbúanna,
sem ætti að verja í uppeldi, umönn-
un og menntun barna, sköpun, hvíld,
skemmtun, útivist, menningarstarf
og mannleg samskipti, er sóað í
endalausum akstri og striti fyrir
rekstri bílsins.“
x x x
ÞESSAR staðreyndir vorureiðarslag fyrir Víkverja. Hann
hafði ekki gert sér grein fyrir því
hve ómerkilegur úthverfalýður fjöl-
skylda hans var, ef fjölskyldu skyldi
þá kalla. Og nágrannar Víkverja
hljóta þá einnig að vera undir sömu
sökina seldir, rúntandi á rándýrum
bensínsvelgum þvers og kruss um
höfuðborgarsvæðið liðlangan dag-
inn! Víkverji leitaði fleiri heimilda í
safninu og fann könnun um búsetu-
val sem Gallup gerði fyrir samvinnu-
nefnd svæðisskipulags höfuðborgar-
svæðisins í maí fyrra. Þar stóð kom
fram að næstum 79% sögðu að ná-
lægð skóla skipti miklu máli, 55% að
nálægð við vinnustað skipti miklu
máli, næstum 78% finnst nálægð við
útivistarsvæði skipta miklu máli og
um 75% vildu hafa verslanir í ná-
grenninu. Um 34% svarenda sögðu
að nálægð við miðbæjarkjarna
skipti miklu máli við búsetuval.
x x x
VÍKVERJA létti; hann tilheyrirsem sagt þeim lágværa meiri-
hlutahópi sem af fúsum og frjálsum
velur að búa fjærri öldurhúsamenn-
ingunni. Tónlistar- og menningar-
viðburðirnir sem hverfafélag Vík-
verja kynnir reglulega með
dreifibréfum eru þá eftir allt boðleg
menning, og ósnortin náttúran er
a.m.k. jafngott útivistarsvæði og
Hljómskálagarðurinn og Klambra-
tún. Ef þessi þröngsýni en háværi
minnihlutahópur lyfti einhvern tíma
upp asklokinu og liti út, þá sæju þeir
að úthverfin eru síður en svo
svefnbæir; þau iða af lífi og menn-
ingu. En Víkverja er hins vegar slétt
sama þó þeir komist aldrei að því og
er enn hæstánægður með úthverfið
sitt þótt einhverjir haldi því fram að
það sé æxli.
HVERSU lengi ætlar þetta
eiginlega að halda áfram?
Hvernig stendur á þessu
endalausa þvargi um okkur
öryrkjana? Því er alltaf
vitnað í þennan Garðar og
hans fylgifiska? Það er aug-
ljóst að þeir eru bara í póli-
tískum slag við stjórnina.
Góðu landsmenn, þið hljót-
ið að vera farnir að átta
ykkur á því. Það er í raun-
inni öllum sama um okkur
öryrkjana. Við erum af
stórum hluta þjóðarinnar
álitnar afætur. Við erum oft
talin bæði lygin og löt og að
með því móti getum við
fengið lækna til að skrifa
vottorð sem duga okkur til
þess að þurfa ekki að vinna,
af því að við nennum ekki
að vinna. Eruð þið ekki í
lagi? Haldið þið virkilega
að fólk í blóma lífsins og á
uppleið og með slatta af
börnum og afborganir á
bakinu ákveði bara si svona
að verða veikt? Hvaða ham-
ingja er í því fólgin að
vakna að morgni og hafa
ekkert sérstakt að gera,
eiga jafnvel í vandræðum
með að koma sér framúr
vegna fötlunar sinnar eða
veikinda. Þó er skárra að
vera veik kona, en veikur
karlmaður. Konan getur
skýlt sér bak við húsverkin
og barnasnuddið, en karl-
maðurinn einfaldlega þráir
að vinna og skaffa, a.m.k.
svona langflestir, en það
eru auðvitað til undantekn-
ingar á þessu eins og öllu
öðru. Það þýðir ekkert að
þræta fyrir þetta, ég tala af
reynslu. Kæra stjórnar-
andstaða. Hættið nú þessu
málaþófi, þið verðið ekki
meiri menn fyrir vikið.
Ykkur er sama um okkur,
en ykkur er ekki sama um
ykkur sjálfa, þið viljið bara
ykkar hag sem bestan og
núna teljið þið best að
steypa stjórninni svo þið
getið ráðið ofboð lítið
meiru. Þið eruð ekkert
„góðir gæjar“ ef þið haldið
það. Þið hefðuð sjálfir ekki
getað leyst þetta á betri
hátt ef þið hefðuð verið í
stjórn, þið eruð bara á móti
til að vera á móti og svo
þetta gamla lúalega bragð
að þykjast alltaf hafa sam-
úð með lítilmagnanum. Ég
blæs á þetta bull ykkar,
löngu orðin leið á samúðar-
hjalinu sem lekur út úr
ykkur þegar ykkur hentar.
En ef þið viljið endilega slá
ykkur til riddara með því
að „þykjast finna svo til
með aumingja öryrkjun-
um“ hjálpið þá þeim sem
mest þurfa hjálpina. Við
hin sem erum svo heppin að
fá úr lífeyrissjóðum getum
alveg bjargað okkur sjálf,
alveg eins og hinir sem eru
á lágu laununum og eru
samt „að meika það“.
Að lokum aðeins um
mannréttindi. Eru börnum
og unglingum okkar lands
sýnd mannréttindi þegar
þau slasast, veikjast eða
annað hendir sem dregur
þau út úr eðlilegu lífi?
Ein sem er öryrki
og gift öryrkja.
Silkihúfur á Íslandi
GUÐMUNDUR hafði
samband við Velvakanda
og sagði að hann væri sam-
mála því, sem skrifað var
um Ingibjörgu Pálmadótt-
ur heilbrigðisráðherra í
Reykjavíkurbréfi Morg-
unbl. sunnud. 21. jan. sl.
Hún er dugleg að útvega fé
í heilbrigðisgeirann. Hann
er ósammála því, að það
þurfi að bæta við í ráðu-
neytin og bæta við ráðherr-
um. Það er nóg til af silki-
húfum á Íslandi.
Einelti
ÞÁTTUR Helgu Braga á
Stöð 2 í jan. sl. og öll um-
ræðan um þennan glæp
varðar okkur öll. Það á eng-
inn að líða slíkt, þótt ger-
endur séu að fela eigin
minnimáttarkennd með því
að ráðast á aðra. Þeir vita
vel að þeir eru að fremja
níðingsverk. Viðtal í þætt-
inum við unga, aðlaðandi og
fallega stúlku, sem sagði
frá reynslu sinni, snart mig
mjög. Þeir sem segja frá
sinni skelfilegu reynslu á
opinberum vettvangi gera
það til þess að hjálpa öðr-
um. Það er besta og hug-
rakkasta fólkið. Helga og
þeir sem komu fram í þætt-
inum eiga hrós skilið.
G.S.K.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Halló, halló,
nú er mál
að linni