Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 11 LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ hyggst að beiðni heilbrigðisráðuneyt- isins kanna mál mannsins sem játað hefur á sig skemmdarverk og íkveikju að bænum Hvalnesi í Lóni. Í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði Einar Kristjánsson, faðir mannsins, m.a. að eftir að sonur hans braut fyrst af sér hefðu foreldrar hans leitað eftir aðstoð geðdeildar Landspítalans. Sonur hans var þá 17 ára gamall. Þar hefðu þau komið að lokuðum dyrum. „Á fimm mínútum er úrskurðað að sonur minn eigi ekki erindi þangað. Geðlæknir ræddi við son okkar og eftir tiltölulega stutt viðtal, trúlega kringum fimm mínút- ur, segir hann að hann eigi bara að fara í afvötnun og hætta að drekka. Það kom ekki til greina að setja hann í neina meðferð hjá geðlækni.“ Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir segist ekki geta tjáð sig um mál mannsins enda þekki hann það ekki. Því sé erfitt að segja til um hvort vinnubrögð geðlæknisins hafi verið óeðlileg. „Almennt talað verður það að vera mat geðlæknis hvort lík- legt sé að árangur verði af meðferð,“ segir Matthías. Geðlæknar geti metið það svo að einstaklingar muni af ein- hverjum orsökum ekki hafa gagn af meðferð. Einar sagði einnig að sálfræðiað- stoð sem sonur hans þyrfti á að halda væri of dýr. Svo dýr að hvorki hann né foreldrar hans hefðu efni á með- ferð sálfræðings. Matthías segir að allir eigi að geta leitað sér læknishjálpar vegna geð- sjúkdóma án þess að kostnaður vegna þess verði þeim ofviða. „Það er að minnsta kosti markmið kerfisins að svo sé ekki.“ Miðað við þau ein- kenni sem faðir mannsins lýsti í Morgunblaðinu í gær eigi kostnaður ekki að koma í veg fyrir að hann fái meðferð við hæfi. „Í sumum tilvikum getur það verið svo að sjúklingar vilji ekki meðferð og þá er málið orðið erf- itt,“ segir Matthías. Ekki sé hægt að þvinga sjálfráða menn í meðferð vegna sjúkdóma. Einar sagði einnig að aðeins með- ferð sálfræðings myndi duga syni sín- um. Matthías segir erfitt að leggja mat á slíkt. Geðlæknar veiti geðmeð- ferð en auk þess sé hægt að fá sál- fræðiþjónustu inni á meðferðarstofn- unum. Fyrir það þurfi ekki að greiða. Matthías segir að meðferð geðlækna og sálfræðinga sé áþekk. Þó geti ein- ungis geðlæknir ávísað geðlyfjum og sálfræðingar sérhæfi sig í sálfræði- prófum og viðtalsmeðferð, svo dæmi sé nefnt. Þá sinni geðlæknar frekar alvarlegri geðsjúkdómum, þótt verk- efni þeirra skarist að talsverðu leyti. Hannes Pétursson, prófessor og forstöðulæknir geðsviðs Landspítala – háskólasjúkrahúss, segist ekki geta tjáð sig um einstök mál auk þess sem hann þekki ekki til málsins eða að- stæður mannsins. Þegar hann var spurður um þá lýsingu föður manns- ins að úrskurður geðdeildar um að hann ætti ekki erindi þangað hefði aðeins tekið fimm mínútur sagði Hannes að geðdeild Landspítalans reyndi að standa eins vel og mögulegt væri að bráðamóttöku og göngudeild- arkomum o.s.frv. Honum þótti lýs- ingin ólíkleg en sagði að hann gæti þó ekkert fullyrt um málið fyrr en hann hefði kannað það. Hjá Tryggingastofnun ríkisins fengust þær upplýsingar að stofnun- in tæki engan þátt í kostnaði þeirra sjúklinga sem eru í meðferð hjá sál- fræðingum. Kristján Guðjónsson, framkvæmdastjóri sjúkratrygginga- sviðs Tryggingastofnunar ríkisins, segir að til þess skorti einfaldlega lagaheimild. Tryggingastofnun tekur aftur á móti þátt í kostnaði vegna þjónustu geðlæknis. Um það gilda sömu reglur og varðandi meðferð hjá öðrum sérfræðingum. Viðbrögð við ummælum föður manns sem sakaður er um íkveikju Landlæknir beð- inn um að skoða mál mannsins EINU versluninni með matvöru á Bakkafirði var lokað nú um mánaða- mótin og þurfa Bakkfirðingar því að aka tugi kílómetra til næsta versl- unarstaðar eða panta vörur símleið- is. Steinar Hilmarsson, oddviti Skeggjastaðahrepps, segir að þungt hljóð sé í Bakkfirðingum en ekki hafi verið ákveðið hvernig brugðist verði við lokun verslunarinnar. „Við erum kannski fyrst að átta okkur á því núna að þetta er orðin staðreynd. Þetta hefur komið til tals áður en þá varð ekkert úr því að það yrði lokað og kannski hefur verið álitið að þetta yrði eitthvað svipað núna.“ Verslunin er hluti af almennings- hlutafélaginu Lóninu ehf. sem aðilar á Þórshöfn og Bakkafirði stofnuðu í kjölfar þess að Kaupfélag Langnes- inga hætti rekstri en Kaupfélagið var með útibú á Bakkafirði. Að sögn Steinars tóku Bakkfirðingar virkan þátt í stofnun nýja félagsins með kaupum á hlutafé, bæði einstakling- ar og sveitarfélagið, en stærðarinnar vegna voru aðalstöðvar félagsins settar upp á Þórshöfn. Steinar segir það ljóst að félagið eigi við rekstrarerfiðleika að stríða, en telur það hins vegar fljótfærni að loka strax versluninni á Bakkafirði um leið og harðnar á dalnum. „Manni finnst það svolítill flumbru- gangur og án samráðs við nokkurn hér. Ég held að óhætt sé að segja að Bakkfirðingar séu dálítið svekktir út í þessa aðferð og þessa stöðu. Það er ekki einu sinni búið að gera upp eða ganga frá bókhaldi endanlega, þann- ig að það veit enginn alveg fyrir víst hvort að þessi deild hér er eitthvað verr sett en önnur.“ Næsta verslun við Bakkafjörð er á Vopnafirði en þangað er 33 kíló- metra leið, að hluta til yfir Sandvík- urheiði sem oft er torfarin yfir vetr- artímann. Til Þórshafnar eru 45 kílómetrar og heldur leiðinlegri og erfiðari leið, að sögn Steinars. Verulegt áfall fyrir íbúa staðarins Auk þess að reka matvöruverslun á Bakkafirði annaðist Lónið af- greiðslu fyrir Olíufélagið hf. á bens- íni og olíu. Steinar segir að líklega muni félagið hafa eitthvað opið áfram og að nú sé verið að semja við verslunarstjórann á Bakkafirði um að hafa opið 2 tíma á dag, þótt óljóst sé hvort það verði til frambúðar. Á Bakkafirði búa um 150 manns og segir Steinar að mannfjöldaþróun hafi verið nokkuð stöðug og að held- ur hafi fjölgað undanfarin ár. At- vinnuhorfur eru ágætar og ástandið almennt nokkuð gott, að sögn Stein- ars, og því er lokun verslunarinnar verulegt áfall fyrir byggðarlagið. Í gær var borið út bréf frá Lóninu ehf. þar sem íbúum er bent á þann möguleika að panta vörur símleiðis úr versluninni á Þórshöfn. Þar kem- ur fram að íbúar geti pantað vörur á laugardögum milli kl. 10 og 14 sem afhentar verði á mánudagsmorgn- um. Þá verður hægt að panta á mið- vikudögum frá kl. 9 til 18 og fá þá pöntun fimmtudagsmorgnum, en vörurnar eru sendar íbúum að kostn- aðarlausu. Sé hins vegar pantað utan þessa tíma þarf viðkomandi sjálfur að greiða fyrir flutninginn. Einu versluninni með matvörur lokað á Bakkafirði Næsta verslun í 33 km fjarlægð                                            SÝSLUMANNSEMBÆTTIÐ í Ólafsfirði hefur verið auglýst laust til umsóknar og er umsóknarfrestur útrunninn. Þessir sóttu um emb- ættið: Ástríður Grímsdóttir hdl., Bogi Hjálmtýsson, fulltrúi, Eyþór Þor- bergsson, fulltrúi, Hilmar Baldurs- son hdl., Lára Huld Guðjónsdóttir, lögfræðingur og Þorsteinn Péturs- son hdl. Sex sækja um sýslu- manns- embættið Ólafsfjörður ATKVÆÐAGREIÐSLU um kjarasamning grunn- skólakennara er lokið og eru atkvæði farin að berast í hús Kennarasambands Íslands. U.þ.b. 4.000 kennarar greiða atkvæði um samninginn, en viðhöfð er póst- atkvæðagreiðsla. Atkvæði verða talin nk. mánudag. Á myndinni er Valgeir Gestsson, kennari og fyrrver- andi skólastjóri, að ganga frá atkvæðum. Í bakgrunni eru Ólína Thoroddsen og Áslaug Ármannsdóttir. Morgunblaðið/Þorkell Atkvæðagreiðslu lokið HÆSTIRÉTTUR hefur vísað frá dómi máli fanga á Litla-Hrauni, sem krafðist tveggja milljóna króna í bætur fyrir agaviðurlög sem hann var látinn sæta í fangelsinu eftir að fíkniefni fundust í klefa hans. Hæsti- réttur sagði kröfu mannsins ekki reista á viðhlítandi lagagrunni. Við leit í klefa fangans fannst 21 gramm af hassi. Hann var látinn sæta agaviðurlögum, sem fólust í því að hann var einangraður í 15 daga, en á meðan hafði hann ekki aðgang að sjónvarpi. Þá var hann sviptur vinnulaunum eða dagpeningum að hálfu í 30 daga og var í síma-, bréfa- og sendingabanni á sama tíma. Loks áttu heimsóknir til hans næstu 3 mánuði að fara fram án snertingar í sérstöku heimsóknarherbergi í ör- yggisálmu fangelsisins og máttu vera ein klukkustund vikulega. Fanginn sætti sig við þessi viðurlög. Í framhaldi af fíkniefnafundinum var höfðað opinbert mál á hendur fanganum, en héraðsdómari komst að þeirri niðurstöðu að gegn ein- dreginni neitun hans væri ekki sann- að að hassið hefði verið í hans eigu. Þessum dómi var ekki áfrýjað til Hæstaréttar, en fanginn taldi hann sýna að agaviðurlögin hefðu ekki verið réttmæt. Hæstiréttur segir, að þar sem ákvörðun um agaviðurlög hafi hvorki verið tekin í tengslum við rannsókn eða meðferð opinbers máls né á grundvelli slíkrar rannsóknar, og stoð fyrir henni hafi ekki verið sótt til laga um meðferð opinberra mála gæti fanginn ekki vísað til þeirra laga til stuðning kröfu sinni. Kröfu fanga hafnað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.