Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is Vilborg Gunnarsdóttir formaður umhverfisráðs Akureyrarbæjar sagði að fjallað yrði um þær athuga- semdir sem bárust á næsta fundi ráðsins síðar í þessum mánuði og þá tekin afstaða til þess hvernig við þeim verður brugðist. Vilborg sagði að svo fljótt sem auðið væri eftir að búið verður að staðfesta deiliskipulagið yrðu lóðirnar auglýstar lausar til um- sóknar. Í framkvæmdaáætlun fyrir þetta ár er gert ráð fyrir 11 millj- ónum króna til gatnagerðar á svæð- inu og verður hafist handa með vor- inu. Lóðir miðsvæðis í bænum „Ég á von á því að mikill áhugi verði fyrir þessum lóðum. Þetta svæði er miðsvæðis í bænum, það má í raun segja að það sé í hjarta bæj- arins og ég held að mörgum þyki eft- irsóknarvert að byggja þarna,“ sagði Vilborg. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að byggðar verði 58 íbúðir á þessu svæði, en gert er ráð fyrir 19 lóðum fyrir einbýlishús og 36 íbúðum í tveggja hæða raðhúsum. Svæðið sem um ræðir liggur norðan og vest- an undir háum brekkum við Kringlu- mýri og Kotárgerði og meginhluti þess er fyrir mynni lítils dalverpis norður af Mýrarvegi. Svæðið hefur gengið undir vinnuheitinu Tómasar- hagi og kennt við fyrrverandi for- mann skipulagsnefndar bæjarins, en eldri bæjarbúar þekkja það undir nafninu „Lallabrekka“. Lengi hefur verið gert ráð fyrir í aðalskipulagi Akureyrar að byggt yrði á svæðinu, en fyrirhuguð landnotkun hefur breyst frá einum skipulagsuppdrætt- inum til annars. Leitast er við í deiliskipulagi,sem Finnur Birgisson arkitekt vann,að móta byggðina þannig að hún falli eðlilega að landslagi og að væntan- legir íbúar fái notið þeirra kosta sem svæðið býr yfir, en þeir eru einkum gott útsýni til norðurs og nálægð við opin svæði, sem bjóða upp á spenn- andi möguleika til útivistar. Við ákvörðun um þéttleika byggð- ar og val á húsagerðum var m.a. tekið mið af því að byggðin er ekki sérlega vel staðsett með tilliti til skólasóknar barna og því ekki talið æskilegt að stefna að miklum fjölda íbúða, en bjóða þó upp á blandaða byggð. Morgunblaðið/Kristján Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi við Klettaborg er gert ráð fyrir byggingu 58 íbúða á svæðinu, 19 einbýlishúsa og 36 raðhúsaíbúða á tveimur hæðum. Á þessari mynd yfir byggingarsvæðið má einnig sjá byggingar Háskólans á Akureyri á Sólborg t.v. og Glerárskóla t.h. Tvær athugasemdir bárust við deiliskipulag við Klettaborg Fyrirhugað að byggja 58 íbúðir á svæðinu                                                         !"" TVÆR athugasemdir bárust vegna deiliskipulags við Kletta- borg en frestur til að gera athugasemdir við skipulagið rann út nýlega. Þær voru báðar frá einstaklingum. Bæjarstjórn sam- þykkti þetta nýja deiliskipulag á fundi í byrjun desember á liðnu ári. ÞORSTEINN Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segist ekki vilja tjá sig um ummæli Þorsteins Vilhelms- sonar, skipstjóra og fyrrverandi eig- anda Samherja, sem fram koma í við- tali við þann síðarnefnda í Ak-tímariti sem út kom í gær. „Við áttum mörg skemmtileg ár saman,“ sagði Þorsteinn Már. „Ég óska Þorsteini góðs gengis og velfarn- aðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur nú eftir að hann hefur yfirgef- ið Samherja.“ Þorsteinn Vilhelmsson segir í um- ræddu viðtali að hann hafi hætt hjá fyrirtækinu vegna erfiðleika í sam- starfi þeirra frænda. Hann segir enn- fremur að það hafi verið rangt af sér að skrifa undir fréttatilkynningu sem gefin hafi verið út af fyrirtækinu þeg- ar hann hætti, því hún hafi verið röng. Þar segir: „Þessi ákvörðun er tekin af persónulegum ástæðum. Ég mun áfram sitja í stjórn Samherja og sinna þeim trúnaðarstörfum sem mér hafa verið falin af fyrirtækinu...“ Nú hefur komið í ljós að þetta gerði hann ekki og hafa vaknað spurning um það hvort tilkynningin hafi brotið í bága við reglur Verðbréfaþings Íslands en Samherji er skráður á þingið. Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþingsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri í fyrsta skipti sem Verð- bréfaþingið þyrfti að taka á svona máli. Hann sagði að málið væri í skoð- un og að yrði leitað skýringa hjá Sam- herja á innihaldi tilkynningarinnar. Þorsteinn Már um ummæli Þorsteins Vilhelmssonar Áttum skemmtileg ár saman FYRSTA „Davíðsljóðakvöldið“ í vet- ur sem jafnframt er fjórða ljóða- kvöld ársins í „Húsi skáldsins“ verð- ur í Davíðshúsi, Bjarkarstíg 6, föstudaginn 2. febrúar, kl. 20.30 en húsið verður opið kl. 20-22. „Eg nefni nafnið þitt“ er yfir- skriftin sem Erlingur Sigurðarson hefur á flutningi sínum á ljóðum Davíðs að þessu sinni en það er í senn heiti og upphaf næstsíðasta kvæðis næstfyrstu bókar skáldsins frá Fagraskógi. Davíðsljóðakvöld AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir opnar sýningu á Café Karólínu í Grófargili á morgun, laugardaginn 3. febrúar kl. 14. Aðalheiður hefur starfað að mynd- list frá því hún brautskráðist frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 1993. Síðustu ár hefur hún einnig rekið lítið sýningarrrými sem nefnist Kompan og er í Grófargili. Þetta er í þriðja sinn sem Aðal- heiður setur upp sýningu á Café Karólínu og jafnframt er þetta fjór- tánda einkasýning hennar. Aðalheiður sýnir á Café Karólínu ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.