Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 57
ekki að lögmál og dómur sé úr gildi
fallinn. Þvert á móti. Orðræða
Biblíunnar þar um sýnir okkur að
lífið hefur tilgang og merkingu og
maðurinn er sífellt kallaður til
ábyrgðar og að lokum til að svara
frammi fyrir augliti Guðs þar sem
hann getur ekki skellt skuldinni á
aðra. Þetta minnir okkur aftur á
það að manneskjan er hluti af sköp-
uninni en getur aldrei verið skap-
arinn sjálfur en hún er samt hugs-
andi vera sem tekur eigin ákvarð-
anir. Kristin trú er eins og vörður á
þessari leið frá sköpun til dóms og
endurlausnar.
Þessa leið fer hver og einn og sá
sem er í fararbroddi sagði: Ég er
vegurinn, sannleikurinn og lífið.
Guð fól manninum ráðsmennsku-
hlutverk og hvað í því felst má lesa
úr orðum postulans Páls: „Og þetta
bið ég um, að elska yðar aukist
ennþá meir og meir, með þekkingu
og allri greind, svo að þér getið
metið rétt þá hluti, sem munur er
á“ (Fil. 1.9).
Þetta er náttúrulega ekki beint
svar við þeim vanda sem hér um
ræðir en þar sem góður vilji er fyrir
hendi og þekking og vísindi eru tek-
in í þjónustu kærleikans og látin
stjórnast af honum hillir í lausnina
þegar í upphafi.Vísindi sem stunduð
eru með gróðavonina eina að mark-
miði eða aukin völd og án allrar
leiðsagnar kærleikans hafa marg-
sinnis reynst vera stórhættuleg.
Höfundur er prófessor í guðfræði og
starfandi rektor Skálholtsskóla.
ingur á sýktum og jafnvel banvæn-
um matvælum til landsins fela í
sér.
Í yfirlýsingu frá stjórn matvæla-
hóps Samtaka verslunarinnar sem
birtist í Morgunblaðinu 25. janúar
sl. er „varað eindregið við kröfum
um innflutningsbann og upphróp-
unum og dylgjum“ um framkvæmd
innflutnings á kjötvöru til landsins
og eftirliti með honum. Í yfirlýs-
ingunni segir síðan: „Þessar upp-
hrópanir eru byggðar á sértækum
hagsmunum og vanþekkingu og öll
þrenging á framkvæmd kann að
ganga gegn lögum og alþjóðlegum
samningum sem Ísland hefur gerst
aðili að og getur skaðað útflutning
afurða frá Íslandi.“ Í yfirlýsing-
unni er fullyrt að fylgt sé í hvívetna
ströngum reglum hjá eftirlitsaðil-
um innfluttra sláturafurða, bæði
yfirdýralækni, ráðgjöfum landbún-
aðarráðuneytisins og tollyfirvöld-
um. Eins og margoft hefur komið
fram í fréttum undanfarinna daga
er þetta rangt. Það er einnig rangt
að tala um „öruggar afurðir“ eins
og gert er í yfirlýsingunni, þar sem
engin örugg rannsóknaraðferð er
enn til sem greinir kúariðusmit áð-
ur en einkenni sjúkdómsins koma í
ljós, sem oft gerist ekki fyrr en
fimm árum eftir smit! Þá er sú full-
yrðing stjórnar matvælahópsins að
hún þekki „engin dæmi um vanhöld
eða eftirgjöf frá ströngum vinnu-
reglum“ af hálfu þeirra embættis-
manna sem koma að leyfisveiting-
um furðuleg í ljósi staðreynda
málsins.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur þurfti að bregðast við
þessum hættulega málflutningi og
leiðrétta helstu rangfærslurnar til
að vernda almannahagsmuni. Þess
vegna flutti undirritaður svohljóð-
andi tillögu að bókun á fundi Um-
hverfis- og heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur 25. janúar sl.:
„Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur lýsir þungum áhyggj-
um yfir því að eftirlit með innflutn-
ingi nautgripaafurða frá löndum
þar sem kúariða hefur greinst virð-
ist ekki vera í lagi en endurtekin
dæmi um það hafa komið í ljós að
undanförnu. Umhverfis- og heil-
brigðisnefnd ítrekar því andstöðu
sína við innflutning á nautakjöti frá
löndum þar sem kúariða finnst og
telur að heilbrigðissjónarmið eigi
ekki að víkja fyrir viðskiptasamn-
ingum og verslunarhagsmunum.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
varar við þeim sjónarmiðum sem
m.a. koma fram í yfirlýsingu
stjórnar matvöruhóps Samtaka
verslunarinnar. Þar má finna full-
yrðingar um „öruggar afurðir“ sem
ekki standast, þar sem enn finnast
ekki rannsóknaraðferðir sem taka
af allan vafa um heilbrigði sláturaf-
urða frá kúariðusýktum löndum.
Jafnframt er gefið í skyn að kröfur
um innflutningsbann séu byggðar á
„sértækum hagsmunum og van-
þekkingu“ og að eftirlit sé í lagi
með innfluttum sláturafurðum. Það
var Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur sem fyrst gagnrýndi
opinberlega innflutning á nauta-
lundum frá Írlandi og vinnubrögð
eftirlitsaðila tengd þeim innflutn-
ingi. Umhverfis- og heilbrigðis-
nefnd stjórnast stjórnast ekki af
„sértækum hagsmunum“ heldur
hefur heilbrigðissjónarmið og al-
mannaheill að leiðarljósi.“
Ofangreind tillaga mín var sam-
þykkt samhljóða af nefndinni sem
fram til þessa hefur borið gæfu til
að setja almannahagsmuni og heil-
brigðissjónarmið ofar sérhagsmun-
um og fánýtu flokkspólitísku karpi.
Vonandi heldur Umhverfis- og
heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
áfram á þeirri braut. Ekki veitir af
á tímum alvarlegrar hættu sem
steðjar að íslensku þjóðfélagi.
Höfundur er læknir og
borgarfulltrúi í Reykjavík.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 57
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette
ELDASKÁLINN
Invita sérverslun
Brautarholti 3, 105 Reykjavík
Sími: 562 1420 - Netfang: eldask@itn.is
Rýmingarsala – Eldhús - Böð
Persónulega eldhúsið
32-48
%
afslá
ttur
af sýn
ingar
innré
ttingu
m