Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Leikmannaskóli
þjóðkirkjunnar
L
minnir á næstu námskeið
Að lifa með fjölmiðlum.
Umsjón: sr. Bernharður Guðmundsson.
Staður: Háskóli Íslands.
Tími: 3 fimmtudagar 8/2, 15/2, 22/2 kl. 18-20
Trúarleg stef í kvikmyndum.
Kennarar: Bjarni Randver Sigurvinsson og Þorkell Á. Óttarsson.
Staður: Háskóli Íslands.
Tími: 4 fimmtudagar 8/2, 15/2, 22/2, 1/3 kl. 20-22
Leyndardómur trúarinnar.
Kennari: sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson.
Staður: Háskóli Íslands.
Tími: 4 mánudagar 12/2, 19/2, 26/2, 5/3 kl. 20-22
Pantaðu bækling!
Nánari upplýsingar eru veittar á:
Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar, Biskupsstofu,
Laugavegi 31, 150 Reykjavík, sími 535 1500,
bréfsími 551 3284. Netfang: frd@kirkjan.is
Laxamýri - Mikill meirihluti þing-
eyskra mjólkurframleiðenda vill
fresta innflutningi fósturvísa og
hefur samþykkt eftirfarandi álykt-
un:
„Bændafundur þingeyskra kúa-
bænda haldinn að Breiðumýri 31.
jan. 2001 samþykkir að beina því
til Landssambands kúabænda og
Bændasamtaka Íslands að fresta
innflutningi á fósturvísum úr
norskum kúm um óákveðinn tíma
vegna kúariðufárs í Evrópu. Þá
hvetja þingeyskir kúabændur ís-
lensku þjóðina til að sýna ýtrustu
varkárni og standa vörð um ís-
lenskan landbúnað og hollustu inn-
lendra landbúnaðarvara.“
Tillaga þessi var samþykkt með
meginþorra atkvæða gegn einu.
Að undanförnu hafa mjög marg-
ir mjólkurframleiðendur í Þingeyj-
arsýslu gengið í Búkollu sem er
nýtt félag stofnað til verndar ís-
lensku kúnni og fjöldi fólks hefur
skráð sig andvígan erfðablöndun.
Andstaða við
innflutning
á fósturvísum
Borgarnesi - Íþróttamaður Borg-
arfjarðar var tilnefndur í lok árlegr-
ar Íþróttahátíðar UMSB laugardag-
inn 27. janúar sl. Liðlega 270
keppendur innan UMSB, allir undir
16 ára aldri, spreyttu sig í sundi og
frjálsum á íþróttahátíðinni. Af fjölda
þátttakenda er greinilegt að Borg-
arnes er ekki „Latibær“ en sumir
hafa reynt að halda því fram vegna
þess að Magnús Scheving, höfundur
bókarinnar um Latabæ, er uppalinn
í Borgarnesi.
Íþróttamaður Borgfjarðar er kos-
inn af stjórn UMSB, stjórnum aðild-
arfélaganna auk fulltrúa frá íþrótta-
nefndum sambandsins. Að þessu
sinni bárust 17 kjörseðlar. Íþrótta-
maður Borgarfjarðar fyrir árið 2000
var kosinn Einar Trausti Sveinsson
með 63 stig. Einar Trausti náði ól-
ympíulágmarki í kringlukasti og var
valinn af Íþróttasambandi Fatlaðra
til keppni á Ólympíuleikum fatlaðra
í Sydney. Hann hafnaði í 5. sæti í
spjótkasti og 10. sæti í kringlukasti
sem er frábær árangur. Hann á
Norðurlandamet í spjótkasti í sínum
flokki. Hann hefur stundað æfingar
af miklum dugnaði og eljusemi.
Aðrir sem skipuðu tíu efstu sætin
voru; Kristín Þórhallsdóttir A-
landsliðsmaður í frjálsum íþróttum
með 58 stig, Hallbera Eiríksdóttir
fyrir frjálsar íþróttir með 39 stig,
Hlynur Bæringsson fyrir körfubolta
með 30 stig, Gauti Jóhannsson fyrir
frjálsar íþróttir með 10 stig, Róbert
Logi Jóhannsson fyrir hestaíþróttir
með 10 stig, Emil Sigurðsson fyrir
knattspyrnu með 10 stig, Elísabet
Fjeldsted fyrir hestaíþróttir með 6
stig, Óli Þór Birgisson fyrir knatt-
spyrnu með 5 stig, Harpa Dröfn
Skúladóttir fyrir sund með 5 stig.
Styrktaraðili mótsins var Bún-
aðarbanki Íslands í Borgarnesi og sá
Skúli Ingvarsson um að veita verð-
laun í kjöri Íþróttamanns Borg-
arfjarðar fyrir hönd bankans.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Einar Trausti Sveinsson, Íþróttamaður Borgarfjarðar árið 2000, situr í stól fyrir miðju. Hallbera Eiríksdóttir
krýpur vinstra megin við Einar. Erla Gunnlaugsdóttir, móðir Kristínar Þórhallsdóttur, krýpur hægra megin
við Einar. Standandi frá vinstri: Birgir Guðmundsson, faðir Óla Þórs Birgissonar, Harpa Dröfn Skúladóttir,
Emil Sigurðsson, Elísabet Fjelsted, Róbert Logi Jóhannsson, Jóhannes Guðjónsson, faðir Gauta Jóhannessonar,
og loks Hlynur Bæringsson.
Borgarnes er
ekki „Latibær“
Íþróttamaður Borgarfjarðar kjörinn
Egilsstöðum - Í gær var undirritað-
ur nýr samstarfssamningur sveitar-
félagsins Austur-Héraðs við
Íþróttafélagið Hött. Hann nær til
fimm ára tímabils og er ramma-
samningur sem kveður á um gagn-
kvæm réttindi og skyldur samnings-
aðila.
Samningurinn kveður m.a. á um
framtíðarfjárframlög til félagsins,
störf þess að æskulýðs- og forvarn-
arstarfi meðal barna og unglinga og
greiðari aðgang að íþróttamann-
virkjum í sveitarfélaginu, en unnið
hefur verið að tugmilljóna króna
endurbótum og uppbyggingu á því
sviði vegna Landsmóts UMFÍ á Eg-
ilsstöðum á næsta ári. Þá þykir
mjög til bóta í samskiptum félagsins
og bæjarins að einn maður, Hreinn
Halldórsson, stjórnar öllum íþrótta-
mannvirkjum og er tengiliður á milli
aðila. Höttur stendur með þessum
samningi betur að vígi við langtíma-
skipulag starfsemi sinnar, en
íþróttafélagið hefur átt við fjárhags-
erfiðleika að stríða um nokkurt
skeið.
Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum
fyrir skemmstu að skuld félagsins
við bæjarsjóð, sem nú nemur tæpri
einni milljón króna, yrði flutt á sér-
stakan viðskiptareikning um áramót
og að hinn almenni viðskiptareikn-
ingur Hattar yrði með því móti núll-
stilltur. Skuld félagsins verður ekki
vaxtareiknuð, en afborganir vænt-
anlega með þeim hætti að haldið
verður eftir fjármagni af úthlutuðu
árlegu framlagi bæjarsjóðs til
félagsins. Fjárframlag Austur-Hér-
aðs til Hattar nemur á þessu ári um
1,5 milljónum í beinhörðum pening-
um og að auki fær félagið úthlutað
tímakvóta í íþróttamannvirkjum
sveitarfélagins og nemur sá styrkur
lauslega uppreiknaður í það minnsta
þremur og hálfri milljón króna.
Höttur rekur nú sjö deildir, og
voru tvær þeirra, blak- og hand-
knattleiksdeild, stofnaðar í haust.
Hafsteinn Jónasson er formaður
Hattar, en Sigurjón Bjarnason,
gjaldkeri félagsins, og Björn Hafþór
Guðmundsson, bæjarstjóri Austur-
Héraðs, undirrituðu samkomulagið.
Morgunblaðið/Helga Guðmundsdóttir
Björn Hafþór Guðmundsson, bæjarstjóri A-Héraðs, og Sigurjón Bjarna-
son, gjaldkeri Íþróttafélagsins Hattar, undirrita samstarfssamning.
Samningur um að
bæta fjárhag Hattar
Egilsstöðum - Sveitarstjórnarmenn
frá Austur-Héraði, Vopnafjarðar-
hreppi, Norður-Héraði, Fljótsdals-
hreppi, Fellahreppi, Borgarfjarðar-
hreppi og Seyðisfjarðarkaupstað
ræða nú hugsanlega mótun nýs
sveitarfélags á norðursvæði Austur-
lands.
Vinnuhópur um verkefnið hefur
sett sér það lokamarkmið að koma
muni til sameiningar allra sveitar-
félaga á norðursvæðinu svokallaða,
frá Skeggjastaðahreppi til Seyðis-
fjarðar. Undirmarkmið hópsins er að
vinna að mjög nánu samstarfi sem
geti leitt til sameiningar síðar. Horft
er til grunnþátta svo sem samvinnu
sveitarfélaganna og hvernig samein-
ing samræmist sveitarstjórnarlög-
um, uppbyggingar sterkra byggða-
kjarna, stækkunar atvinnusvæðis,
betri nýtingar framhaldsskóla og op-
inberra stofnana og bættra sam-
gangna. Sérstaklega er til skoðunar
hvaða áhrif hugsanleg jarðgöng um
Hellisheiði eystri hafa á byggðina.
Ráðgjafi frá Þróunarstofu Austur-
lands er starfsmaður hópsins.
Félagsmálarráðuneytið hefur sýnt
málinu áhuga og jöfnunarsjóður
sveitarfélaga styrkir verkefnið um 1
milljón króna.
Byrjunar-
viðræður
hafnar um
sameiningu
Eitt sveitarfélag
frá Vopnafirði
til Seyðisfjarðar
Húsavík - Það kom vel í
ljós á síðasta ári hvers
virði það er að eiga góða
björgunarsveit. Félagar í
Björgunarsveitinni
Garðari sönnuðu það
margoft við erfið skilyrði.
Það að hafa á góðri sveit
að skipa kostar miklar æf-
ingar í meðferð og notkun
hinna ýmsu tækja. Þess
utan þarf sjálfur björg-
unarsveitarmaðurinn að
vera í góðu líkamlegu
formi og tilbúinn að tak-
ast á við verkefnin. Frá
áramótum hefur um 20
manna hópur úr Garðari
æft markvisst líkamsrækt,
gerður var þriggja mán-
aða samningur við líkams-
rætarstöðina Skokka þar
sem Ingólfur Freysson,
framkvæmdarstjóri og
íþróttakennari, sér um að
halda mönnum við efnið.
Ingólfur segir að þetta
sé ungt og hraust fólk en
líkamsformið geti verið
misjafnt, unnið sé að því
að auka þol, þrek og styrk
þeirra. Próf séu tekin
reglulega á mönnum til að
fylgjast með árangri
þeirra. Jón Friðrik Ein-
arsson, formaður Garð-
ars, segir að markmiðið sé
að gera góða sveit betri,
björgunarfólkið verði
hæfara að mæta þeim erf-
iðleikum sem upp koma
þegar á reynir. Þar getur
líkamlegt form haft sitt að
segja, t.d. þurfi kafarar að
viðhalda ákveðinni þrek-
tölu til að halda réttindum
sínum.
Árið 2000 var við-
burðaríkt hjá Björg-
unarsveitinni Garðari.
Sveitin var verðlaunuð af
Sjóvá-Almennum fyrir vel
unnin störf við Lindaá
eins og flestum er kunn-
ugt um. Þórir Örn Gunn-
arsson var síðan kosinn
Norðlendingur ársins
2000 af hlustendum Svæð-
isútvarps Norðlendinga
fyrir þátt sinn í björg-
uninni. Þórir Örn stýrði
gúmíbátnum sem notaður
var við að bjarga fólkinu.
Björgunarsveitarmenn í líkamsrækt
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Félagar úr Björgunarsveitinni Garðari í ræktinni.
Auka þol og
þrek með
æfingum
í Skokka
SEX umsóknir bárust um starf
framkvæmdastjóra Heilbrigðis-
stofnunarinnar Ísafjarðarbæ. Þetta
eru Gísli Halldór Halldórsson, við-
skiptafræðingur, Ísafirði, Ólafur
Als, rekstrarfræðingur, Reykjavík,
Sigurður J. Hafberg, útgerðar-
tæknir, Flateyri, Tómas Ibsen, for-
stöðumaður, Ísafirði, Vignir Þór
Jónsson, B.Sc., verkefnisstjóri,
Súðavík, og Þröstur Óskarsson,
BSc., fjármálastjóri, Akureyri.
Samkvæmt lögum um heilbrigðis-
þjónustu mun þriggja manna hæfn-
isnefnd fara yfir og meta umsókn-
irnar. Þegar fyrir liggur hverjir
umsækjenda eru hæfir skilar
nefndin heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra niðurstöðunni, sem
skipar síðan í stöðuna til fimm ára
að höfðu samráði við stjórn stofn-
unarinnar.
Sex sækja um framkvæmda-
stjórastarf á Ísafirði