Morgunblaðið - 02.02.2001, Blaðsíða 30
LISTIR
30 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Mikið af fatnaði í
stórum númerum
Jakkar frá kr. 4.500
Stuttir jakkar frá kr. 5.900
Síðir jakkar frá kr. 6.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 1.690
Bolir frá kr. 990
Kjólar stuttir og síðir
Blússur
Alltaf eitthvað nýtt
ÍSLENSKU bókmenntaverðlaunin
voru afhent Guðmundi Páli Ólafs-
syni og Gyrði Elíassyni við hátíða-
lega athöfn á Bessastöðum í gær.
Sigurður Svavarsson, formaður
Félags íslenskra bókaútgefenda,
setti athöfnina. Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, gerði
grein fyrir niðurstöðu dómnefndar
og afhenti verðlaunin. Í ávarpi sem
hann flutti sagði forsetinn meðal
annars að síðastliðið ár hefði verið
óvenju gjöfult á sviði bókmennta og
bæri að þakka öllum þeim fjölmörgu
höfundum sem hefðu lagt sitt af
mörkum, sem og lesendum sem ætíð
sýndu bókmenntunum áhuga þrátt
fyrir að nýir miðlar kæmu fram á
sjónarsviðið.
Verðlaunin í flokki fræðirita hlaut
Guðmundur Páll Ólafsson fyrir ritið
Hálendið í náttúru Íslands, sem gef-
in var út af Máli og menningu. Er
Guðmundur tók til máls að lokinni
afhendingu verðlaunanna líkti hann
vinnu sinni við vinnu pípulagninga-
manns; „ég hef lagt mínar leiðslur
og reynt að tengja ólíka þætti sam-
an, náttúrufræði, sögur, ljóð og
myndir.“ Guðmundur sagði enn-
fremur að hann hefði fyrir löngu
gert sér grein fyrir því að starf hans
væri eins og að „kenna fólki að lesa,
lesa landslag og lífríki“. Guðmundur
lauk þakkarávarpi sínu með því að
syngja og blístra vísu fyrir við-
stadda, fólki til ómældrar ánægju.
Gyrðir Elíasson hlaut verðlaunin í
flokki fagurbókmennta fyrir smá-
sagnasafnið Gula húsið sem gefið
var úr af Vöku Helgafelli og Máli og
menningu. Gyrðir hlaut einnig bók-
menntaverðlaun Halldórs Laxness
fyrir sömu bók í nóvember síðast-
liðnum. Er hann hafði tekið við verð-
launum sínum sagðist Gyrðir ekki
ætla að hafa mörg orð um þýðingu
slíkra verðlauna „enda held ég að
Megas sé búinn að afgreiða það í eitt
skipti fyrir öll“, sagði hann og vísaði
þar til ummæla Megasar þegar hann
var heiðraður á degi íslenskrar
tungu. „Hitt get ég þó sagt að það
voru lagðar fram góðar bækur við
hliðina á minni og þær hefðu alveg
eins getað unnið þessi verðlaun.
Annars er ég mikill talsmaður þess
að bókaútgefendur taki það upp eftir
íþróttahreyfingunni að veita gull,
silfur og brons,“ sagði Gyrðir enn-
fremur og tók jafnframt fram að
hann hefði verið mjög sáttur við
bronsið.
Þriggja manna dómnefnd sem
skipuð var þeim Haraldi Ólafssyni,
Svanhildi Óskarsdóttur og Vilhjálmi
Lúðvíkssyni valdi verðlaunahafana
að þessu sinni. Haraldur var formað-
ur nefndarinnar en þau Svanhildur
og Vilhjálmur völdu verkin sem út-
nefnd voru í desember. Auk verð-
launabókarinnar voru eftirtaldar
bækur útnefndar í flokki fagurbók-
mennta: Draumar á jörðu eftir Einar
Má Guðmundsson, Fyrirlestur um
hamingjuna eftir Guðrúnu Evu Mín-
ervudóttur, Myndin af heiminum eft-
ir Pétur Gunnarsson og Ósýnilega
konan eftir Sigurð Guðmundsson. Í
flokki fræðirita og bóka almenns efn-
is voru tilnefndar auk verðlaunabók-
arinnar; Saga Akureyrar eftir Jón
Hjaltason, Kristni á Íslandi í rit-
stjórn Hjalta Hugasonar, Steinn
Steinarr - Leit að ævi skálds eftir
Gylfa Gröndal og Undir bárujárns-
boga eftir Eggert Þór Bernharðsson.
Er verðlaunahafarnir höfðu lokið
máli sínu léku þeir Guðni Franzson
og Einar Kristján Einarsson tónlist
á klarínett og gítar. Frumfluttu þeir
nýtt verk eftir Guðna við ljóð Jón-
asar Hallgrímssonar, Ég bið að
heilsa.
Verðlaunin í ár nema 750 þúsund
krónum og fylgdu þeim verðlauna-
gripir hannaðir af Jóni Snorra Sig-
urðssyni.
Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2000 afhent
Þakka ber öllum höf-
undum og lesendum
Morgunblaðið/Ásdís
Guðmundur Páll Ólafsson og Gyrðir Elíasson hlutu hin íslensku bókmennta-
verðlaun. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti þeim verðlaun-
in við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær.
FRUMSÝNINGU á Fjand-
manni fólksins eftir Henrik
Ibsen í Borgarleikhúsinu,
sem fyrirhuguð var föstu-
daginn 9. febrúar, hefur
verið frestað um óákveðinn
tíma. Aðalleikari sýningar-
innar, Ingvar Sigurðsson,
fékk tilboð um að leika í
kvikmyndinni K-19, sem
Kathryn Bigelow leikstýrir,
í Kanada. Að sögn Guðjóns Peder-
sens leikhússtjóra í Borgarleikhús-
inu eru allar líkur á að frumsýning
frestist til haustsins þar sem ekki
eru uppi áform um að æfa annan
leikara í hlutverkið í stað Ingvars.
„Þetta er hlutverk af þeirri stærð að
við höfum ekki lausan leik-
ara á svipuðum aldri og Ing-
var sem getur tekið við hlut-
verkinu. Þetta setur okkur
auðvitað í ákveðinn vanda en
eftir vandlega umhugsun
þótti okkur ekki fært að
standa á móti þessu tækifæri
fyrir Ingvar. Við hefðum
kosið að hafa lengri aðdrag-
anda að þessu þar sem þetta
hefur legið í loftinu um nokkurt
skeið en Ingvar var boðaður til Kan-
ada með nánast engum fyrirvara.“
Guðjón sagði að reynt yrði að flýta
næstu frumsýningu eftir föngum
sem er gamanleikritið Blúndur og
blásýra.
Leikritið Fjandmaður fólksins
Frumsýningu líklega
frestað til haustsins
Ingvar E.
Sigurðsson
HEKLA Dögg Jónsdóttir fjallar um
verk sín og viðfangsefni á fyrirlestri í
Listaháskóla Íslands á Laugarnes-
vegi 91 mánudaginn 5. febrúar kl.
12.30 í stofu 24.
Hekla Dögg Jónsdóttir er mynd-
listarmaður og kennari við LHÍ. Hún
lauk mastersnámi frá California
Institute of the Arts árið 1999 og ný-
verið hlaut hún styrk úr Listasjóði
Pennans. Fyrirlesturinn ber nafnið
„Raunveruleiki?“
Skosku hönnuðirnir Evelynn
Smith og Meriel Scott fjalla um hönn-
un á fyrirlestri miðvikudaginn 7.
febrúar kl. 12.30 í sal 113 í Skipholti 1.
Þær reka fyrirtækið Precious
McBane í London þar sem þær eru
búsettar.
Þórey Sigþórsdóttir leikkona kenn-
ir á námskeiði um raddbeitingu.
Kennt verður í leiklistardeild LHÍ,
Sölvhólsgötu 13, og hefst námskeiðið
5. febrúar.
Spuni – list augnabliksins er yfir-
skrift námskeiðs sem hefst 19. febrú-
ar. Kennari er Harpa Árnadóttir.
Markmið námskeiðsins er að þátt-
takendur fái beina reynslu af því hvað
spuni er og styrki með því sköpunar-
gleði sína og lífsleikni. Kennt verður í
húsnæði leiklistardeildar LHÍ.
Námskeið og fyrir-
lestrar í LHÍ
FRUMHERJAR í grafík heitir sýn-
ing sem félagið Íslensk grafík opnar
á morgun, laugardag, kl. 16, í sal
sínum að Tryggvagötu 17 (hafnar-
megin).
Á sýningunni verður steinþrykk
frá fyrstu áratugum 20. aldar þegar
fátítt var að Íslendingar ynnu graf-
íkmyndir. Þarna er meðal annars
verk eftir Kjarval frá því 1919 en þá
vann hann nokkrar steinþrykks-
myndir þar sem myndefnið er
landslag með kynlegum ævin-
týrablæ eins og fylgdi honum alla
ævi.Einnig eru þarna nokkur verk
frá Þingvöllum eftir Jón Þorleifsson,
frá 1929-30, sem hann vann á síðasta
námsári sínu í Kaupmannahöfn.
Leitað til sýningargesta
Auk þess eru fleiri myndir af
svipuðu myndefni frá Þingvöllum
eftir erlendan listamann sem ekki er
auðlesið hver er. Þær eru unnar á
sama tíma og myndir Jóns og geta
má sér þess til að hann hafi skissað
þær á Þingvöllum með Jóni á þús-
und ára afmæli Alþingis. Er m.a.
leitað til sýningargesta við að reyna
að hafa uppi á hver höfundurinn
muni vera.
Ennfremur eru þarna aðrar gaml-
ar grafíkmyndir sem álitnar eru eft-
ir íslenska höfunda en áletranir og
staðfestingar skortir.
Steinþrykkin á sýningunni eru í
eigu Gunnars Arnar myndlistar-
manns á Kambi í Rangárvallasýslu.
Hann eignaðist þau í gegnum Gall-
eri Stalke á Vesturbrúargötu í
Kaupmannahöfn, þar sem hann er
einn af föstum sýnendum.
Þau fundust fyrir nokkrum miss-
erum þegar hreinsað var til í
geymslum fornfrægs og aflagðs
steinþrykksverkstæðis í borginni,
Chr. J. Cato. Flest eru þetta for-
þrykk eða prufuþrykk en verkstæði
Chr. J. Cato var stórt verkstæði
með nokkrum vélknúnum þrykk-
pressum og allfjölmennu starfsliði.
Sýningin stendur til 25. febrúar
og er opin laugardaga og sunnudaga
kl. 14 - 18.
Frumherj-
ar í grafík
Gunnar Örn myndlistarmaður
verður með grafíkmyndir sínar í
sal félagsins Íslensk grafík.
bert Museum í London,“
segir Lilja Árnadóttir,
deildarstjóri munadeild-
ar Þjóðminjasafnsins.
„Þá brúðu Sigríðar eign-
aðist Þjóðminjasafnið
fyrir nokkrum árum og
var hún höfð til sýnis
með íslenskum kvenbún-
ingum þar til aðalsýn-
ingu safnsins í Þjóð-
minjasafninu við
Suðurgötu var lokað árið 1998.
Það er mikill fengur fyrir Þjóð-
minjasafn Íslands að veita viðtöku
þessari gjöf Sigríðar Kjaran.
Brúðurnar munu koma að góðum
notum fyrir safnið við að sinna
lagaskyldu sinni að uppfræða
landsmenn um líf fólks á fyrri tíð,“
segir Lilja.
Sýningin stendur til 25. febrúar
og er opin á afgreiðslutíma Þjóð-
arbókhlöðu, frá kl. 8.15–22 alla
daga, nema föstudaga, en þá er op-
ið til kl. 19 og um helgar til kl. 17.
LISTAKONAN Sigríð-
ur Kjaran gaf nýverið
Þjóðminjasafni Íslands
tíu brúður sem hún hef-
ur gert á umliðnum ár-
um, og verður opnuð
sýning á þeim í Þjóð-
arbókhlöðu á laugardag
kl. 14.
Sigríður Kjaran er
fædd í Reykjavík 1919
og stundaði nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík og
listaskóla í Noregi og á Spáni. Sig-
ríður hefur um árabil sérhæft sig í
að skapa þjóðlífsmyndir af sér-
stakri gerð, sem sýna fólk við ýmis
störf. Brúður hennar hafa verið
sýndar víða um land og um hríð
var sýning helguð þeim í Hvera-
gerði.
„Brúður þær, sem hér eru sýnd-
ar, eru flestar unnar á síðasta ári,
nema ein sem sýnir eftirlíkingu af
íslenskum brúðarbúningi sem
varðveittur er í Victoria and Al-
Brúður Sigríðar
Kjaran sýndar
í Þjóðarbókhlöðu