Morgunblaðið - 02.02.2001, Side 8

Morgunblaðið - 02.02.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Íbúaþing í Kópavogi Opið samráð við íbúa Umhverfisráð Kópa-vogs stendur fyriríbúaþingi á morg- un og hefst það klukkan 10 árdegis í Smáraskóla. Sigurborg Kr. Hannes- dóttir ráðgjafi hefur haft umsjón með undirbúningi þessa íbúaþings, hafa ver- ið haldin mörg slík í Kópa- vogi? „Nei, en það fór fram sambærileg vinna á Hornafirði sl. vor.“ – Hvers konar fyrir- bæri er íbúaþing? „Íbúaþingið er haldið í tengslum við vinnu Kópa- vogsbæjar að Staðardag- skrá 21, sem er áætlun um sjálfbæra þróun á 21. öld- inni. Kópavogur er í hópi um 40 sveitarfélaga hér á landi sem vinna að Staðardag- skrá 21.“ – Hvað fer fram á íbúaþinginu í Smáraskóla? „Þarna er fólki boðið að koma og setja fram sjónarmið sín. Unn- ið er í sex vinnuhópum sem hver um sig starfar í um einn og hálfan tíma. Fólk getur komið og tekið þátt í starfi eins vinnuhóps eftir áhuga og aðstæðum eða verið með í starfinu allan daginn til klukkan sex er íbúaþingi lýkur.“ – Eftir hvaða aðferðum er unn- ið? „Við notum aðferð sem hefur m.a. verið þróuð í tengslum við skipulagsvinnu í Bretlandi. Í hverjum vinnuhópi förum við í gegnum vandamál, drauma og lausnir og í stað þess að halda ræður skrifa þátttakendur hug- myndir sínar á gula miða. Unnið er úr þessum hugmyndum á þremur dögum og niðurstöðurn- ar kynntar í máli og myndum strax á þriðjudagskvöldi hins 6. febrúar nk. Þetta er óvenjuleg aðferð og hröð en hún skilar mjög miklu á stuttum tíma og það er umfram allt skemmtilegt að taka þátt í svona starfi. Þess má geta að barnagæsla verður á svæðinu og boðið er upp á veitingar.“ – Hvað búist þið við mörgum íbúum Kópavogs á íbúaþingið? „Það er ómögulegt að vita hvað margir koma en ég vona að við fáum sem mesta breidd í sjón- armiðum, þannig að félagasam- tök og hagsmunaaðilar gæti þess að senda fulltrúa sína á vett- vang.“ – Áttu von á að hinn almenni íbúi komi og setji fram hugmynd- ir? „Já, það er gjarnan það fólk sem er virkir þátttakendur í sam- félagi sínu sem tekur þátt í svona vinnu og ég tel að þeir sem vilja sjá einhverja breytingu á því að frumkvæði og ákvarðanir komi að öllu leyti að ofan eigi hiklaust að mæta. Þess má geta að unnið hefur verið með börnum í tveim- ur skólum og þarna verður vinnu- hópur unglinga, þannig að leitast er við að fá fram sjónarmið þeirra líka.“ – Hvernig gekk þetta starf á Hornafirði? „Það kallaðist vinnudagur þar og heppnaðist mjög vel. Ekki síst vegna þess að þegar fólk sá kynn- inguna fannst því það virkilega eiga sjálft sitthvað í niðurstöðunum.“ – Hefur svona vinnufyrirkomu- lag verið notað erlendis í stærri borgum? „Þar sem ég þekki best til í Bretlandi hefur það verið gert, en þá aðallega í tengslum við skipu- lagsmál. Ég er einmitt í samstarfi við breskt fyrirtæki, John Thompson & Partners, en það sérhæfir sig í þessari aðferð. Það er vaxandi krafa yfirvalda að hafa svona náið samráð við almenning um skipulagsmál þar í landi.“ – Er þetta sem sagt nýbreytni hér? „Já og það sem meira er – ég er sannfærð um að við munum sjá sambærilegt samráð, t.d. í formi íbúaþinga, víða á næstu árum. Ég get sagt frá því að í undirbúningi er svipað íbúaþing í Vestur- Skaftafellssýslu í mars, um fram- tíðarsýn íbúanna þar.“ – Geta menn undirbúið sig heima fyrir svona vinnu? „Það er ekki nauðsynlegt því þarna viljum við fá fram þau sjónarmið sem annars eru gjarn- an rædd heima við eldhúsborðið. Hins vegar geta þeir sem vilja nálgast stöðumat fyrir Kópavog vegna Staðardagskrár 21 á heimasíðu bæjarins, www.kopa- vogur.is.“ – Eru menn að koma með bylt- ingarkenndar hugmyndir á svona fundum? „Fyrst fáum við venjulega fram það sem mest brennur á fólki, dæmi um það eru t.d. sorp- mál, umferð, mengun og skipu- lagsmál. En þegar fólk virkilega kemst á flug geta komið margar skemmtilegar hugmyndir og oft ekki síst frá börnunum. Á Horna- firði voru ýmsar hugmyndir sem við í úrvinnslunni flokkuðum sem „villta drauma“. Þar voru menn t.d. farnir að láta sig dreyma um rafmagnslest milli Reykjavíkur og Hafnar og bíllaust samfélag.“ – Hvernig er hugmyndum frá svona vinnu fylgt eftir? „Þetta er upphafið að áframhaldandi samráði við íbúa og þegar fólk fer út af kynningunni í Smáraskóla á þriðju- dagskvöldið geta þeir sem vilja vinna áfram að hug- myndunum skráð sig. Strax þá er tilkynnt um fyrsta fund með sam- ráðshópi. Þessi efniviður, tillögur íbúanna, fer síðan hefðbundna leið og endanleg samþykkt mark- miða er í höndum bæjar- eða sveitarstjórnar á hverjum stað. Sigurborg Kr. Hannesdóttir  Sigurborg Kr. Hannesdóttir fæddist í Stykkishólmi 15. des- ember 1959. Hún lauk stúdents- prófi úr Samvinnuskólanum 1979 og BA-prófi í félagsfræði frá HÍ 1987. Mastersgráðu lauk hún í ferðaþjónustu frá Univers- ity of Surrey 1989. Hún hefur starfað við hótelstjórn og kennslu, þ. á m. jógakennslu, og stýrði umhverfisverkefni á Egils- stöðum 1996 til 1998. Nú er hún sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Viljum fá fram sem mesta breidd í sjón- armiðum Mig langar að verða stór aftur. FLUGFÉLAG Íslands lagði í gær niður notkun farmiða í flugi sínu inn- anlands, til Færeyja og Grænlands og verður allt flug félagsins fram- vegis án farmiða. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra bókaði fyrsta formlega miðalausa farið til Ísafjarð- ar frá skrifstofu sinni í ráðuneytinu í gærmorgun að viðstöddum fulltrú- um flugfélagsins. Jón Karl Ólafsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að það eitt að losna við prentun og útgáfu far- miða sparaði félaginu kringum 20 milljónir króna. Prentun miðanna á ári hafi kostað kringum 10 milljónir króna og miðarnir sjálfir annað eins. Hann segir félagið vera að draga sig út úr hefðbundnu dreifikerfi og stefna að meiri notkun Netsins og að gera allar farbókanir og afgreiðslu sem einfaldasta fyrir farþega. Farbókun getur nú farið fram annaðhvort á Netinu á slóðinni flug- felag.is eða eins og áður með símtali við Flugfélagið. Gefa menn þá upp nafn og kortanúmer, flugkort eða venjulegt greiðslukort. Sé fullbókað í flug sem valið hefur verið eru gefnir upp næstu möguleikar og einnig mismunandi verð. Einnig eru þarna birt tilboð sem í gildi eru hverju sinni. Um þessar mundir er í gildi til- boð um far aðra leið á 2001 krónu. Við brottför gefa farþegar síðan upp nafn sitt og eru innritaðir í flugið án þess að þurfa að fara fyrst í aðra af- greiðslu til að ganga frá farmiða- kaupum. Íslenska vefstofan annaðist gerð bókunarbúnaðarins á Netinu. Kostn- aður við búnaðinn á Netinu er kring- um fimm milljónir króna og er þá kostnaður við allt bókunarkerfið kominn í um 25 milljónir. Jón Karl segir að rúmlega 20% farþega Flugfélagsins ferðist 11 sinnum eða oftar á ári hverju og tel- ur að þeim muni finnast þessi nýja aðferð algjör bylting. Þeir sem ekki vilja nýta Netið til farbókunar geta haft samband við félagið og eins þarf að hringja ef breyta á bókun sem gerð hefur verið gegnum Netið. Bókað í flug án farseðla Sparar um 20 milljónir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.