Morgunblaðið - 02.02.2001, Side 46

Morgunblaðið - 02.02.2001, Side 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Steinþór Júlíus-son fæddist á Siglufirði 6. apríl 1938. Hann lést á heimili sínu, Græna- garði 12 í Keflavík, 24. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Ingi- björg Guðmunds- dóttir, f. 25. júní 1912, d. 6. apríl 1999, og Júlíus Einarsson, f. 15. maí 1901, d. 1941. Systkini Stein- þórs eru: Sigríður Júlíusdóttir, Sólborg Júlíusdóttir, Kristján Júlíusson, Bergmann Júlíusson, Jóhanna Júlí- usdóttir og Erlingur Björnsson. Steinþór kvæntist 7. apríl 1966 Sigrúnu Hauksdóttir, f. 26. apríl 1946. Foreldrar hennar voru Hauk- ur Sigurðsson, f. 28. júlí 1919, d. 23. maí 1980, og Helga Péturs Guð- mundsdóttir, f. 22. júlí 1923, d. 17. maí 1984. Börn Steinþórs og Sig- rúnar eru: 1) Helga Björg, f. 1966, gift Ævari Ingólfssyni og eiga þau fjögur börn: Júlíus, f. 9.7. 1987, Sig- rún Inga, f. 11.11. 1988, Ingólfur Þór, f. 12.7. 1991, Róbert Helgi, f. 22.4. 1995. 2) Júlíus Margeir, f. 1967, sambýliskona hans er Fjóla Ósk Stefánsdóttir og eiga þau þrjú börn: Steinþór, f. 14.3. 1986 (móðir hans er Linda María Gunnarsdótt- ir), Rúna Björg, f. 30.9. 1996, Hauk- ur Ingi, f. 28.9. 1998. 3) Linda Björk, f. 1968, gift Gösta Nowak og eiga þau tvö börn: Nils, f. 31.10. 1995, Nína Björk, f. 24.2. 2000. 4) Rakel Sigurbjörg, f. 1975, eiginmaður hennar er Ketill Gunn- arsson og eiga þau eitt barn: Katla Björk, 8.11. 2000. Steinþór missti föð- ur sinn þegar hann var þriggja ára að aldri og ólst upp hjá móður sinni sem ferð- aðist víða vegna starfa sinna sem ráðskona. Steinþór sótti barna- skóla m.a. á Siglufirði, Akureyri, í Reykjavík og Keflavík. Hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands vorið 1958 með láði. Stein- þór vann víða á unglingsárunum en eftir nám hóf hann vinnu hjá Magn- úsi Z. Sigurðssyni við fiskútflutn- ing. Steinþór varð bæjarritari hjá Keflavíkurbæ 1967–80 og síðar bæj- arstjóri frá 1980– 86. Eftir að Stein- þór hætti sem bæjarstjóri hóf hann undirbúning ásamt fjölskyldu sinni að stofnun og rekstri Flughótels í Keflavík. Steinþór hætti síðan rekstri Flughótels haustið 1999. Steinþór tók virkan þátt í félags- málum, sat í stjórnum fyrirtækja og stofnana og var m.a. félagi í Odd- fellowstúkunni Nirði og Lions- klúbbi Keflavíkur. Útför Steinþórs fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Það kom mér í sjálfu sér ekki á óvart að frétta andlát vinar míns Steinþórs Júlíussonar. Hann var bú- inn að heyja langa og hetjulega bar- áttu við sendiboða dauðans, illvígan sjúkdóm, sem í reynd hlaut að fara með sigur af hólmi. Hetjuleg barátta og æðruleysi gat þar engu um breytt, jafnvel þótt Steinþór yrði sigraður langt um aldur fram. Ég kynntist Steinþóri best á þeim árum, þegar hann vann á skrifstofum Keflavíkurbæjar. Hann byrjaði þar störf ungur og þar var starfsvett- vangur hans lungann úr starfsævinni. Fyrst gegndi hann þar starfi bæjar- ritara um árabil, en síðustu árin sín þar var hann bæjarstjóri. Á þessum árum var bærinn í miklum vexti og verkefnin því óþrjótandi, og erill mik- ill eins og ævinlega vill verða í þessum málum. Uppbygging var á öllum svið- um. Gatnakerfið, fegrun bæjarins, skóla- og íþróttamannvirki. Samstarf sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem glímdu við stærstu verkefni sín; hita- veitu, sorpeyðingarstöð, fjölbrauta- skóla, dvalarheimili aldraðra. Allt voru þetta verkefni, sem Steinþór kom að í ríkum mæli, og er hér auðvit- að aðeins stiklar á fáeinum stórverk- efnum. Í margþættum störfum sínum fyrir bæjarfélagið og samfélag íbúa Suð- urnesja var Steinþór einstaklega far- sæll. Hann var ljúfur í framgöngu við alla sem leita þurftu fundar hans vega starfa hans og fór þar aldrei í mann- greinarálit. Og hann var samvinnufús um framgang og lausn þeirra mála, sem einatt hlaðast á borð þeirra sem vinna í framvarðasveit þeirra sem að bæjar- og sveitarstjórnarmálum starfa. Ég naut þeirrar ánægju að vinna með Steinþóri á þessum vettvangi um langt árabil og áttum við ætíð mjög gott samstarf. Hann var afar félags- lega sinnaður, átti auðvelt með að um- gangast fólk og beina málum í farsæl- an farveg og samhæfa skoðanir manna. Og aldrei varð ég var annars en hann ætti gott og snurðulaust sam- starf við minnihlutann í bæjarstjórn. Enda tók hann ekki mikinn eða virk- an þátt í pólitísku félagsstarfi á þess- um árum, enda þótt hann hefði mjög eindregnar skoðanir í þeim málum. Og hann taldi að starf sitt sem bæj- arstjóri ætti að vera hafið yfir pólitík. En það var ekki einasta á sviði félagsmálastarfs á hinum pólitíska vettvangi bæjarmálanna, sem eru þó í raun oftar en ekki laus við allan stjórnmálalegan ágreining, sem ég kynntist hinum ríkjandi félagsþroska Steinþórs vel. Við áttum um langt árabil samleið í Lionsklúbbi og Odd- fellowreglunni hér í Keflavík. Þarna var Steinþór enn sami góði félaginn, tók virkan þátt í starfinu af áhuga og einlægni. Og alls staðar var hann kjörinn til trúnaðarstarfa. Og í hinu frjálsa félagsstarfi var hann veitandi og happadrjúgur, ekki síður en í hinu opinbera félagsstarfi í þágu bæjarins síns. Steinþór lét ekki mikið yfir sér. Hann miklaðist ekki af störfum sín- um, og hann tranaði sér ekki fram. Lét sín ekki getið þegar verkum var farsællega lokið, var ekki að reisa sér bautastein. En við sem þekkjum vel til þökkum honum nú fyrir langt og farsælt starf fyrir bæinn okkar og Suðurnesjabyggðir og ég þykist þess fullviss að nafn hans mun lengi verða kunnugt þeim sem að sveitarstjórn- armálum eiga eftir að vinna hér á svæðinu okkar í framtíðinni. Í margra mánaða veikindastríði var Steinþór ævinlega jákvæður, missti aldrei móðinn, enda þótt hann vissi fullvel í hvað stefndi. En hann naut líka ríkulegs stuðnings og styrks eiginkonu sinnar og barna þeirra í þeirri baráttu. Og þá baráttu háði hann til hins síðasta heima hjá sér, sem var honum óhemju mikils virði. Ég og fjölskylda mín sendum Sig- rúnu og börnum þeirra hjóna og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi sá sem öllu ræður vera þeim styrkur á stundum sorgar og saknaðar og Guðsblessun fylgja Steinþóri á lönd eilífðarinnar. Tómas Tómasson. Þó að fundum fækki er fortíð ekki gleymd. Í mínum muna og hjarta þín minning verður geymd. Heima í húsi þínu sig hvíldi sálin mín. Ég kem nú, kæri vinur, með kveðjuorð til þín. (K.N.) Það er erfitt að setjast niður og skrifa minningarorð um góðan vin og samstarfsmann og það jafnvel þó níu mánuðir séu liðnir frá því dómurinn óumflýjanlegi féll. Það reynist erfið- ara en orð fá lýst að kveðja og þakka 30 ára samstarf og vináttu. Steinþór var aðeins þriggja ára þegar faðir hans, Júlíus Einarsson, drukknaði. Móðir hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir, stóð þá eftir ein með sex börn og neyddist til að láta sum þeirra frá sér fara til góðra vina og ættingja. Á þeim árum var litla að- stoð að fá hjá hinu opinbera í slíkum tilfellum. Steinþór talaði oft um það hve heppinn hann var að fá að alast upp hjá móður sinni, þó lífsbaráttan hafi eflaust oft verið hörð. Ingibjörg var einstök kona og minntist hann hennar ávallt með virðingu og þakk- læti fyrir það veganesti sem hún gaf honum. Steinþóri var í blóð borið ein- stakt jafnaðargeð og jákvætt hugar- far og uppeldið hjá Ingibjörgu kenndi honum nægjusemi og umburðarlyndi. Ég kynntist Steinþóri árið 1970 þegar ég flutti til Keflavíkur vegna starfa minna. Steinþór hafði þá um nokkurra ára skeið verið bæjarritari og starfaði áfram sem slíkur allan þann tíma sem ég var bæjarstjóri. Ég kom til Keflavíkur ókunnur öllu, en Steinþór tók mér vel og setti mig inn í stöðu manna og málefna. Hann, sem og reyndar fleiri góðir starfsmenn á bæjarskrifstofunni, voru öllum hnút- um kunnugir. Þau tíu ár sem við störfuðum saman hjá Keflavíkurbæ voru miklir umbrotatímar, miklar framkvæmdir, landakaup, stofnun og upphaf hitaveitu og fleira mætti telja. Samstarfshópurinn á þá fámennri bæjarskrifstofu var samheldinn og leysti öll verkefni vel af hendi, jafnvel þó bæjarstjórinn væri mikið frá vegna ýmissa erinda og starfa. Fulltrúar í bæjarráði og bæjarstjórn voru ávallt samhentir þrátt fyrir mis- munandi pólitískar skoðanir og stóðu vel við bakið á starfsmönnum bæjar- ins. Milli fjölskyldna okkar tókst frá upphafi góð vinátta enda báðar með börn á svipuðum aldri og hefur sú vin- átta haldist ætíð síðan. Margar gleði- stundir gæti ég nefnt sem við Stein- þór áttum bæði í starfi og leik. Nokkrar ferðir fórum við saman til útlanda, m.a. með okkar þá ágæta knattspyrnuliði og með eiginkonum okkar. Enn fleiri góðar stundir áttum við þó á heimilum hvors annars af ýmsum tilefnum. Þá tók Steinþór stundum lagið enda ágætur söngmað- ur. Þegar ég ákvað að fara aðra leið í starfi og hætta sem bæjarstjóri var aldrei spurning hjá þáverandi bæjar- ráðsmönnum um það hver yrði minn eftirmaður hér í Keflavík. Steinþór tók við embættinu í ársbyrjun 1980 og gegndi því með sóma fram að kosn- ingum 1986. Á þeim tímamótum, eins og of oft í pólitísku vafstri, sáust sum- ir ekki fyrir og sögðu og gerðu hluti sem ég er sannfærður um að voru vanhugsaðir og ég vona að menn sjái eftir í dag. Mér er kunnugt að Stein- þóri sárnuðu þessi viðbrögð. Ekki vegna þess að hann þyrfti að víkja úr starfi, heldur vegna framkomu þeirra sem tóku við stjórninni. Því það vissu allir sem best til þekktu að Steinþór hafði unnið störf sín fyrir bæjarfélag- ið af heilindum og heiðarleik. Nokkru síðar þegar farið var að ræða um byggingu fyrsta hótelsins hér í bæ, reisti verktakafyrirtæki hús fyrir slíka starfsemi og varð að ráði að Steinþór og Sigrún kona hans tóku að sér reksturinn í eigin nafni. Þau stofnuðu Flughótel og ráku það með mikilli reisn í um tíu ár. Var til þess tekið hve öll umgjörð þess var smekk- leg og viðmót þeirra til starfsins gerði andrúmsloftið á hótelinu einstaklega heimilislegt. En rekstur hótelsins og kringumstæður reyndust erfiðari en þau hjón höfðu búist við og urðu þau fyrir nokkrum áföllum vegna þess. Það urðu Steinþóri mikil vonbrigði að þurfa að hætta rekstrinum, enda höfðu þau hjón lagt mikið undir svo vel til tækist. Eftir þetta starfaði Steinþór við skrifstofustörf hjá Varnarliðinu þar til hann veiktist alvarlega snemma á síðasta ári. Fljótt varð ljóst að ekki yrði um bata að ræða. Sá tími sem þá fór í hönd fram að andláti hans var mikill reynslutími fyrir fjölskylduna og vini þeirra. Steinþór gerði sér fulla grein fyrir að hverju stefndi og und- irbjó sig vel. Hann setti sig inn í vandamál sjúkdómsins og tók á þeim af mikilli karlmennsku án nokkurra ásakana á einn eða neinn og hélt fullri reisn fram að því síðasta. Ég átti þess kost að koma nokkuð oft til þeirra á þessu erfiða tímabili. Það var mér mikill skóli og lífsreynsla að fylgjast með því hvernig hann og fjölskyldan öll tókust á við hið óumflýjanlega með æðruleysi og yfirvegun. Aldrei féll styggðaryrði af vörum Steinþórs þó hann væri oft mjög þjáður. Hann ræddi framhaldið í rólegheitum og hafði undirbúið og skipulagt ýmislegt sem okkur er gjarnt að láta öðrum eftir þegar kallið er komið. Fyrir þær samverustundir vil ég þakka Stein- þóri vini mínum og ekki síður Sig- rúnu, sem hefur staðið sig eins og hetja allan þennan tíma, ásamt börn- um þeirra og tengdabörnum. Það er þeim öllum að þakka að Steinþór gat dvalið heima fram til hinstu stundar og ég er þess jafnframt fullviss að ein- mitt það að geta uppfyllt þessa ósk hans hefur styrkt fjölskylduböndin til framtíðar. Ég flyt Sigrúnu og fjölskyldunni allri innilegustu samúðarkveðjur frá fjölskyldu minni. Guð blessi minningu Steinþórs Júlíussonar. Jóhann Einvarðsson. Mér er það bæði ljúft og skylt að skrifa nokkur kveðju- og þakkarorð um frænda minn og læriföður Stein- þór Júlíusson, sem lést að morgni 24. janúar eftir aðdáunarverða baráttu við krabbamein. Ég man fyrst eftir Steinþóri þegar ég var lítil stelpa og hann ungur námsmaður í Verslunarskólanum í Reykjavík. Ég minnist þess að hafa strax þá, barn að aldri, litið til hans með mikilli virðingu og fannst mér ávallt mikið til hans koma. Þegar ég svo var að stíga mín fyrstu skref út í atvinnulífið og næstu 10 ár þar á eftir var ég svo heppin að hafa Steinþór sem minn aðalkennara, en þá var hann bæjarritari hjá Keflavíkurbæ og síðar bæjarstjóri. Samhliða starfi bæjarritara gegndi Steinþór einnig starfi starfsmannastjóra bæjarins og var hann mikils virtur af starfsmönn- um. Bæjarstjórastarfið innti hann einnig af hendi með stakri prýði og var virtur bæði af samstarfsmönnum og bæjarbúum. Þegar Steinþór hætti störfum sem bæjarstjóri söðlaði hann um og réðst ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu Hauksdóttur, í rekstur fyrsta hótels- ins á Suðurnesjum, Flughótels. Í þann rekstur lögðu þau allt sitt, enda var hótelið ávallt fyrsta flokks og mik- ils metið þann tíma sem þau stjórn- uðu því og ráku. Þau hjón hafa ávallt verið miklir unnendur myndlistar og stutt við bakið á listamönnum eftir mætti. Það áhugamál sitt tvinnuðu þau saman við rekstur hótelsins og má í raun segja að Flughótel hafi ekki bara verið fyrsta hótelið á Suðurnesj- um, heldur einnig fyrsta myndlistar- safnið á svæðinu. Það var ekki óal- gengt að þangað kæmi fólk, jafnvel heilu hóparnir, eingöngu í þeim til- gangi að skoða listaverk og þá gjarn- an undir leiðsögn þeirra hjóna. Heim- ili Steinþórs og Sigrúnar ber einnig vott um áhuga þeirra á myndlist og fegurð lífsins yfirleitt og var alltaf gott að sækja þau heim. Steinþór var lánsamur í hjónabandi og voru þau Sigrún ekki „bara hjón“, heldur mikl- ir vinir bæði í leik og starfi. Fjölskyld- an, börnin og barnabörnin, var stór þáttur í lífi þeirra hjóna, en eins og Steinþór sagði sjálfur sl. vor, þegar við komum saman fyrrverandi vinnu- félagar: „Þegar maður veit hvert stefnir áttar maður sig á hve mikils virði er að eiga góðar minningar, en minningarnar ásamt börnunum manns eru í raun það eina sem maður á í lifanda lífi og skilur eftir sig að því loknu.“ Ég vil þakka Steinþóri frábæra handleiðslu, handleiðslu sem hefur leitt mig þangað sem ég er í dag og gert mig að betri manneskju. Steinþór Júlíusson er allur og með honum genginn góður drengur, megi hann hvíla í friði. Elsku Sigrún, Helga Björg, Júlli, Linda og Rakel, tengdabörn og barnabörn, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið góðan Guð að veita ykkur styrk og blessun. Hjördís Árnadóttir. Að kveðja tryggan vin í gegnum hartnær 50 ár er sárt þegar hann í blóma lífsins fékk þann harða dóm, sem krabbameinið er, og ekkert hægt að gera frá apríl 2000. Fjölskyldan tók þá ákvörðun að njóta þess tíma með honum heima, og hefur verið aðdáunarvert að sjá það æðruleysi, ást og umhyggju allt til síðustu stund- ar. Steinþór var sá maður sem við bár- um virðingu fyrir, alltaf vel klæddur og snyrtimenni mikið, rólyndur, rétt- sýnn og raungóður. Aldrei í öll þessi ár minnumst við þess að hann hafi skipt skapi. Hann var hrókur alls fagnaðar í góðum hópi og átti þá til að taka lagið af mikilli innlifun. Við vilj- um þakka af einlægni samfylgdina. Elsku Sigrún, Helga, Júlli, Linda, Rakel og ykkar fjölskyldur, við biðj- um góðan Guð að gefa ykkur styrk í sorg ykkar og reyna að muna allar þær góðu stundir sem þið áttuð sam- an. Jóna og Kristinn. Langt um aldur fram er öðlingur- inn Steinþór Júlíusson horfinn af sjónarsviðinu. Ég kynntist honum fljótlega eftir að hann fluttist til Keflavíkur ásamt móður sinni, Hönnu systur sinni og Erlingi hálfbróður sín- um. Með okkur Steinþóri urðu fljótlega góð kynni vegna sameiginlegs áhuga- máls, við stunduðum báðir sundæf- ingar undir handleiðslu Guðmundar Ingólfssonar sem þá var nýútskrifað- ur íþróttakennari og mikill frumherji hvað varðar þjálfun sundmanna með keppni og sigur að markmiði. Stein- þór varð á þessu æviskeiði okkar mik- ill afreksmaður í íþróttinni. Með þessu hófust okkar kynni og vinátta sem varað hefir æ síðan. Steinþór ákvað, eftir að hafa aflað sér tilskil- innar menntunar, að fara í Verslunar- skóla Íslands, þaðan sem hann út- skrifaðist með sómaeinkunnum og -vitnisburði. Það má segja að Stein- þór þurfti að berjast fyrir sínu varð- andi námið, hann hafði ekki í neina sjóði að sækja, hann tók því hverju STEINÞÓR JÚLÍUSSON MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, – eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.