Morgunblaðið - 02.02.2001, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 02.02.2001, Qupperneq 50
MINNINGAR 50 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Bjarni Einars-son fæddist á Frakkastíg 7 í Reykjavík12. janúar 1916 . Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi miðviku- daginn 24. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Einar Bjarnason járnsmiður, ættaður frá Túni í Flóa, f. 31. júlí 1885, d. 2. febrúar 1942, og Guðrún Ásgeirs- dóttir frá Miðhúsum á Mýrum, f. 1. júlí 1887, d. 29. júní 1957. Þau bjuggu á Lind- argötu 19 í Reykjavík. Systkini Bjarna voru Stefán, f. 13. febrúar 1912, d. 16. september 1984, Ás- geir, f. 19. ágúst 1914, d. 27. apr- íl 1983, Sigríður, f. 8. janúar 1919, d. 2. apríl 1994, og Ingi- björg, f. 29. júlí 1927. Eftirlifandi eiginkona Bjarna er Sigríður Stefánsdóttir, fædd á Auðnum á Vatnsleysuströnd 22. desember 1918. Foreldrar henn- ar voru Stefán Sigurfinnsson, út- vegsbóndi og smiður á Auðnum á Vatnsleysuströnd, ættaður frá Stóru-Vatnsleysu, f. 1. mars 1888, d. 20. ágúst 1970, og Jó- hanna Sigurðardóttir frá Litla- Hólmi í Leiru, f. 23. desember 1895, d. 17. október 1977. Börn Bjarna og Sigríðar eru Stefán Sigurfinnur Bjarnason, f. 29. september 1941, Guðrún Bjarna- dóttir Bergese, f. 11. desember 1942, og Margrét Rósa Bjarna- dóttir, f. 26. nóvember 1947. Barnabörn Bjarna eru Bjarni Stefánsson, f. 25. september 1969, Halldór Ásgrímur Stefáns- son, f. 12. febrúar 1972, og Sig- mar Massoubre, f. 15. september 1970. Stefán Sigurfinnsson. Í júní 1946 hefst uppbygging Skipasmíða- stöðvar Njarðvíkur hf. Erfiðlega gekk að fá lán til uppbygging- arinnar úr stofnlánadeild sjávar- útvegsins eða hjá bönkum, en fleiri aðilar gerðust félagar í hlutafélaginu, sem réð miklu um það að áætlanir um uppbygg- inguna stóðust. Þeir sem bættust í hópinn síðar voru Jóhann B. Guðmundsson frá Seyðisfirði, Guðjón Jónsson bryti frá Reykja- vík og synir hans Vilhjálmur og Kjartan, Jón Guðmundsson frá Túni í Flóa, Óskar Kristjánsson frá Ytri-Njarðvík og Bjarni Bergsson frá Grindavík. Í september 1947 var skipa- smíðastöðin tilbúin til notkunar og fyrsta skipið dregið á land. Þá komu matsmenn stofnlánadeildar til að meta skipasmíðastöðina og eftir það var stofnlánið loks veitt. Bjarni var framkvæmdastjóri og síðar forstjóri skipasmíða- stöðvarinnar frá stofnun til þess dags er hann lét af störfum sakir aldurs árið 1986 en var áfram í stjórn stöðvarinnar til 1994. Hon- um var annt um rekstur og gang Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur og kom þar í vikulega heimsókn meðan hann hafði heilsu til. Bjarni hafði alla tíð mikinn áhuga á þróun skipa og skipa- smíða á Íslandi og skrifaði um það greinar i blöð og tímarit. Bjarni var í stjórn Iðnaðar- mannafélags Keflavíkur 1941– 1949, þar af formaður þess 1946– 1949. Bjarni var í stjórn Landshafn- ar Keflavíkur–Njarðvíkur 1958– 1962 og 1966–1970. Hann var einnig formaður félags dráttar- brauta- og skipasmiðja frá stofn- un 1956–1971, einnig í stjórn Byggingafélags iðnaðarmanna. Hann var fastafulltrúi á Iðnþingi Íslendinga um árabil. Bjarni gerðist félagi í Rótarý- klúbbi Keflavíkur 1. maí 1964 og var forseti félagsins 1980–1981. Útför Bjarna Einarssonar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Að loknu gagn- fræðaprófi hóf Bjarni iðnnám í skipasmíði hjá Landssmiðjunni árið 1933 og lauk sveinsprófi árið 1937. Hann vann áfram hjá Landssmiðjunni fram til 1939. Bjarni gekk í sveinafélag skipa- smiða í Reykjavík að loknu sveinsprófi, hann lét sig varða mál félagsins strax frá upphafi. Hann var kosinn með- stjórnandi í stjórn félagsins 1936 og 1937, síðan for- maður félagsins 1938 og 1939. Bjarni hætti störfum hjá Landssmiðjunni 1939 og hóf starf við skipasmíðar hjá Júlíusi Ný- borg í Hafnarfirði en þar starfaði hann í fimm mánuði. Síðan flutt- ist Bjarni til Ísafjarðar og vann við skipasmíðar hjá Marselíusi Bernharðssyni í eitt ár. Eftir það var hann ráðinn framkvæmda- stjóri við Dráttarbraut Eggerts Jónssonar í Innri-Njarðvík frá 1940 til 1946. Njarðvíkurhreppur var stofnaður 1942 með samein- ingu Innri- og Ytri-Njarðvíkur og var Bjarni fyrsti fulltrúi hrepps- nefndar fyrir Innri-Njarðvík 1942–1946 og í ýmsum nefndum á vegum hennar. Einnig var hann í hreppsnefnd eftir að hann flutt- ist til Ytri-Njarðvíkur og starfaði áfram í ýmsum nefndum fyrir samfélagið. Í apríl 1945 stofnaði Bjarni ásamt fimm vinnufélögum, öllum búsettum í Innri-Njarðvík, hluta- félag um byggingu nýrrar skipa- smíðastöðvar í Ytri-Njarðvík. Stofnendurnir voru, auk Bjarna, Friðrik Valdemarsson, Oddberg- ur Eiríksson, Stefán Þorvarðar- son, Sigurður Guðmundsson og Bjarni Einarsson skipasmiður, kenndur við Skipasmíðastöð Njarð- víkur, nefnd S.N. í þessari grein, er látinn. Langri starfsævi er lokið. Fundum okkar bar fyrst saman 1941 og hafa leiðir legið saman óslit- ið síðan. Ég kom fyrrgreint ár til Innri-Njarðvíkur til að læra skipa- smíði og þar var Bjarni verkstjóri í Skipasmíðastöð Eggerts Jónssonar á þeim stað. Stefán Sigurfinnsson var þar framkvæmdastjóri og var Bjarni tengdasonur hans, kvæntur Sigríði. Áttu þau þá einn son en seinna urðu börn þeirra þrjú, Stefán Sigurfinnur, Guðrún og Margrét Rósa. Skipasmiðastöð Eggerts var rekin af dugnaði þau ár sem við störfuðum þar en síðan lognaðist hún út af upp úr því. Mér er minnisstætt frá þeim árum að við smíðuðum 28 tonna bát, Guð- finn K.E., skiluðum honum á vertíð ég held 1943. Hann kostaði rúmar 300.000 þúsund krónur og borgaði sig upp á fyrstu vertíðinni, aflaði 800 tonn. Þá smíðuðum við bát og geymd- um sniðin af böndum og byrðingi og svo forsmíðuðum við efni í tvo báta eftir þessum sniðum og voru þeir settir samtímis á stokkana og smíði þeirra samtímis lokið. Þetta var eins- dæmi í landinu og hefur ekki verið gert síðan í smíði þilfarsbáta. Þetta vinnulag var skipulagt af hagleiks- manninum Bjarna. Þessari aðferð var beitt í S.N. síðar við smíði nóta- báta, þar lögðum við undir tíu slíka báta á hálfu ári. Sem sagt, stöð Egg- erts var rekin af krafti á þessum ár- um undir stjórn Bjarna. Árið 1944 færði Stefán Sigurfinns- son það í tal við vinnufélagana að þeir mynduðu félag um að eignast og reka skipasmíðastöð. Var þetta rætt og fékk þessi hugmynd góðar undirtekt- ir. Var fyrst samþykkt að kanna hvort Eggert gæfi kost á að selja þessu væntanlega félagi dráttarbraut sína. Eggert hafnaði þessari hug- mynd. Árið 1945 var félagið stofnað, samin lög fyrir félagið, leitað að væntanlegum stað fyrir starfsemina. Félagið var stofnað af tíu mönnum, sjö úr hópi vinnufélaga auk þriggja annars staðar að. Lóð fyrir starfsem- ina var fengin við Sjávargötu í Ytri- Njarðvík. Dráttarbrautin var byggð á árunum fjörutíu og sex til sjö og hóf hún starfsemi sína það ár. Það voru ekki efnaðir menn sem mynduðu þetta félag. Sennilega flest- ir tekið lán fyrir hlutafé sínu, sem í byrjun var tíu þúsund krónur á félaga. En vissulega þurfti meira til. Á stríðsárunum höfðu raunveru- lega myndast nokkrir fjármunir í eign þjóðarinnar og vaknað hafði áhugi til framkvæmda bæði til lands og sjávar. Undir þessum formerkjum var ríkisstjórn mynduð, nefnd ný- sköpunarstjórnin. Fyrsta frumvarp hennar var um skipun fjögurra manna nefndar er kallaðist nýbygg- ingarráð og átti það að semja heildar- áætlun miðað við næstu fimm ár um nýsköpun íslensks atvinnulífs sam- kvæmt málefnasamningi ríkisstjórn- arinnar. Fékk S.N. lán úr þessum sjóði. Þetta var upphaf þessa félagsskap- ar, sem nú er að verða 56 ára gamall og mun vera með elstu atvinnufyr- irtækjum á Suðurnesjum. Ekki verð- ur saga þessa fyrirtækis nánar rakin hér, utan að geta þess að tuttugu ár- um síðar var byggð önnur dráttar- braut stærri og nú nýlega hefur verið byggt stórt skýli yfir hluta athafna- svæðisins. Í þessari minningargrein hef ég gert sögu þessa fyrirtækis meiri en eðlilegt gæti talist en það er ekki að ástæðulausu því þau voru gjarnan kennd hvort við annað, Bjarni við S.N. og S.N. kennt við Bjarna. Enda áttu þau þrek hvort annars að fullu og ómælt. Lengi var þetta fyrirtæki kallað ,,rautt“ enda hefur það meðal annars lifað öll æviár kalda stríðsins þegar margir að réttu eða röngu voru kall- aðir kommúnistar. Ég er ekki frá því að S.N. hafi í sumum tilfellum goldið þess. Að sumra mati þurfti að greina hafrana frá sauðunum og vitaskuld var sitt hvað Jón og séra Jón. En við höfum notið þess að hafa haft stuðning breiðs hóps viðskipta- manna allt frá Tálknafirði til Horna- fjarðar og margir þeirra voru per- sónulegir vinir. Margir þeirra eru nú frá fallnir. Margir þeirra voru þeir sem byggðu undirstöður þjóðfélags- ins eins og það er í dag. Sigga mín, við Fjóla vottum þér og börnunum ykkar dýpstu samúð og færum jafnframt þakklæti fyrir langa samveru og vináttu. Það eru gjafir sem gleymast ei. Oddbergur Eiríksson skipasmiður. Bjarni Einarsson var um árabil einn af forystumönnum íslensks skipaiðnaðar. Hann fór ekki einasta fyrir við uppbyggingu þessa iðnaðar á Suðurnesjum, með stofnun og rekstri Skipasmíðastöðvar Njarðvík- ur, heldur var hann um áraraðir í stjórn hagsmunasamtaka greinar- innar og lagðist þar á árarnar af fullri einurð. Þar komu fágætir hæfileikar Bjarna vel í ljós. Hann var einn af þeim mönnum sem ígrunduðu sér- hvert málefni af nákvæmni, ræddi allar hliðar þess og tók síðan ákvörð- un sem hann fylgdi eftir af ósérhlífni. Bjarni var ekki einasta mjög virtur innan skipaiðnaðarins heldur einnig meðal allra forystumanna íslensks BJARNI EINARSSON ✝ Jóhanna Björns-dóttir fæddist í Ærlækjarseli við Axarfjörð 7. apríl 1903, en ólst upp á Grjótnesi á Mel- rakkasléttu. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 24. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Björn Sigurðs- son, f. 8. desember 1870, d. 5. ágúst 1938, og Vilborg Guðmundsdóttir, f. 10. maí 1877, d. 25. september 1962. Systkini Jó- hönnu; Guðmundur (f. 1899, lát- inn), Kristín (f. 1901, látin), Guð- rún (f. 1904, látin), Sigurveig (f. 1906, látin), Sigurður (f. 1909, látinn), Jakobína (f. 1911, látin), Stefán (f. 1914), Björn (f. 1916), Gunnlaugur (f. 1916) og Arn- þrúður (f. 1918). Jóhanna giftist 13. júní 1936 Valde- mar Helgasyni, leik- ara, f. 15. júlí 1903, d. 10. mars 1993. Einkasonur þeirra var Arnaldur, f. 12. ágúst 1936, d. 7. júlí 1999. Börn hans: 1) Arnhildur, f. 11.6. 1961, sambýlismað- ur Hilmar G. Garð- arsson, synir þeirra eru Dagur, f. 11.2. 1989, og Hugi, f. 14.1. 1994. 2) Óttar, f. 3.12. 1962, sambýliskona Krist- ín J. Magnúsdóttir, sonur þeirra er Magnús Kár, f. 17.7. 1992. 3) Gauti, f. 31.12. 1971. 4) Daði, f. 31.1. 1974. Útför Jóhönnu fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Langri ævi ömmu okkar er lok- ið. Þegar við setjumst niður til að rita nokkur minningarorð um ömmu Jóhönnu rennur upp fyrir okkur hve lítið við vitum um það líf sem hún lifði. Amma fæðist í upp- hafi síðustu aldar og nær að lifa nokkra daga fram á þá næstu. Ekki þarf að tíunda hér alla þá sögulegu atburði sem hún hefur upplifað bæði hér á landi og út í heimi. Einnig hefur hún fylgst með framförum, bættum kjörum og tækninýjungum sem átt hafa sér stað á síðustu öld. Fólk af okkar kynslóð á örugglega mjög erfitt með að setja sig í spor þeirra sem lifðu þessa tíma. Amma elst upp á mannmörgu sveitaheimili, Grjótnesi á Mel- rakkasléttu, og það er víst óhætt að segja að hún hafi átt hamingju- ríka æsku. Faðir hennar var lærð- ur smiður, farsæll bóndi og gegndi opinberum störfum í sveit sinni. Grjótnesbærinn stendur enn og margt er þar óbreytt frá fyrri tíð. Húsið er reisulegt timburhús, sem langafi flutti inn í einingum frá Noregi. Í heimsóknum þangað verður manni ljóst að Grjótnes hefur verið stórbýli. Enda var (og er enn) þar margt hlunninda, reki, dúntekja og æðarvarp, eggjataka í björgum, silungur í vötnum, góð fjárbeit og hægt að stunda sjó- róðra. Þar var alltaf björg í búi og aldrei talaði amma um að þau hefðu liðið skort. Uppi á lofti er stássstofa búin húsgögnum sem langafi flutti með sér frá Kaup- mannahöfn og það er eins og að fara 100 ár aftur í tímann að ganga inn í þessa stofu. Enda fannst okk- ur systkinunum mikið ævintýri að fara með pabba í heimsókn á Grjótnes þegar við vorum lítil. Til er falleg mynd af heimasæt- unum á Grjótnesi, sennilega tekin í kringum 1910 þar sem þær systur (Gudda, amma, Stína og Úa) horfa alvarlegar og undrandi á ljós- myndarann, sem fangar með myndavélinni svip þeirra og fas. Þarna sitja þær í sparikjólunum sínum, fínt greiddar og allar með einn skartgrip. Ekki örlar á brosi enda hefur ljósmyndataka á þess- um tíma verið alvarlegt mál. Þær ber með sér að það hefur verið vel um þær hugsað. Þegar þessi mynd er skoðuð veltir maður því ósjálf- rátt fyrir sér að á því augnabliki sem myndin er tekin eiga þær allt lífið framundan og þær hafa ekki hugmynd um hvað bíður þeirra og kannski er það þess vegna sem svipur þeirra er svona alvarlegar. Við vitum ekki mikið um hvað drífur á daga ömmu eftir að hún fer frá Grjótnesi og þar til hún tekur saman við afa 1936. Jú, hún fer til Reykjavíkur og var í Kvennaskólanum 1920–1922. Eftir það hefur hún sennilega farið til Danmerkur og verið vinnukona í Kaupmannahöfn. Frá þeim tíma átti hún góðar minningar og var alla tíð hrifin af Danmörku og því sem danskt var. Hún var góð í dönsku og las danskar bókmenntir. Amma vann síðan lengi í VBK (Verslun Björns Kristjánssonar, Vesturgötu 4). Hún vitnaði oft til þeirra tíma og sagði þá: „Þegar ég vann í VBK…“ Stúlkurnar sem hún vann þar með urðu margar vinkonur hennar til æviloka, en hún hefur sennilega lifað þær all- ar. Svo skemmtilega vill til að í gömlu dóti eftir ömmu fannst reikningur þar sem Frk. Jóhanna Björnsdóttir tekur út vörur hjá VBK í maí 1935 og þar kennir ým- issa grasa: Tannkrem, krem, kragaefni, teygjubönd, kjólkragi, hlýrabönd, undirföt, kjólatau, sloppur, kragi, þvottapokar, púð- urdós, kölnarvatn, 1,80 m satín og vinsli. Reikningurinn hljóðar upp á 83 krónur og 41 eyri. Hvað ætli hún amma hafi haft í mánaðar- kaup? Var amma svolítil eyðslukló? Eða var hún kannski líka að taka út vörur fyrir fólkið sitt og senda norður í land. Hver veit? Á þessum árum hefur amma haft uppi framtíðaráform sem við höfðum ekki hugmynd um og heyrðum hana aldrei tala um. Þetta vitum við úr bréfi sem vin- kona hennar sendir henni frá Am- eríku í mars 1929. „…Jæja Jó- hanna mín svo þú ert að hugsa um að læra hjúkrun, það er það sem allar vilja verða núna það er sú alda, það er líka ágætur peninga- vegur. …Svo það tekur þig þrjú ár. Það verða þá minnsta kosti fjögur ár þangað til þú mundir geta komið hingað, en þá er ég nú hrædd um að þú verði búin að binda þig einhverjum alvarlegum böndum.“ Síðan lýsir vinkonan fyr- ir henni nákvæmlega hvað eigi að gera til þess að fá „inngöngu í himnaríki“ og það þarf að hafa margt í huga og ýmislegt sem get- ur komið upp á. „ …Þú verður skoðuð vandlega af læknir áður en þú tekur skipið yfir Atlantshafið, …þú þarft ekkert að vera hrædd við þessa skoðun, það eru aðallega augun sem þeir gera mesta at- hugasemd við, og ekki skaltu kippa þjer upp þó þeir leiti þjer lúsa, það er ekki hætt við að þeir finni mikið af svoleiðis fjenaði á þjer.“ Ekki lærði amma hjúkrun og ekki fór hún til Ameríku. Kannski veikindi hennar hafi farið að gera vart við sig á þessum árum en amma var MS-sjúklingur. Hún binst síðan ekki „alvarlegum“ böndum fyrr en í júní 1936 er hún giftist afa mín- um Valdemar Helgasyni, leikara. Einkasonur þeirra Arnaldur fæðist 12. ágúst 1936. Frá þeim tíma var amma húsmóðir. Afi og amma bjuggu alla sína tíð í Reykjavík. Afi vann skrifstofustörf hjá Áfengisverslun ríkisins og lék með Leikfélagi Reykjavíkur og seinna í Þjóðleikhúsinu. Á þeim tíma sem amma og afi hefja bú- skap var mikill húsnæðisskortur í Reykjavík og bjuggu þau hingað og þangað í bænum, stutt á hverj- um stað. Deildu íbúð með annarri fjölskyldu höfðu eitt herbergi, að- gang að eldhúsi og hreinlætisað- staða hefur ekki verið upp á marga fiska á nútímamælikvarða. Lengst höfðu þau fast leiguhúsnæði of- JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.